Fréttablaðið - 02.06.2014, Page 16
2. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 16
➜ Fylgi Samfylkingar
og Bjartrar framtíðar
var ofmetið að
meðaltali um ríflega 3
prósentustig. Fylgi Pírata
var einnig ofmetið í
öllum könnunum.
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Með biðpósti sleppurðu við að pósturinn
hlaðist upp heima hjá þér meðan þú ert í fríi.
Pantaðu biðpóst á www.postur.is eða á næsta
pósthúsi og þú velur hvar pósturinn þinn bíður
eftir þér.
www.postur.is
PANTAÐU BIÐPÓST
FYRIR SUMARFRÍIÐ!
KOSNINGAR Talsvert meiri munur
var á úrslitum borgarstjórnar-
kosninganna í Reykjavík og skoð-
anakönnunum en í alþingiskosn-
ingunum fyrir ári. Þetta fullyrðir
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann
á Akureyri.
Fjögur fyrirtæki birtu kannanir
síðustu tvo dagana fyrir kosning-
arnar. Fylgi Sjálfstæðisflokks var
að meðaltali vanmetið um 3,9 pró-
sentustig og Framsóknarflokks
um 3,6 prósentustig.
Fylgi Samfylkingar og Bjartrar
framtíðar var ofmetið að meðaltali
um ríflega 3 prósentustig. Fylgi
Pírata var einnig ofmetið í öllum
könnunum.
Grétar telur skekkjuna orsakast
af því að ungt fólk hafi ekki skilað
sér á kjörstað. „Kjósendur Pírata
og Bjartrar framtíðar eru almennt
yngri en kjósendur Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.“
Grétar bætir við: „Skili unga
fólkið sér ekki
á kjörstað er
hætta á skekkju
í kö n nu nu m
samanborið við
niðurstöðu kosn-
inga.“
Mestur munur
var á könnun
Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands og
niðurstöðunum í Reykjavík. Að
meðaltali 3,9 prósent. Munur á
niðurstöðum annarra kannana,
þar á meðal Fréttablaðsins og
Stöðvar 2, var um 2,5 prósent.
Grétar segir ekki við könnun-
arfyrirtækin að sakast. „Skoð-
anakannanir kanna viðhorf
þversniðs kjósenda. Ef stór-
ir kjósendahópar greiða ekki
atkvæði er hætta á að kannan-
ir gefi ranga mynd.“ Kjörsókn
í Reykjavík var 63 prósent og
hefur ekki verið minni í áratugi.
ingvar@frettabladid.is
Dræm kjör-
sókn skekkir
niðurstöður
Stjórnmálafræðiprófessor segir meiri mun á niður-
stöðum kannana og kjörfylgi í Reykjavík en áður.
Dræm kjörsókn ungs fólks sé líklegasta skýringin.
GRÉTAR
ÞÓR EYÞÓRSSON
Sveitarstjórnarkosningar
SKOÐANAKANNANIR
%
REYKJAVÍK „Það reyndu bara allir
að leysa þetta mál, öll kjörstjórn-
in og allir sem voru í Ráðhúsinu.
Við vorum búin að fara í gegnum
marga tugi kjördeilda þegar vill-
an kom í ljós,“ segir Tómas Hrafn
Sveinsson, formaður kjörstjórnar
í Reykjavík, en innsláttarvilla úr
einni kjördeild var ástæða þess að
ekki var hægt að birta lokatölur
í Reykjavíkurkjördæmi fyrr en
klukkan að ganga átta í gærmorg-
un.
Tómas segir að talningin hafi
í raun og veru gengið vel fyrir
sig, henni hafi verið lokið klukk-
an þrjú og stefnt hafi verið að
því að birta lokatölur um klukk-
an hálf fjögur. Tölurnar stemmdu
hins vegar ekki, 40 atkvæðum
var ofaukið og því þurfti að fara
í gegnum öll gögn upp á nýtt.
Aldrei var hins vegar um nein
eiginleg atkvæði að ræða en ein
kjördeildin hafði hreinlega slegið
inn vitlausa tölu.
Útsendingin klúðraðist einnig
þegar Tómas reyndi öðru sinni að
lesa upp atkvæðin úr Ráðhúsinu
en þá þurfti hann þrjár tilraun-
ir til að greina frá því hvernig
atkvæðin féllu. „Það sem gerð-
ist var að ég fékk vitlaust blað í
hendurnar og byrjaði að lesa, en
þá vantaði inn auðu seðlana. Þá
fór allt í steik hjá RÚV og þeir
klipptu á mig áður en ég náði að
klára þó svo að ég væri með allt
klárt. Ég þurfti því að koma aftur
inn í þriðja skipti,“ segir Tómas,
sem segist þó hafa náð að halda
ró sinni þrátt fyrir alla dramatík-
ina. „Svona reikningsskekkjur og
innsláttarvillur geta alltaf komið
upp, því miður. Það tók bara lang-
an tíma að finna villuna í þetta
skipti og svoleiðis er það bara.“
Athygli vakti einnig hversu miklar
sveiflur voru í talningu atkvæða í
Ráðhúsinu en Tómas segir einung-
is tilviljun hafa ráðið því hvern-
ig atkvæðin röðuðust. „Við velj-
um bara kassa af handahófi og
teljum. Talningin var því gerð
nákvæmlega eins og áður hefur
verið gert í þessum kosningum.“
kristjana@frettabladid.is
Týndu atkvæðin í
Ráðhúsinu ekki til
Fótur og fit varð uppi í talningu atkvæða úr borgarstjórnarkosningunum þegar í
ljós kom að 40 atkvæðum var ofaukið. Mikil leit hófst að týndu atkvæðunum en
síðar kom í ljós að einungis var um innsláttarvillu frá einni kjördeildinni að ræða.
ATKVÆÐIN KEYRÐ Í HÚS Töluvert verk var að koma atkvæðunum af kjörstöðum og
niður í Ráðhús. Það reyndist þó enn meira verk að telja atkvæðin. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÁIR Á KJÖR-
STAÐ Kjör-
sókn hefur
ekki verið
verri í sveitar-
stjórnarkosn-
ingum hér á
landi síðan
1950.
36,6 37,3
31,2
35,5
31,9
MMR Capacent Gallup/Ríkisútvarpið Fréttablaðið/Stöð 2
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands/Morgunblaðið Kjörfylgi í Reykjavík
Framsóknarfl okkur Sjálfstæðisfl okkur Björt framtíð
6,7 6,9
9,2
5,5
10,7
21,4
22,6
22,2
20,9
25,7
18,2
19,9
15,617,9
18,6
Samfylkingin Vinstri græn Píratar
7,9
6,1
10
5,8
8,3
6,3
9,2
7 5,9
7,5