Fréttablaðið - 02.06.2014, Side 1
KOSNINGAR Formlegar viðræður um
myndun meirihluta fjögurra flokka
í borgarstjórn Reykjavíkur hefjast
í dag. Dagur B. Eggertsson, odd-
viti Samfylkingarinnar, og S. Björn
Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar,
áttu fund í gær og ákváðu að gang-
ast fyrir meirihlutaviðræðum ásamt
Vinstri grænum og Pírötum.
Þessir flokkar hafa níu menn af
fimmtán í borgarstjórn. Gengið er
út frá því að Dagur B. Eggertsson
verði borgarstjóri ef samkomulag
næst, en fram kom í umræðum odd-
vita flokkanna á RÚV í gærkvöldi að
S. Björn Blöndal sæktist ekki eftir
borgarstjórastólnum.
„Ég vil að allir fulltrúar vinni að
sameiginlegri sýn og ég hef trú á
að þessir fjórir flokkar finni hana,“
segir Dagur.
Vonbrigði Bjartrar framtíðar
Björn tekur undir orð Dags um
vænlegt samstarf flokkanna fjög-
urra þótt hann geti ekki leynt von-
brigðum sínum með kosningaúrslit-
in. Björt framtíð fékk eingöngu tvo
borgarfulltrúa, en Besti flokkurinn
fékk sex í síðustu kosningum.
Sviptingar urðu í nokkrum
stærstu sveitarfélögunum í kosning-
unum á laugardag. Meirihluti Sam-
fylkingar og VG í Hafnarfirði féll en
í gær voru engar formlegar viðræð-
ur hafnar um meirihlutasamstarf.
Þar er Björt framtíð í lykilstöðu
með tvo fulltrúa, en Sjálfstæðis-
flokkurinn stærstur í bæjarstjórn
með fimm menn.
Sviptingar í stórum bæjum
Í Kópavogi hélt meirihluti Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks velli.
Sjálfstæðismenn hafa þó þreifað
á samstarfi við aðra flokka, þótt
framsóknarmenn vilji halda áfram
í meirihluta.
Á Akureyri féll meirihluti L-
listans en fulltrúar hans hafa hafið
viðræður við Framsóknarflokk og
Samfylkingu um meirihlutasam-
starf.
Í Reykjanesbæ féll meirihluti
Sjálfstæðisflokksins og hófust við-
ræður um myndun meirihluta
Frjáls afls, Beinnar leiðar og Sam-
fylkingar í gær.
Samfylkingin vann á og er stærsti
flokkurinn í Reykjavík en tapaði
fylgi víða annars staðar, þannig að
fulltrúum flokksins í sveitarstjórn-
um fækkar um sjö.
Sjálfstæðisflokkurinn styrkti
víða stöðu sína og fjölgar sveitar-
stjórnarfulltrúum hans úr 117 í 120.
Flokkurinn fékk nærri þrjá fjórðu
atkvæða í Vestmannaeyjum, vann
hreinan meirihluta í Mosfellsbæ
og á Akranesi og hélt meirihluta í
Árborg, Garðabæ og á Seltjarnar-
nesi. Í Reykjavík fékk flokkurinn
hins vegar sína verstu kosningu frá
upphafi.
VG tapaði víða fylgi og fækk-
ar fulltrúum flokksins úr fjórtán í
níu. Framsóknarflokkurinn vann
sinn stærsta sigur í Reykjavík frá
1974 og bætir víða við sig, fer úr 45
mönnum í 49.
Björt framtíð, sem býður nú fram
til sveitarstjórnar í fyrsta sinn, fær
ellefu fulltrúa kjörna á landinu.
Píratar náðu hins vegar eingöngu
inn manni í Reykjavík.
- sjá síður 4 til 16
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
18
Þ egar fætur eru lokaðir ofan í skóm allan daginn þá kemur oft óæskileg lykt af skónum og fótunum. „Til að koma í veg fyrir þetta er mikilvægt að hugsa vel um fæturna og einnig skóna. Scholl skó- og fótaspreyin halda fótum þínum og skónum ferskum allan daginn,“ segir Magðalena S. Kristjánsdóttir, vörumerkja stjóri hjá Halldóri Jóns-syni ehf. sem flytur inn Scholl-fóta-vörurnar
FERSKIR FÆTUR HALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Skó- og fótaspreyin frá Scholl sem koma í
veg fyrir óæskilega lykt af skóm og fótum og halda þeim ferskum alla daga.
