Fréttablaðið - 26.05.2014, Page 13
MÁNUDAGUR 26. maí 2014 | SKOÐUN | 13
„Aðal ungrar þjóðar / orðin voru
forðum …“ Þannig hefst Margrét-
arlof Þórarins Eldjárns sem hann
flutti Danadrottningu á dögun-
um í tilefni af nýjum þýðingum
á Íslendingasögunum sem eru að
koma út í Danmörku.
Sofandi Noregskonungur
Síðast flutti íslenskt skáld nor-
rænum þjóðhöfðingja drápu
á sjötta áratug síðustu aldar í
Íslandsheimsókn Ólafs Noregs-
konungs sem hlýddi kvæði Davíðs
Stefánssonar, og herma áreið-
anlegar samtímaheimildir að
konungur hafi sofið með hljóð-
um þrátt fyrir volduga rödd og
annálaða orðkynngi skáldsins.
Því var aldeilis ekki að heilsa hjá
Þórarni og Margréti eins og sést á
upptöku frá athöfninni sem hægt
er að sjá á netinu. Öðru nær: hið
besta var kvæðið flutt. Drottning
hlýðir með lifandi athygli enda
búin að sjá danska þýðingu og veit
hvað er á seyði. Þetta er falleg
athöfn, virðuleg en líka innileg,
hlýleg og brosmild: enginn tekur
sig of hátíðlega, hvorki skáld né
þjóðhöfðingi, en bæði þekkja og
virða sameiginlega sögu þjóð-
anna.
Svona eigum við að nálgast
Dani af reisn – en aldrei fram-
ar með því að kaupa undan þeim
fræg hótel og stórmagasín út á
krít eða fara í mannjöfnuð um
viðskiptamál eins og henti á al-
kjánalegasta niðurlægingarskeiði
útrásarinnar.
Þórarinn minnir okkur öll á
mikilsverð sannindi nú á þess-
um tímum þegar enn virðist ekki
ætla að takast að finna meðal-
hófið milli hins hömlulausa sjálfs-
haturs og blygðunarlausrar sjálfs-
upphafningar, þegar ekki er hægt
að kynna verðug áform um aukin
framlög til rannsókna og mennta
án þess að því þurfi að fylgja heit-
strengingar um að skara fram úr
öllum öðrum. Þórarinn minnir
okkur á þetta: Íslendingar kunna
að hafa orðið maklega að spotti
um víða veröld vegna fjármála-
umsvifa sinna en samt ferst þeim
sumt vel úr hendi: ekki síst að búa
til list. Eru þeir þá bestir í heimi í
því? Það eru þeir ekki, en það má
alveg halda á lofti því sem vel er
gert og gott í íslenskri menningu.
Þegnar Óðins
Og í framhaldi af þessu er rétt
að árétta enn einu sinni að hug-
myndin um útrásarvíkingana,
sem komnir væru í beinan karl-
legg frá þeim víkingum sem
stóðu í stórræðum við að henda
börn á spjótsoddum, bíta fólk á
barkann, æla skyri á mann og
annan, ræna, myrða, nauðga,
brenna, rústa og kúga – sú sjálfs-
mynd var byggð á vissu þekk-
ingarleysi á sögunni. Í fyrsta lagi
var það undarleg hugmynd að
eftirsóknarvert væri að samsama
sig slíkum rumpulýð og nota hana
síðan til að réttlæta strandhögg í
sparifé annarra þjóða eins og Ice-
savereikningarnir voru til vitnis
um, og í öðru lagi var rangt að
slíkur ránskapur væri sérstak-
lega arfur Íslendinga og þeim í
blóð borinn, umfram til dæmis
það að temja sér nægjusemi við
lítil efni.
Íslendingar voru aldrei vík-
ingar í þessum skilningi. Það sem
hins vegar var dálítið sérstakt
í íslenskri miðaldamenningu og
var ríkjandi í fari furðu margra
manna af ólíku standi og mis-
jöfnun stéttum frá elstu tíð og
gegnum aldirnar og allt fram á
síðustu ár var útbreidd árátta að
stunda skriftir af einhverju tagi.
Það lýsti sér í endalausum kvæð-
um þar sem skáldið ætlaði aldrei
að geta hætt, þáttum af minnis-
verðu og merku fólki, ættartölum
þar sem menn röktu sig til þeirra
frænda Adams og Óðins; algengt
var að skrifa upp sálma, gaml-
ar sögur og jafnvel semja nýjar
sögur í anda riddarasagna, sem
lýsa innvirðulegum ævintýrum
hugprúðra riddara og hispurs-
meyja. Stundum er talað um að
á Íslendinga hafi löngum herjað
tveir þjóðarsjúkdómar: alkóhól-
ismi og grafómanía, skrif æði, sú
árátta að mega helst ekki óskrif-
andi vera.
Skiljanlegt er að margt fólk
vilji gjarnan sækja sjálfsmynd
sína í eitthvað annað – og ekk-
ert því til fyrirstöðu – en þó að
maður leggi ekki stund á bók-
menntir er allt í lagi að hafa í
huga að Íslendingar eiga þennan
ríka arf, og þá er ekki einungis
um að ræða Íslendingasögurn-
ar eða Passíusálmana eða önnur
slík eftirlætisverk, heldur hafa
hér verið ritaðar ágætar alþýðu-
bókmenntir fram á síðustu ár.
