Fréttablaðið - 26.05.2014, Síða 56

Fréttablaðið - 26.05.2014, Síða 56
26. maí 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 24 LYFTINGAR Grót tustelpan Fanney Hauksdóttir vann sannfærandi sigur í bekkpressukeppninni á HM unglinga á dögunum þegar hún lyfti 135 kílóum. „Þetta eru miklar þyngdir og það liggur mikil æfing að baki að ná þessu upp. Það er talað um að það sé gott ef maður tekur rúm- lega helming af líkamsþyngd í bekkpressu því ég held að það sé viðmiðið þegar þú mætir í ræktina. Ég er komin í rúmlega tvö- falda líkamsþyngd,“ segir Fanney Hauks- dóttir hlæjandi en hún keppir í 63 kg flokki. Fanney er hvergi nærri hætt. „Núna náði ég 135 kg og heimsmetið er 145 kg þannig að næst á dagskrá er bara að reyna að slá það. Það væri geðveikt að vera bæði heims- meistari og heimsmethafi,“ segir Fanney kát. Hún hefur notið fyrstu daganna sem heimsmeistari. Lét plata sig út í kraftlyftingar „Það gekk allt upp og ég trúi þessu varla sjálf. Þegar ég byrjaði í þessu á sínum tíma þá voru margir fjölskyldumeðlimirnir sem hugsuðu þetta sem íþrótt fyrir stóra karl- menn. Það er alls ekki þannig því það geta allir verið í lyftingum,“ segir Fanney. En af hverju kraftlyftingar? „Ég var upphaflega í fimleikum en svo hætti ég þar og leiddist einhvern veginn út í kraftlyftingarnar eftir það. Það eiginlega bara gerðist. Ég var alltaf í ræktinni og svo náði einn einkaþjálfari í World Class að plata mig á eitt bekkpressumót . Ég ætlaði ekki að fara fyrst því mér fannst það alveg fárán- legt en svo náði hann að plata mig. Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Ég er mikil keppnis- manneskja og finnst gaman að keppa. Það er alltaf gaman að vinna að einhverju mark- miði og sjá framfarir,“ segir Fanney af eld- móði en hvað segja strákarnir þegar hún rífur þessar miklu þyngdir upp? „Þeir taka þessu misvel. Sumum finnst þetta vera töff en öðrum alveg fáránlegt. Sumir vinir mínir biðja mig um að koma ekki í bekkpressuna í World Class þegar þeir eru að taka bekkpressuna. Þeim finnst það ekki skemmtilegt,“ segir Fanney hlæjandi og fleiri þola ekki samkeppnina. „Kærastinn minn er hættur að taka bekkpressu. Hann er í fótbolta og lagði bara ræktina á hilluna og mætir bara á fótboltaæfingar. Ég held að hann hafi bara séð það að það þýðir ekkert fyrir hann að vera í einhverri keppni,“ segir Fanney létt. Systir hennar er Evrópumeistari Hún er af mikilli íþróttaætt. Báðir for- eldrarnir voru í handbolta og pabbi henn- ar, Haukur Geirmundsson, í landsliðinu. Systir hennar, Harpa Snædís Hauksdóttir, varð Evrópumeistari í hópfimleikum og litli bróðir hennar, Vilhjálmur Geir Hauksson, er búinn að vera í öllum yngri landsliðun- um í handbolta. „Við vorum svolítið alin upp í íþróttum og ég er með stórt stuðningslið hérna heima,“ segir Fanney en pabbi henn- ar fylgir henni á öll mót. Fanney treystir á íslenskan mat og vill ekki sjá fæðubótar- efni. Borðar ekki „duft“ „Ég borða bara venjulegan heimilismat og er ekki með sérfæði eða slíkt. Ég borða bara það sem mamma eldar og maturinn hjá mömmum er alltaf bestur. Það eru rosalega margir sem búast við því að þegar maður er í lyftingum þá sé maður að borða fæðu- bótarefni. Ég borða ekki duft, það er „prins- ip“ hjá mér. Ég er ekki að fá mér einhverja próteinsheika eða svoleiðis. Ég fæ oft spurn- ingar um hvaða prótein ég sé að taka en mér finnst óþægilegt að borða eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað er í,“ segir Fanney, en hvað var heimsmeistaramáltíðin? „Síðasta máltíðin fyrir heimsmeistaratit- ilinn var kjúklingur með pestó og brokkólí. Ég veit ekki hvort ég borða þetta aftur næst því ég borðaði svolítið mikið af þessu þann- ig að ég veit ekki hvort ég geti sett kjúkling með pestó aftur ofan í mig,“ segir Fanney að lokum. ooj@frettabladid.is SPORT HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU 17 DAGAR Í FYRSTA LEIK Breiðhöfði 10 | IS-110 Reykjavík | Sími: 414 8700 | www.ev.is SORPTUNNUSKÝLUM Hafðu samband við sölumann í síma 414 8700 TILBOÐ Á ÞJÓÐVERJINN JÜRGEN KLINSMANN er einn þriggja sem hafa náð að skora þrjú mörk eða fleiri í þremur heimsmeistarakeppnum en hinir eru Brasilíumaðurinn Ronaldo og Þjóðverjinn Miroslav Klose. Miroslav Klose getur bætt þetta met í í ár en hann er í hópi þýska landsliðsins á HM í Brasilíu og hefur skorað fjögur