Fréttablaðið - 05.06.2014, Side 20
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 20
Mikilvægt er að börn haldi áfram
að lesa að jafnaði yfir sumartím-
ann þegar skólastarfi lýkur, ekki
síst þau sem eru nýbúin að ná
tökum á lestri og þau sem glímt
hafa við lestrarerfiðleika. Þetta
segir Bjartey Sigurðardóttir, tal-
meinafræðingur við skólaskrif-
stofuna í Hafnarfirði.
„Það er mjög algengt að börn-
um fari aftur í lestri ef þau lesa
ekki að sumarlagi. Þetta á sér-
staklega við um börn sem eru
með einhver frávik. Þegar þau
koma aftur í skólann að hausti
er staðan oft hjá þeim eins og á
miðsvetrarprófi í janúar veturinn
á undan. Þar með hefur heil vor-
önn tapast.“
Bjartey segir að líkja megi
lestrarfærni við færni í að hlaupa
langhlaup. „Ef við hættum að
hlaupa í þrjá mánuði náum við
ekki jafngóðum tíma og þegar
við vorum í góðu formi. Ef börn
hætta að æfa sig í lestri dregur
úr lesfimi þeirra og lesturinn
verður hægari og óþjálli.“
Til að koma í veg fyrir afturför
er mikilvægt að börn lesi að jafn-
aði um það bil tvisvar í viku yfir
sumarið, að sögn Bjarteyjar. „Ég
veit um marga kennara sem nesta
sína nemendur með fyrirmælum
um að lesa heima yfir sumartím-
ann. Margir setja upp umbunar-
kerfi og í sumum skólum hafa
verið settar af stað lestrarkeppn-
ir milli bekkja til að ýta undir
sumarlestur,“ greinir Bjartey frá.
Hún leggur áherslu á að bók-
lestur efli orðaforða og bæti mál-
skilning. „Æfi börn sig ekki í
lestri að sumarlagi dragast þau
einnig aftur úr hvað varðar mál-
þroska.“
Mikilvægt er að foreldrar haldi
áfram að lesa fyrir börnin sín
þótt þau hafi náð tökum á lestri,
að því er Bjartey bendir á. „Í
byrjun er barnið einungis fært
um að lesa mjög einfalda texta
sem geta verið einhæfir og oft
ekki í neinu samræmi við andleg-
an þroska og áhuga þess. Það er
því mikilvægt að haldið sé áfram
að lesa fyrir börn til að bæta mál-
skilning þeirra og efla orðaforða
þeirra. Þannig eru þau búin undir
flóknari bækur sem þau þurfa að
glíma við síðar meir.“
ibs@frettabladid.is
Ekki láta lestur barnsins
detta alveg niður í sumar
Algengt er að nemendum fari aftur í lestri viðhaldi þeir ekki lestrarfærni sinni yfir sumartímann. Mikilvægt
að lesa tvisvar til þrisvar í viku. Mörg bókasöfn eru með lestrarátak. Þátttakendur fá umbun í lok sumars.
Á BÓKASAFNI Bjartey Sigurðardóttir talmeinafræðingur
segir að foreldrar eigi að koma þeim boðum til barna sinna
að það sé gaman að lesa skemmtilegar bækur og að lestrar-
stundir séu skemmtilegar samverustundir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Æfi
börn sig ekki
í lestri að
sumarlagi
dragast þau
einnig aftur
úr hvað
varðar
málþroska.
Bjartey
Sigurðardóttir
talmeinafræðingur
1. Lesið með barninu í sumar
Látið barnið lesa tvisvar til
þrisvar í viku. Þá viðhelst áunnin
færni.
2. Nýtið ykkur bókasöfnin
Mörg bókasöfn eru með
lestrarátak yfir sumartímann þar
sem nemendur skrá hvað þeir
lesa. Allir þátttakendur fá umbun
í lok sumars.
3. Hafið lesefnið hæfilega þungt
Ef lesefnið er of þungt er hætta
á að barnið missi móðinn. Gott
viðmið er að nemandi geri ekki
fleiri villur en fimm til sjö í 100
orða texta.
4. Aukið fjölbreytnina
Lesið til skiptis og lesið saman
í kór. Foreldri getur líka lesið
blaðsíðuna fyrst og svo barnið.
5. Farið í skemmtilega leiki
Ef barnið hefur ekki náð tökum á
lestri má fara í skemmtilega leiki
þar sem unnið er að því þjálfa
upp hljóðavitundina og tengja
hljóð við bókstafi. Nánari upp-
lýsingar um slíkt efni má nálgast
á Lesvefnum, lesvefurinn.hi.is,
og á vef Námsgagnastofnunar,
nams.is. Þar er einnig að finna
frekari upplýsingar fyrir foreldra.