GÓÐAR VÖRUR FRÁ SCHOLL
Magðalena S. Kristjáns-dóttir hjá Halldóri Jóns-syni ehf. segir skó- og fótaspreyin frá Scholl halda fótunum og skónum ferskum allan daginn.
MYND/VALLI
SCHOLL-FÓTASPREY – FERSKIR, ÞURRIR OG ILMANDI FÆTUR Fótasprey sem eyðir óæskilegri lykt og heldur fótunum þurrum. Reglu-leg notkun kemur í veg fyrir að lykt komi aftur. Ferskir, þurrir og il d
YLJA Í HLJÓMAHÖLLINNIHljómsveitin Ylja heldur tónleika í Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ annað kvöld kl. 21. Einnig koma fram
Snorri Helgason og hljómsveit ásamt tónlistar-
manninum Lindy Vopnfjörð sem kemur frá Kan-
ada. Bjartey Sveinsdóttir og Gígja Skjaldardóttir
eru í framvarðarsveit hljómsveitarinnar.FASTEIGNIR.IS
2. JÚNÍ 2014
22. TBL.
Glæsilegar nýjar íbúðir
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Landmark leiðir þig heim!
Sími 512 4900
landmark.is Benedikt
Ólafsson
sölufulltrúi
Sími 661 7788
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930
Elín Viðarsdó r Lögg. fasteignasali
Efstasund - 49,9m Leiðhamrar - 49,9m
Skip möguleg á minni eign í
sama hver (með bílskúr)
2 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Fólk
Sími: 512 5000
2. júní 2014
128. tölublað 14. árgangur
Ég vil að allir full-
trúar vinni saman að
sameiginlegri sýn og ég
hef trú á að þessir fjórir
flokkar finni hana.
Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík
SKOÐUN Guðmundur Andri skrifar
um sigur Framsóknar í Reykjavík og
mannréttindi. 19
LÍFIÐ Söngkonan Ásdís María Viðars-
dóttir skemmtir með Snoop Dogg í
júní. 30
SPORT Átján ára kylfingur bætti
vallarmetið á Strandavelli á Hellu í
gær. 27
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
HEFJA VIÐRÆÐUR Í DAG Oddvitar flokkanna fjögurra sem hyggjast mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hittust í fyrsta sinn eftir kosningarnar í sjónvarpsumræð-
um á Stöð 2 í gærkvöldi. Björn Blöndal, Halldór Auðar Svansson, Dagur B. Eggertsson og Sóley Tómasdóttir ræddu saman á léttu nótunum áður en sest var niður í mynd-
verinu að skeggræða kosningaúrslitin. Formlegar meirihlutaviðræður hefjast í dag. FRETTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjórir flokkar ræða
samstarf í Reykjavík
Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata
hafnar í Reykjavík. Nýir meirihlutar á Akureyri, í Hafnarfirði og Reykjanesbæ.
Stjórnarflokkarnir vinna víða á. Björt framtíð með ellefu fulltrúa í sveitarstjórnum.
Bolungarvík 7° NA 3
Akureyri 12° SA 4
Egilsstaðir 16° SSA 2
Kirkjubæjarkl. 11° SA 2
Reykjavík 11° SV 4
Hlýjast austast Í dag má búast við
hægri suðlægri eða breytilegri átt.
Nokkuð bjart NA- og A-til, annars skýjað
og stöku skúrir. 4
Ótrúlegur bati
Ævar Sveinn Sveinsson féll niður
af fimm hæða húsi og lenti á
báðum fótum á steinsteyptri stétt
í vinnuslysi í febrúar. Hann hefur
náð ótrúlegum bata og gengur nú
óstuddur. 2
Meirihlutinn heldur í Garðabæ
D-listinn vann stórsigur í Garðabæ en
bæjarstjórinn náði ekki inn. 4
Konur í meirihluta Konur skipa í
fyrsta skipti meirihluta í bæjarstjórn
á Akureyri. 6
Ný stjórn í Reykjanesbæ Tuttugu
ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesbæ er lokið. 10.
STJÓRNMÁL Boðað hefur verið
til fundar 11. júní næstkomandi
þar sem vinna á að stofnun nýs
stjórnmálaflokks undir heitinu
Viðreisn.
Stofnun flokksins hefur staðið
til í nokkurn tíma, en um er
að ræða frjálslyndan flokk á
vegum Benedikts Jóhannes-
sonar stærðfræðings og fleiri.
Flokkurinn hefur meðal ann-
ars á dagskrá að ljúka aðildar-
viðræðum við ESB og greiða
atkvæði um aðildarsamning. - bá
Nýr stjórnmálaflokkur:
Undirbúnings-
fundur í júní