mörk eða fleiri á síðustu þremur HM. Klinsmann, sem nú þjálfar banda- ríska landsliðið, náði þessu á HM 1990 (3 mörk), HM 1994 (5 mörk) og HM 1998 (3 mörk). Klose vantar ennfremur aðeins eitt mark til þess að jafna markamet Ronaldos sem skoraði fimmtán mörk í þremur úrslitakeppnum sínum: 4 mörk á HM 1998, 8 mörk á HM 2002 og 3 mörk á HM 2006. FÓTBOLTI Real Madrid tryggði sér sigur í Meistaradeildinni um helgina með 4-1 sigri á nágrönnum sínum í Atletico Madrid í framlengdum úrslitaleik í Lissabon. Miðvörðurinn Sergio Ramos hélt áfram að skora mikilvæg mörk fyrir sitt lið en hann bjargaði sínu liði frá tapi og markverðinum Iker Casillas frá því að vera skúrkur ársins í spænsku blöðunum, þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma. Casillas gerði slæm mistök þegar Atletico komst í 1-0 í fyrri hálf- leiknum. Gareth Bale, Marcelo og Crist- iano Ronaldo tryggðu Real Madrid síðan sigurinn með þremur mörkum í framlengingunni. Í stað þess að vera skúrkur kvöldsins þá fékk Iker Casillas að taka við bikarnum í leikslok og hefur nú lyft þeim þremur allra stærstu sem fyrirliði Real Madrid og spænska landsliðsins. Gareth Bale gleymir aldrei fyrsta tímabili sínu með Real Madrid en það lítur út fyrir að dýrasti knattspyrnumaður heims hafi verið síðasta púslið fyrir spænska liðið til að vinna loksins tíunda Evrópumeistaratitilinn. Bale skoraði sigurmarkið í bikarúrslitaleiknum og kom Real yfir í 2-1 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, mark sem fór langt með að klára leikinn. „Svona stund dreymir alla knattspyrnumenn um og þetta gerist ekki stærra hjá félagsliði,“ sagði Bale í leikslok. Ronaldo skoraði sitt 17. mark í Meistaradeildinni á þessu tíma- bili undir lok leiksins og bætti við markametið sitt og Carlo Ance- lotti jafnaði árangur Liverpool- stjórans Bob Paisley með því að vinna Evrópukeppni meistara- liða í þriðja sinn. Enginn þjálfari hefur hins vegar unnið Meistara- deildina oftar en Ancelotti og Ítal- anum tókst það sem öllum þjálfur- um Real Madrid hafði mistekist í tólf ár – að ná þeim tíunda. - óój Draumur fyrir Bale Real Madrid er besta lið Evrópu í tíunda skiptið. EITT STÓRT BROS Gareth Bale naut sín vel með Meistaradeildarbikarinn í leikslok í Lissabon. MYND/GETTY FÓTBOLTI Ögmundur Kristinsson, fyrirliði Fram, er leikmaður fimmtu umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins, en hann átti frábæran leik í marki Fram þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik á gervigrasvellinum í Laugardal. „Það var nóg að gera í búrinu og ég gekk sáttur frá leiknum, þrátt fyrir að maður hefði verið ánægðari með þrjú stig heldur en eitt,“ sagði Ögmundur í samtali við Frétta- blaðið í gær. Fram situr í 9. sæti Pepsi-deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki. Ögmundur kveðst nokkuð sáttur með byrjun liðsins. „Þetta er búið að ganga fínt. Þetta hafa verið miklar baráttuleikir eins og oft vill verða í þessum fyrstu umferðum. Við erum búnir að spila marga góða hálfleiki, en við höfum kannski ekki enn náð að spila tvo svoleiðis í einum og sama leiknum. Ögmundur var valinn í landsliðs- hópinn fyrir vináttuleikina gegn Austurríki og Eistlandi sem fara fram 30. maí og 4. júní næstkomandi. Markvörðurinn öflugi segir það mikinn heiður. „Að fá kall í landsliðið er einn mesti heiður sem fótboltamanni getur hlotnast og ég er virkilega stoltur af því. Maður byrjar að standa sig vel með sínu félagsliði og þegar það gengur vel fær maður vonandi sæti í landsliðinu. Ég fer ekkert leynt með það að ég vil vera markmaður númer eitt hjá Íslandi og fá að spila,“ sagði Ögmundur að lokum. - iþs Ætlar sér að verða markvörður númer eitt hjá Íslandi MIKILVÆGUR FYRIR FRAM Ögmundur Kristinsson var góður gegn Blikum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STRÁKARNIR ÞORA EKKI Í BEKKPRESSUKEPPNI Fanney Hauksdóttir sést hér í World Class á Seltjarnar- nesi þar sem hún eyðir miklum tíma í æfingar. FRÉTTBLAÐIÐ/DANÍEL Lyft ir meira en tvöfaldri líkamsþyngd Fanney Hauksdóttir, heimsmeistari unglinga í bekkpressu, er óhrædd við að setja stefnuna á heimsmetið og fl eiri HM-gull. Kærastinn er fyrir löngu búinn að játa sig sigraðan í lyft ingasalnum. Hún vill ekki sjá fæðubótarefni og treystir bara á matinn hennar mömmu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.