Fréttablaðið - 26.05.2014, Qupperneq 42
FASTEIGNIR.IS20 26. MAÍ 2014
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Til ölu
Tilboð óskast í sumarhús sem staðsett er
á lóð Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Húsið er byggt af nem-
endum veturinn 2012 og
2013 og klárað vorið 2014.
Húsið er um 56 m² að
grunnfleti með millilofti
sem reiknast um 7 m²
en er um 25 m². Húsið
er fullklárað að utan og
veggir að innan eru klæddir
með gipsi og loft eru
panelklædd. Á gólfi er 22
mm gólfplötur. Húsið er
án endanlegra gólfefna
innréttinga og innihurða. Rafmagn er fullklárað með tilbúinni rafmagns-
töflu. Húsið er klætt að utan með 32mm bjálkaklæðningu. Það er
einangrað með 200 mm steinull í gólfi, 150 mm ull í útveggjum og þak er
einangrað með 300 mm ull. Gluggar eru allir með tvöföldu k-gleri.
Húsið er tilbúið til flutnings og skal flutt af lóð skólans fyrir 1.ágúst n.k.
Húsið verður til sýnis í samráði við Gunnar Valdimarsson í síma 899 5163
og Ríkiskaup í síma 530 1400.
Tilboðseyðublað liggur frammi á sama stað og í afgreiðslu Ríkiskaupa,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík og á slóðinni http://www.rikiskaup.is/til-
solu/fasteignir/.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 10. júní 2014 þar
sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
TIL SÖLUTil ölu
Tilboð óskast í sumarhús, staðsett á lóð
Verkmenntaskólans á Akureyri og byggt
var af nemendum og kennurum VMA.
Sala 15666. Um er að
ræða timburhús, 54
m2 að grunnfleti með
um 25 m2 svefnlofti
sem reiknast um 7m2.
Húsið er fullbyggt, en
gólfefni, innihurðir og
stiga vantar ásamt
tækjum í eldhús og
bað. Að utan er húsið
klætt bandsagaðri
vatnsklæðningu og plötuklætt að innan. Lagnir eru fullfrágengnar. Húsið
er tilbúið til flutnings og skal flutt af lóð skólans fyrir 1. september næst
komandi.
Húsið verður til sýnis í samráði við Halldór Torfa í síma 863 1316, og
Ríkiskaup í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð og byggingarlýsing fást í afgreiðslu Ríkiskaupa,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík og á slóðinni http://www.rikiskaup.is/.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 10. júní 2014 þar
sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is
Save the Children á Íslandi