Þessi arfur þarf ekki að birt-
ast í bókagerð á okkar stafrænu
tímum; hann getur allt eins birst
okkur sem fremur útbreidd gáfa
til að skynja umhverfi sitt í lík-
ingu listar, í frásögn, metafóru,
hreyfingu, söng – að rýminu sem
„listamaðurinn vinnur með“.
Íslendingar voru aldrei vík-
ingar í þeim skilningi að þeir hafi
unnvörpum staðið í sjóránum eða
kaupskap. Þeir voru ekki þannig
fólk. Þeir voru ekki valdamikl-
ir á evrópska vísu. En þeir töldu
að vísu sjófarendum sem hingað
komu trú um að þeir gætu selt
þeim byr, að því er heimildir
herma frá 15. öld. Þeir réðu yfir
vindum með orðkynngi sinni – að
eigin sögn. Vald sitt sóttu þeir í
orðin, sem þeir tvinnuðu saman
af æ meiri hugkvæmni og bundu
í sífellt flóknari bragarhætti, sem
þeir notuðu til að sveipa list sína
kynngi hins ókennilega. Kóng-
arnir sátu gapandi og hlustuðu á
íslensku skáldin kyrja og spinna
þeim frægð með þulum sínum. Á
sínu stórveldisskeiði réðu Íslend-
ingar yfir sjálfri Sögu, þeir voru
dyraverðir Orðstírsins; þegnar
Óðins og stjórnuðu eftirmælum
konunga. Þeir voru pappírsvík-
ingar.
Íslendingar voru pappírsvíkingar
Á sínu stórveldis-
skeiði réðu Íslend-
ingar yfir sjálfri Sögu, þeir
voru dyraverðir Orðstírsins;
þegnar Óðins og stjórnuðu
eftirmælum konunga. Þeir
voru pappírsvíkingar.
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Magnús
Halldórsson
@MaggiHalld
Vika í kosningar.
Framsókn er ekki með
mann inn í Reykjavík, Hafnarfirði
eða Kópavogi. 57 prósent Íslendinga
búa á þessum stöðum. Súrrealískt.
Einar Bardar
@Einarbardar
Framsókn á mjög undir
högg að sækja í landi
Reykjavíkur ......#x14
Bragi Valdimar
@BragiValdimar
Hugur minn á
þessum erfiðu tímum
er hjá þeim feðrum
sem staddir eru á singalong-sýn-
ingu Frozen. #hugurminn
Kristín Soffía
@KristinSoffia
Þjóðin sýnir múslim-
um stuðning í verki
með því að hætta að
borða svínakjöt.
TÍSTIÐ
AUKIÐ JAFNRÉTTI
– AUKIN HAGSÆLD
UN Women á Íslandi, Festa og Samtök atvinnulífsins (SA), í samstarfi við
Jafnréttisstofu, bjóða til opinnar ráðstefnu þann 27. maí næstkomandi um
stöðu og þróun jafnréttismála á atvinnumarkaði undir yfirskriftinni „Aukið
jafnrétti – Aukin hagsæld“. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík
Nordica. Styrktaraðili ráðstefnunnar er Actavis á Íslandi.
Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi þess að fyrirtæki setji jafnréttismál
á oddinn út frá viðskiptalegum forsendum og samfélagsábyrgð. Rætt verður
um mikilvægi þess að hafa blandaðar stjórnir og stjórnendur í fyrirtækjum bæði
út frá jafnréttissjónarmiðum og af þeirri einföldu ástæðu að teknar eru betri
ákvarðanir fyrirtækjum til heilla. Jafnframt verður rætt um Jafnréttissáttmála
UN Women og UN Global Compact (WEP), stefnu og innleiðingu.
Hluti af aðgangseyri ráðstefnunnar rennur til UN Women í þágu valdeflingar
kvenna á atvinnumarkaði.
Skráning á ráðstefnuna fer fram á www.sa.is
9.800 krónur f. hádegi
(innifalið í verði er léttur morgunverður)
15.900 krónur allur dagurinn
(innifalið í verði er hádegisverður og léttar veitingar yfir daginn)
8.10 Skráning og kaffi
8.30 Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona stýrir fundi
8.40 Sigurborg Arnarsdóttir formaður Festu
9.00 Gena Lovett, Global Chief Diversity Officer hjá Alcoa
9.20 Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur Jafnréttisstofu
9.30 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi
9.50 Rep. Kristin Hetle, Director, UN Women NY
10.20 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA
10.40 Pallborðsumræður í kjölfar erinda
11.20 Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
afhendir í fyrsta sinn Hvatningarverðlaun jafnréttismála
11.40 Fyrirtæki skrifa undir Jafnréttissáttmálann
12.00 Hádegishlé
13.00 Vinnustofur UN Women, Festu og SA í samstarfi við
Jafnréttisstofu og fleiri. Stefnumótun í jafnréttismálum, staðlar –
lög- og viðmið, markmið, innleiðing, skýrslugjöf, endurmat og árangur
KR.
Þriðjudagur 27. maí · Hilton Reykjavík Nordica
D
A
G
SK
R
Á
Halldór
Halldórsson
@DNADORI
Höndlaðu mig af
varfærni.
Halldór Auðar
Svans
@tharfagreinir
Bjarni Ben vildi þjóðar-
atkvæðagreiðslu um
ESB. Vill núna að fólk geti krafist þeirra
um lög (= á ekki við um ESB-mál). Svikin
í hnotskurn.