Fréttablaðið - 02.06.2014, Blaðsíða 2
2. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Ég er bara farinn að labba
um, get að vísu ekki hlaupið enn,
en ég keypti mér reiðhjól. Þessu
fylgja auðvitað verkir, sjúkraþjálf-
un og píningar en þetta er allt að
koma,“ segir Ævar Sveinn Sveins-
son, 24 ára smiður úr Árbænum.
Ævar lenti í vinnuslysi í Kóra-
hverfinu í febrúar þegar hann
féll 15 metra niður á steinsteypta
stétt. Hann hlaut opið beinbrot á
báðum ökklum, hryggbrotnaði og
mjaðmagrindarbrotnaði og var
fluttur í skyndi á sjúkrahús þar
sem hann gekkst undir aðgerð sem
tók níu klukkustundir. Við tók end-
urhæfing á Grensásdeild.
„Þetta hefur verið heldur skjót-
ur bati. Ég byrjaði á því að losna
við grindina framan á mjöðminni
og mátti þá byrja að labba í vatni,
þannig er maður léttari. Svo fékk
ég leyfi til þess að fara í tíu mín-
útna göngutúr á dag en þá blés
auðvitað allt út og bólgnaði svo
að þess á milli var ég bara í hjóla-
stólnum. Svo fór ég á hækjurnar
en er nú búinn að losna við þær,“
segir Ævar.
Hann segir að frá upphafi hafi
hann verið staðráðinn í því að ná
fullum bata. „Tímaramminn sem
læknarnir gefa manni er alltaf
rúmur. Þeir reiknuðu með því að
ég gæti kannski farið að ganga í
haust en mér tókst þetta á fjórum
mánuðum, sem er alveg frábært.“
Ævar hefur stundað mótókross af
kappi um langt skeið og vill ólmur
komast aftur á hjólið. Næst á dag-
skrá er hins vegar sólarlandaferð
með kærustunni, Halldísi Sævars-
dóttur, sem staðið hefur þétt við
bakið á honum – og svo meiri end-
urhæfing. kristjana@frettabladid.is
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN
ÓTRÚLEGT FALL Á myndinni má sjá hversu hátt fallið var. Þó svo að þetta sé ekki
sama bygging og sú sem Ævar féll fram af er um sömu hæð að ræða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Féll fimmtán metra
en gengur óstuddur
Ævar Sveinn Sveinsson féll niður fimm hæðir og lenti á báðum fótum á stein-
steyptri stétt í vinnuslysi í febrúar síðastliðnum. Ævar var staðráðinn í að ná
fullum bata og nú, fjórum mánuðum síðar, er hann farinn að ganga um óstuddur.
ÁRNESHREPPUR Kosningar gengu
vel fyrir sig í Árneshreppi,
fámennasta sveitarfélagi lands-
ins, að sögn Ingólfs Benedikts-
sonar, formanns kjörstjórnar í
hreppnum. Kosið var óhlutbund-
inni kosningu. Guðlaugur Ágústs-
son hlaut flest atkvæði eða 25.
Kjörsókn var 72,3 prósent og
kusu 34 af þeim 47 sem voru á
kjörskrá.
Kjörstaður var opinn frá hálf
ellefu að morgni til hálf sjö að
kvöldi. Um klukkutíma tók að
telja atkvæðin. - ih
47 á kjörskrá í Árneshreppi:
Klukkutíma tók
að telja atkvæði
KRÍMSKAGI Krímskagi hefur tekið upp rússnesku
rúbluna sem gjaldmiðil. Þetta er skref í átt til
frekari aðlögunar héraðsins að reglum og hagkerfi
Rússneska ríkjasambandsins, en skaginn var inn-
limaður í Rússland í mars.
Samkvæmt upplýsingum frá rússneska seðla-
bankanum munu verslanir á Krímskaga nú aðeins
sýna verð í rúblum. Þar til nú hefur verslun á Krím-
skaga verið í aðlögunarferli þar sem bæði rúblan og
hin úkraínska hryvnia voru gjaldgengir miðlar.
Sem stendur berst nýkjörinn forseti Úkraínu,
Petro Porosjenkó, við að halda þjóðinni saman og
rétta af hagkerfið.
Aðskilnaðarsinnar í austurhluta landsins vilja
innlimun úkraínskra bæja og sveita í ríkjasamband
Rússa.
Vladyslav Seleznyov, talsmaður varnarmálaráðu-
neytis Úkraínu, sagði í samtali við Bloomberg-
fréttastofuna að úkraínskar herdeildir héldu áfram
að berjast gegn aðskilnaðarsinnuðum uppreisnar-
mönnum. Margir þeirra beita hræðsluáróðri og
hryðjuverkum til að vekja athygli á málstað sínum.