6. Lesið fyrir börnin
Með því að halda áfram að lesa
fyrir börnin batnar málskilningur
þeirra og orðaforðinn eflist.
Ráðin hér að ofan eru frá
Bjarteyju Sigurðardóttur
talmeinafræðingi.
RÁÐ UM
LESTUR BARNA6
Til að auka skilning á þeim áhrifum
sem foreldrar hafa á menntun barna
sinna er mikilvægara að beina
athyglinni að uppeldisaðferðum
foreldranna í stað afmarkaðri þátta
sem tengjast beint skólagöngu.
Þessa ályktun dregur Kristjana
Stella Blöndal, lektor við Háskóla
Íslands, sem í næstu viku ver
doktorsritgerð sína sem ber heit-
ið Skuldbinding nemenda til náms
og brotthvarf úr framhaldsskóla:
Þáttur uppeldisaðferða foreldra.
Verkefni hennar er byggt á lang-
tímarannsókn á meðal íslenskra
ungmenna.
„Tilgangurinn með rannsókn
minni var að skoða hvaða skila-
boðum ég gæti komið til foreldra
til að valdefla þá til að styðja börn
sín til að klára framhaldsskóla.
Það sem virðist skipta meginmáli
eru uppeldisaðferðirnar, það er að
segja leiðandi
uppeldi foreldra.
Það er uppeldis-
aðferð sem ein-
kennist af hlýju,
stuðningi og
hvatningu sam-
tímis því sem sett
eru skýr mörk og
kröfur gerðar
í samræmi við
þroska. Það er ekki nóg að vera
bæði hvetjandi og styðjandi og
ekki nóg að gera kröfur heldur þarf
þetta tvennt að fara saman. Þessir
sameinuðu þættir virðast skipta
meira máli en þátttaka foreldranna
í sjálfri menntun barnanna. Leið-
andi uppeldi gerir þau móttækilegri
fyrir skilaboðum foreldra um mikil-
vægi menntunar og skuldbinding-
ar til náms á unglingsárum,“ segir
Kristjana Stella. - ibs
Draga má úr brottfalli framhaldsskólanema:
Uppeldisaðferðir
skipta höfuðmáli
Þegar aðeins 39 prósent nemenda í
níunda bekk í grunnskólanum í
Ströveltorp fyrir utan Äng-
elholm í Svíþjóð fengu
umsögnina viðurkennt
í öllum námsgreinum
ákváðu skólamála-
yfirvöld að setja kenn-
ara á skólabekk. Voru
kennararnir látnir meta
eigin kennslu og ann-
arra. Fimm árum síðar
fengu 90 prósent nemenda
umsögnina viður-
kennt, að því er sænskir fjölmiðlar
greina frá.
Kennurum í grunnskólanum
í Ströveltorp fannst sjálfum
skólinn lélegur og enginn
fann úrræði til að bæta úr
því. Kennarar voru þá látnir
sækja 60 eininga háskóla-
námskeið. Kennararnir hafa
auk þess setið í kennslustund-
um hver hjá öðrum, tekið
upp kennsluna á myndband
og gagnrýnt hver annan á
uppbyggilegan hátt. - ibs
Gripið var til aðgerða vegna lágra einkunna í sænskum skóla:
Kennarar sendir á skólabekk
Í FRAMHALDSSKÓLA Foreldrar geta ýtt undir jákvæðar tilfinningar í garð náms og
skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KRISTJANA
STELLA BLÖNDAL
Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the
Children á Íslandi stendur til 15.
júní næstkomandi. Þetta er
í þriðja sinn sem staðið er
fyrir söfnun á notuðum reiðhjól-
um fyrir börn og unglinga. Að
þessu sinni er söfnun-
in í samstarfi við
Æskuna barna-
hreyfingu IOGT
og Íslenska fjalla-
hjólaklúbbinn, að
því er segir á vef
Barnaheilla.
Hjólunum verður safnað á endurvinnslu-
stöðvum Hringrásar og Sorpu
á höfuðborgarsvæðinu. Þau
verða gerð upp og eru þau
ætluð börnum sem ekki eiga
kost á því að kaupa sér reið-
hjól. Hægt er að sækja um
hjól hjá Félagsþjón-
ustunni í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnar-
firði og í Reykja-
nesbæ. Hjól in
verða afhent í júní.
- ibs
Félagsþjónustan úthlutar hjólum úr söfnun Barnaheilla:
Safna notuðum hjólum
25%
afsláttur
140x200 39.990 29.990 kr
140x220 44.900 33.742 kr
100x140 16.990 12.735 kr
70x100 12.990 9.742 kr