Fréttablaðið - 02.06.2014, Síða 35
MÁNUDAGUR 2. júní 2014 | SKOÐUN | 19
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ
.
Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir
einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu.
Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
*
Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
5 stjörnu öryggi!
Staðan er sú í dag að það er mun dýr-
ara fyrir ungt fólk að flytja að heim-
an en á árum áður. Velmeinandi, en
íþyngjandi, reglugerðir, lóðaskortur
og háir skattar stuðla að háu hús-
næðisverði svo erfitt er fyrir einka-
aðila að koma til móts við þarfir
ungs fólks sem vill hentugt húsnæði
á viðráðanlegu verði.
Reglugerðir
Á Íslandi er bannað að byggja hag-
kvæmar íbúðir. Reglugerðir sem
settar hafa verið takmarka mögu-
leika fólks á að byggja smáar og hagkvæmar íbúð-
ir. Til að mynda þurfa að vera til staðar að minnsta
kosti fjögurra fermetra svalir og geymsla, bílastæði,
þvottaherbergi og sjö fermetra eldhús. Fjöldi bygg-
ingarreglugerða er efni í bók, en ekki pistil, svo ég læt
þessi dæmi duga. Ekki leikur þó vafi á því að aflétta
þarf og endurhugsa byggingarreglugerðir frá grunni.
Stjórnmálamenn eiga ekki að ákveða fyrir fólk hvaða
kostum íbúðir eiga að vera gæddar. Núverandi fyrir-
komulag hækkar húsnæðisverð og dregur úr fjöl-
breytileika á húsnæðismarkaðnum.
Lóðaskortur
Fyrir 15 árum var lóðaverð 4% af byggingarkostn-
aði fasteignar en í dag er sami kostnaðarliður 17%.
Afleiðingin af þessu er hækkun fasteignaverðs. Borg-
aryfirvöld eiga ekki að búa til lóðaskort til að hækka
lóðaverð borgarsjóði til hagsbóta. Ef við viljum ná
húsnæðisverði niður er ljóst að borgaryfirvöld verða
að auka framboð af lóðum.
Lóða- og gatnagerðargjöld
Borguð eru jafnhá lóða- og gatnagerðargjöld vegna
35 fermetra húsnæðis og 135 fermetra húsnæðis, en
vegna þess er hagstæðara að byggja stórt húsnæði
fremur en smátt. Binda þarf lóða- og gatnagerðar-
gjöld við fermetrafjölda íbúðar og búa þannig til
hvata fyrir einkaaðila til að byggja íbúðir af öllum
stærðum.
Þetta er ekki flókið. Hið opinbera gerir einkaaðilum
ókleift að koma til móts við þarfir neytenda og notar
það nú sem átyllu fyrir aukin afskipti af húsnæðis-
markaðnum. Fjölga þarf íbúðum og lækka leiguverð –
en ekki á kostnað skattgreiðenda.
Yfi rvöld koma í veg
fyrir að ungt fólk
fl ytji að heiman
HÚSNÆÐI
Ingvar S.
Birgisson
formaður
Heimdallar
Hafi Samfylkingin verið ótvíræður sigur-
vegari í Reykjavík var Framsókn hinn tví-
ræði sigurvegari. Hún fór undan í flæm-
ingi þegar knúið var á um skýr svör um
moskumálið, sagði það sem hentaði hverju
sinni, talaði tungum tveim en undirtext-
inn var ævinlega sá sami: Hér er múslima-
ógn sem enginn þorir að tala um nema við.
Á köflum mátti skilja málatilbúnað-
inn sem svo að kosið væri um það hvort
sett yrðu sjaríalög á næstunni og þess að
vænta að farið yrði að höggva hendur af
þjófum og drekkja konum fyrir hórdóm,
eins og kristnir menn gerðu að vísu um
aldir. Kosningabarátta Framsóknar í höf-
uðborginni var kaldrifjuð. Skeytingarleys-
ið um málefni og raunveruleg úrlausnar-
efni í borginni var algjört.
Kannski kominn tími til að ræða „þessi
mál“, eins og það var orðað um daginn í
málgagni Framsóknar, Reykjavíkurbréfi
Moggans.
Mannréttindi
Mannréttindi ná til allra. Þau eru líka
handa „hinum“. Þau eru líka handa fólki
sem manni líkar ekkert sérstaklega vel
við. Þau eru meira að segja handa alveg
ómögulegu fólki, jafnvel beinlínis vondu
fólki. Þau eru allsherjarregla. Þau eru
ekki umbun fyrir góða hegðun heldur
sjálfur grundvöllurinn sem þjóðfélag
okkar hvílir á: við fæðumst til þeirra og
þurfum að fyrirgera rétti okkar til þeirra
með glæpsamlegri hegðun; erum þá sett
á bak við lás og slá um skeið og öðlumst
þau á ný þegar við erum frjáls. Það er ekki
hægt að gera ráð fyrir því fyrirfram að
við munum ekki eiga þau skilið. Og það er
ekki hægt að láta kjósa um þau: meirihluti
þegnanna getur ekki kosið um mannrétt-
indi tiltekinna minnihlutahópa, eins og til-
laga Framsóknar í moskumálinu var ein-
hvern tímann farin að snúast um. Ég og
vinir mínir í götunni getum ekki kosið
um það hvort nýi nágranninn eigi að njóta
þeirra. Hann hefur þau óháð vilja okkar
og dyntum. Eins er það með trúmálin:
Meðlimir Þjóðkirkjunnar geta ekki greitt
atkvæði um það hvort eða hvernig til
dæmis mormónum skuli leyft að starfa.
Fari mormónar að lögum og reglum sam-
félagsins tryggir trúfrelsið þeim sama
rétt og öðrum til þess að tigna sína guði –
og boða þá – eins og þeir telja rétt að gera.
Þetta er reyndar prýðilega orðað í
stefnuskrá Framsóknarflokksins: „Við
berjumst fyrir mannréttindum, virðingu
fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni.
Við höfnum hvers konar mismunun sem
gerir greinarmun á fólki t.d. eftir kyn-
þætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kyn-
hneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum.
Við munum ávallt verja skoðana- og tján-
ingarfrelsi, trúfrelsi og friðhelgi einka-
lífs.“
„Kærleikurinn umber allt“
Frjálslyndi er eftirsóknarvert. Umburð-
arlyndi er dyggð. Það er ein meginstoð
hins opna samfélags þar sem tekist er á
um mál með rökræðum og deilur leidd-
ar til lykta með lögformlegum hætti.
Þetta táknar að við umberum fólk sem
við skiljum ekki eða jafnvel þolum ekki.
Að umbera eitthvað táknar ekki að maður
samþykki það skilmálalaust eða afsali sér
réttinum til að andæfa því, kjósi maður
það, heldur hitt að maður viðurkennir
rétt þess til að vera til. Manneskja getur
til dæmis verið með blátt hár, sem okkur
kann gersamlega að blöskra. Við getum
samt sem áður ekki hringt í lögregluna
og farið þess á leit við hana að hún skipi
viðkomandi að vera með eðlilegt hár.
Manneskja getur tilbeðið guð sinn með
skringilegum kokhljóðum og afkáraleg-
um hreyfingum. Okkur má alveg finn-
ast það sprenghlægilegt og við megum
tuða yfir því við kvöldmatarborðið, en
við getum ekki bannað fólki að vera til á
sínum eigin forsendum og við eigum að
sýna því háttvísi. Þetta er umburðarlyndi
– sem er dyggð. Það er ekki barnaskapur
og það er ekki veiklyndi heldur útheimt-
ir það staðfestu, þroska og hugrekki, að
virða rétt annarra til að vera öðruvísi
en maður sjálfur, berjast jafnvel fyrir
honum. Í kosningabaráttunni heyrðist
að kirkjur væru bannaðar í einhverjum
Arabalöndum, sem að vísu er rangt, en þó
svo væri: Þetta snýst um okkar samfélag
og hvernig við ætlum að hafa það, og hér
ríkir trúfrelsi.
Það er ekki dyggð í sjálfu sér að „segja
eitthvað sem ögrar“ eins og forsætis-
ráðherra hrósar frambjóðanda sínum í
Reykjavík fyrir; segi maður nógu frá-
munalega vitleysu gengur hún auðvitað
fram af einhverjum, en það gefur vit-
leysunni ekki gildi í sjálfu sér að hafa
gert það. Skoðanaglamur er eitt ofmetn-
asta fyrirbæri okkar tíma. Það er ekki
dyggð að næra og nærast á minnimáttar-
kennd fólks sem þarf að upplifa virði sitt
og sérleik sinn með neikvæðri upplifun
á öðrum. Slíkt er lítilmannlegt. Og nú í
byrjun 21. aldar eigum við ekki að standa
í trúarbragðadeilum. Við eigum ekki að
dæma aðra eftir sambandi þeirra – eða
sambandsleysi – við guðdóminn. Sam-
félagið á að hafa sínar leiðir til að grípa
inn í þegar trúarbrögð eru notuð til að
misnota varnarlitla einstaklinga í slíkum
hópum, kúga, áreita eða misbjóða með
öðrum hætti, eins og ótal dæmi sanna að
gerst hefur, þegar tilteknir einstakling-
ar taka sér vald yfir andlegu lífi margra
annarra. Öll þau dæmi sem við þekkjum
um slíkt eru hins vegar úr kristnum söfn-
uðum.
Enginn maður hér á landi hefur mér
vitanlega krafist þess að tekin verði
upp sjaríalög – og komi til þess skulum
við bara svara viðkomandi með viðeig-
andi hætti þegar þar að kemur. Ekkert í
framgöngu múslima á Íslandi réttlætir
það gjörningaveður sem magnað hefur
verið í kaldrifjuðum atkvæðaveiðum
Framsóknar. Ekkert hefur komið fram
sem bendir til þess að íslensku samfé-
lagi stafi frekari ógn af múslimum en
til dæmis sudoku-iðkendum eða áhang-
endum Manchester United. Helsta ógnin
við samfélagið kemur að innan og felst
í fordómum, fáfræði, misskiptingu,
ótta, andlegri leti, dómhörku, þröng-
sýni, eymennsku, minnimáttarkennd,
neikvæðni, uppnámi og almennri geð-
vonsku.
Hinn tvíræði sigurvegari