Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 5
Hjá Fjarðaáli eru árlega framleidd um 344 þúsund tonn af
hreinu gæðaáli og álblöndum. Álið er notað í byggingar-
iðnaði og samgönguiðnaði, svo sem við framleiðslu á
bílum, flugvélum, járnbrautalestum og geimferjum. Fjarðaál
framleiðir einnig álvíra sem eru m.a. notaðir í ýmsar gerðir
háspennustrengja.
Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 95 milljarða króna á árinu 2013.
Af útflutningstekjum Fjarðaáls urðu um 35% eftir í landinu,
eða tæpir 33 milljarðar króna, m.a. í formi opinberra gjalda,
launa, innkaupa frá innlendum birgjum á vöru og þjónustu auk
samfélagsstyrkja. Alls hafa greiðslur Fjarðaáls vegna kaupa
á aðföngum innanlands til síðustu áramóta numið um 193
milljörðum króna frá því að fyrirtækið tók til starfa hér á landi
árið 2007.
Á árinu 2013 greiddi Fjarðaál 1,5 milljarða króna í opinber
gjöld til ríkisins og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Starfsfólk
Fjarðaáls greiddi um 1,4 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar
til ríkis og sveitarfélaga.
Þrjú ár tók að byggja álverið, byggingarkostnaður nam um 220
milljörðum króna. Það eru þekktar aðstæður í rekstri fyrirtækja
með miklar nýfárfestingar að uppsafnað tap, háar afskriftir
og háar afborganir af lánum valda því að ekki er greiddur
tekjuskattur fyrstu rekstrarárin. Tekjuskattur er eingöngu einn
liður í framlagi fyrirtækisins til þjóðarbúsins.
Hjá Fjarðaáli og verktökum á álverssvæðinu vinna um 930
manns. Fjarðaál greiddi um 5,1 milljarð króna í laun og
launatengd gjöld árið 2013. Frá árinu 2007 hefur verið varið
rúmum 13 milljörðum króna til fjárfestinga vegna starfseminnar,
þar af rúmum einum milljarði árið 2013.
Kynntu þér upplýsingar í nýju staðreyndaskjali um rekstur Alcoa
Fjarðáls á árinu 2013. Þú finnur þær á alcoa.is.
Það munar um
tæpa 200 milljarða
– á aðeins 7 árum
www.alcoa.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
A
LC
6
17
06
1
0/
12