Fréttablaðið - 02.06.2014, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 02.06.2014, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 2. júní 2014 | FRÉTTIR | 11 ÍSAFJARÐARBÆR Gísli Halldór Hall- dórsson verður bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar en hann var bæj- arstjóraefni Í-listans sem náði hreinum meirihluta í kosningunum. Gísli er starfandi formaður bæj- arráðs fyrir Sjálfstæðisflokk. Hann bauð sig þó ekki fram í prófkjöri flokksins í vetur og hefur sagt ástæðuna vera skort á samhljómi við aðra sjálfstæðismenn. Í kjöl- farið tilkynntu hann og Arna Lára Jónsdóttir, oddviti Í-flokksins, að hann yrði bæjarstjóraefni flokks- ins en hann tók þó ekki sæti á list- anum. „Hann hefur langa reynslu af sveitarstjórnarmálum og við treystum honum mjög vel til verks- ins,“ segir Arna Lára en aldrei kom til greina að hún yrði sjálf bæjar- stjóraefni flokksins. Arna Lára er að vonum ánægð með niðurstöður kosninganna enda í fyrsta skipti í átján ár sem Sjálf- stæðisflokkurinn nær ekki meiri- hluta í bæjarstjórn. Hún segist telja að fólk hafi verið tilbúið í breyting- ar og að flokkurinn muni byrja á að einbeita sér að atvinnu- og fræðslu- málum bæjarins. - ebg Í-listinn með meirihluta eftir átján ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins: Söguleg úrslit í Ísafjarðarbæ FERÐAMENNSKA Vatnajökulsþjóð- garður hefur fengið 40 milljóna króna styrk frá iðnaðar-og við- skiptaráðuneytinu vegna upp- byggingar göngustíga við Detti- foss. Um er að ræða um 260 metra langan göngupall og nýjan útsýn- ispall við fossinn að vestanverðu. Landeigendur Reykjahlíðar hafa haft áform um að taka gjald af ferðamönnum á svæðinu til að byggja upp göngustíga og útsýn- ispall. Nú hefur iðnaðarráðuneytið ákveðið að hefja uppbyggingu. – sa 260 metra göngupallur: 40 milljónir í göngustíga KOSNINGAR Bloggarinn Eva Hauksdóttir segist undrandi á því að enginn frambjóðandi hafi þegar kært framboð Sveinbjarg- ar Birnu Sveinbjörnsdóttur. Sveinbjörg, sem er oddviti Framsóknar og flugvallarvina, er búsett í Kópavogi, en með skráð lögheimili í Reykjavík. Þjóðskrá athugar nú hvort skráningin sé lögmæt. „Ég tel engan vafa um að þetta framboð hafi verið ólöglegt,“ segir Eva. „Mér finnst bara afskaplega sorglegt að það sé töluvert stór hópur sem vill mismuna útlend- ingum á grundvelli trúar og menningarbakgrunns,“ segir Eva jafnframt. - sks Eva Hauks er undrandi: Framboð vafa- laust ólögmætt HVUMSA Eva skilur ekki hvers vegna aðrir frambjóðendur hafa ekki þegar kært framboð Sveinbjargar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKÁK Alþjóðlegi meistarinn Guð- mundur Kjartansson sigraði á Íslandsmeistaramótinu í skák 2014. Með frammistöðu sinni tryggði hann sér áfanga að stórmeistara- titli. Guðmundur var sjöundi í stiga- röð keppenda áður en mótið hófst svo að árangur hans kom allflest- um í opna skjöldu. Guðmundur hlaut sex og hálfan vinning í níu skákum, vinningi meira en Héðinn Steingrímsson og Hannes Hlífar Stefánsson sem lentu í 2.-3. sæti. Sex stórmeistar- ar tóku þátt á mótinu. - sa Sigraði á Íslandsmeistaramóti: Guðmundur skákmeistari SEYÐISFJÖRÐUR Ótrúlega mjótt var á munum í sveitarstjórnar- kosningunum á Seyðisfirði um helgina. Munurinn á þeim þrem- ur flokkum sem voru í framboði var einungis sex atkvæði. Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði, eða 144, sem skilaði honum þremur bæjar- fulltrúum. Næstur kom Seyðis- fjarðarlistinn með 142 atkvæði og tvo bæjarfulltrúa. Framsóknar- flokkurinn rak lestina með 138 atkvæði og tvo bæjarfulltrúa. - ih Fylgið hnífjafnt á Seyðisfirði: Munaði aðeins sex atkvæðum ÍSAFJÖRÐUR Sveitarstjórnarkosningar Ísafjarðarbær % 2010: 5 4 L– L-listinn 44 3 4 32,3 1 1 15,6 0 8,2 MEIRIHLUTI FALLINN 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.