Fréttablaðið - 02.06.2014, Side 40
2. júní 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Berglind
Pétursdóttir
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
CHICAGO TRIBUNE ROGEREBERT.COM
T.V., BÍÓVEFURINN OG S&H
EMPIRE TOTAL FILM
MILLION WAYS TO DIE IN THE WEST 5:30, 8, 10:30
TÖFRALANDIÐ OZ 2D 6
VONARSTRÆTI 5:20, 8, 10:40
BAD NEIGHBOURS 8, 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala á:
MILLION WAYS TO DIE . . .
MILLION WAYS TO DIE . . . LÚXUS
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
X-MEN 3D LÚXUS
VONARSTRÆTI
VONARSTRÆTI LÚXUS
BAD NEIGHBOURS
THE OTHER WOMAN
LÁSI LÖGGUBÍLL
RIO 2 2D ÍSL. TAL
MILLION WAYS TO DIE . . .
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
VONARSTRÆTI
THE AMAZING SPIDERMAN 2 2D
HARRÝ OG HEIMIR
KL. 5.30 - 8 - 10.45
KL. 10.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5 - 8 - 10.45
KL. 5
KL. 5.20 - 8 - 10.30
KL. 8
KL. 10.25
KL. 8
KL. 3.20
KL. 3.20
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.45
KL. 6 - 8 - 9 - 10.40
KL. 8
KL. 6
27.000
GESTIR!
13.000 GESTIR!
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Á VINNUSTÖÐUM er kex. Það er í
reglugerðinni um vinnustaði. 1.gr. Á vinnu-
stöðum skal vera kex. 2. gr. Kexið skal vera
við hliðina á kaffivélinni. Það eru reyndar
undantekningar frá þessu eins og flestu.
Til dæmis þegar ég vann sem ballett-
kennari, þá var aldrei kex. En förum
ekki nánar út í það hér.
MEÐAN ég bíð eftir því að kaffivélin
urri út úr sér bragðlitlu kaffi gjóa ég
augunum yfir að kexdisknum. Nokkur
kex, mikil mylsna. Ég ætla ekki að
fá mér. Kaffivélin hristist. Ennþá
að mala baunirnar. Ég lít aftur
á diskinn. Mikil mylsna þýðir
að margir hafa fengið sér sem
þýðir að þetta er gott kex.
Þarna er líka diskur fullur
af safaríkum melónusneiðum
sem enginn hefur snert. Kaffi-
vélin byrjar að sprauta. Ég
hef sjálfsstjórn. Borðaði svo
mörg kex í gær, ætla ekki að
úða í mig aftur. Fæ mér bara
eitt til að bíta í með kaffiboll-
anum sem er nú tilbúinn. Tek
tvö með mér til að hafa á skrif-
borðinu. Sting einu í viðbót upp í mig til að
nasla á meðan ég labba upp stigann.
VINNUSTAÐAKEX er hættulegt. Sér-
staklega á vinnustöðum þar sem maður
situr allan daginn. Maður úðar í sig góm-
sætu kexi allan daginn, fyllir kransæð-
arnar af hveiti og deyr hægum dauðdaga
í stólnum. Það er alveg huggulegt að bjóða
upp á kex en vinnuveitendur, í samstarfi við
umsjónarmenn kexpakka innan vinnustað-
ar, ættu að íhuga að láta starfsmenn vinna
aðeins fyrir kexinu, til dæmis með því að
láta þá fara í gegnum mjög erfiða Cross-Fit
þrautabraut til þess að ná í kexið.
VIÐ skulum samt fara okkur að engu óðs-
lega, engar vanhugsaðar skyndilausnir,
takk. Lausnin á þessu máli er svo sannar-
lega ekki að víxla ávaxta- og kexdisknum
svo ávextirnir séu nær. Hver nagar appel-
sínubát með kaffinu? Það er ekki í lagi.
EN VINNUSTAÐAKEX er víst hluti af
hefðinni og Kalli gamli sem er búinn að
vinna lengst á vinnustaðnum yrði fúll ef
hætt yrði að bjóða upp á kex. Kex-með-
virkni. Séríslenskt dæmi.
Vinnustaðakex
George Clooney er sagður vilja
reyna fyrir sér í pólitík og segja
heimildarmenn vestan hafs að
hann hafi í hyggju að taka þátt í
næstu þjóðarkosningum Banda-
ríkjanna. „Hann er með háleit
markmið um að hasla sér völl í
pólitíkinni. Hann vill kafa dýpra
ofan í mannúðarmál og vonast
eftir því að fara í framboð með
demókrötum fyrir kosningarnar
árið 2016,“ sagði heimildarmaður
við dagblaðið Daily Mirror. Hann
bætti því við að það myndi auka á
trúverðugleika Clooneys að hafa
kærustuna Amal Alamuddin sér
við hlið ef hann færi í framboð en
hún er virtur lögfræðingur.
Vill í pólitík
NÝR STARFSVETTVANGUR? Leikarinn
George Clooney er sagður vilja reyna
fyrir sér í pólitík.
Leikkonan Ginnifer Goodwin
eignaðist dreng fyrir helgi en
þetta er fyrsta barn hennar
og eiginmannsins Josh Dallas.
Ginnifer, sem er 36 ára, gift-
ist Dallas í apríl en parið, sem
kynntist við tökur á sjónvarps-
þáttunum Once Upon A Time,
trúlofaði sig í október. Það hefur
því verið nóg að gera hjá hjón-
unum undanfarnar vikur. Tals-
maður leikkonunnar greindi frá
því að móður og barni heilsaðist
vel en vildi ekki tjá sig nánar
um fæðinguna.
Eignaðist strák
HAMINGJUSÖM Ginnifer Goodwin og
Josh Dallas eru orðin foreldrar.
Tískurisinn Dior er búinn að sýna þriðja hlut-
ann af tískumyndinni sinni Secret Garden.
Sviðsmyndin er Versalir í París í Frakklandi
og sjást fyrirsæturnar Daria Strokous, Fei Fei
Sun og Katlin Aas hlaupa um höllina og garð
hennar. Bera fyrirsæturnar fallegar hand-
töskur sem margir aðdáendur merkisins bíða
eflaust spenntir eftir að fari í sölu.
Secret Garden-herferðin verður einnig í
prentmiðlum og munu auglýsingar birtast til
að mynda í japanska og franska Vogue í júní.
- lkg
Nýjar töskur í tískumynd Dior
Tískurisinn gefur aðdáendum sínum smjörþefi nn af því sem koma skal.
STÍLHREIN Þessi taska passar við allt.
LJÓSBLEIKT Smekklegt að bjóða upp á hanska í stíl við töskuna.
Á HARÐAHLAUPUM Tískumyndin er
einstaklega glæsileg.