Embættismenn Evrópusambandsins og Banda-
ríkjanna hafa sakað forseta Rússlands, Vladimír
Pútín, um að ýta undir óeirðirnar í austurhéruðun-
um. Pútín á að hafa gerst sekur um að sjá aðskiln-
aðarsinnum fyrir fjármagni, skotvopnum og liðs-
auka. - kóh
Úkraínsk mynt ekki lengur gjaldgeng á Krímskaga eftir innlimunina:
Taka upp rússneska rúblu
HERNAÐARÆFINGAR Aðskilnaðarsinni æfir sig að skjóta úr
vélbyssu í nágrenni við Donetsk í austanverðri Úkraínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
HÁTÍÐARHÖLD Sjómannadagurinn var víða haldinn hátíðlegur í gær.
Fjölbreytt dagskrá var í boði fyrir alla fjölskylduna og hetjur hafsins
voru venju samkvæmt heiðraðar í tilefni dagsins. Dagurinn var örlítið
votur víðast hvar en vætan kom þó ekki í veg fyrir skemmtileg hátíð-
arhöld um land allt.
Í Reykjavík var stútfull dagskrá alla helgina þar sem hafnardagur-
inn og sjómannadagurinn hafa verið sameinaðir undir nafninu Hátíð
hafsins. - ka
Landsmenn héldu upp á sjómannadaginn víða um land:
Hetjur hafsins heiðraðar í gær
SIGLT UM SJÓINN Félagar í Kayakklúbbnum kepptu í sprettróðri við Reykjavíkur-
höfn en upphafs- og endamarkið var við Sjóminjasafnið. FÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍSINDI Teymi vísindamanna í
Boston hefur nú tekist í fyrsta
sinn í sögu læknisfræðinnar að
prenta út æðar í þrívídd.
Sú undirgrein læknisfræðinn-
ar sem fjallar um að lækna eða
græða ýmiss konar vefi eins og
húð, vöðva og æðar hefur þróast
hratt á síðustu árum.
Útprentuðu æðarnar eru gerð-
ar úr eins konar vatnskenndu
hlaupi, sem er gert með háþró-
uðum lífeindaþrívíddarprentara.
Rannsóknarteymið segir mögu-
legt að í framtíðinni verði þrí-
víddarprentarar mikið notaðir
við vefjalækningar. - kóh
Æðar úr þrívíddarprentara:
Prentaðar æðar
Er ekkert hálfvitalegt að fá
gullplötu sjö árum síðar?
„Nei, nei, er ekki sagt að morgun-
stund gefi gull í mund? Það er ekki
komið hádegi hjá Hálfvitunum.“
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir fékk á
dögunum afhenta gullplötu fyrir fyrstu plötu
hljómsveitarinnar sem kom út árið 2007.
Sævar Sigurgeirsson er einn meðlima hljóm-
sveitarinnar.
EVRÓPUSAMBANDIÐ David Came-
ron hefur hótað því að Bretar
kunni segja skilið við Evrópu-
sambandið verði Jean-Claude
Juncker kjörinn forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins. Þetta er fullyrt í þýska
miðlinum Der Spiegel.
Juncker er fulltrúi stærsta
flokkahópsins í nýafstöðnum
kosningum til Evrópuþingsins.
Mið-og hægriflokkahópur Junck-
ers hlaut 213 af 751 þingsæti í
kosningunum.
Cameron á að hafa sagt að
gamlir stjórnmálamenn gætu
ekki leyst vandræði ESB. Spiegel
segir að ráðherrann hafi sagt að
yrði Juncker forseti kynnu Bret-
ar að flýta kosningum um áfram-
haldandi veru Breta í ESB sem
áætlað er að fari fram 2017.
David Cameron mun hafa til-
kynnt óánægju sína þjóðarleið-
togum annarra Evrópusambands-
ríkja. Cameron er sagður vera
ósáttur við að svo eindreginn
stuðningsmaður frekara Evrópu-
samstarfs verði forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar.
Hann vill að nýr forseti taki
tillit þeirra kjósenda sem eru
ónægðir með hvaða stefnu Evr-
ópusambandið hefur tekið.
Samkvæmt heimildum The
Guardian á Cameron að hafa
samfært Angelu Merkel um að
draga stuðning sinn við Juncker
til baka og koma þar með í veg
fyrir að hann verði skipaður for-
seti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins. - ih
David Cameron er ósáttur við fyrirhugaðan forseta framkvæmdastjórnar ESB:
Hótar að flýta þjóðaratkvæði
ÓSÁTTUR CAMERON Forsætisráðherra
Bretlands hótar að flýta þjóðaratkvæði
um ESB verði næsti forseti fram-
kvæmdastjórnar sambandsins honum
ekki að skapi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS