Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
Tískudívan Anna Karen Ellerts-dóttir er ritstjóri nýrrar tískusíðu á Spyr.is sem heitir einfaldlega
Tískudívan. „Ég verð meðal annars
með vikulegan þátt í Spyr Sjónvarpi en
upphaflega hugmyndin var sú að vera
með kennslumyndbönd þar. Hugmynd-
in þróaðist út í það að fara heim til
þekktra einstaklinga og fá þá til að opna
fataskápinn sinn. Í fyrsta þættinum fór
ég til Jóhönnu Guðrúnar söngkonu og
fékk að forvitnast um hennar fatastíl.
Við ætlum að halda því áfram og opna
fleiri fataskápa ásamt því að vera með
kennslumyndbönd, til dæmis mun ég
kenna áhorfendum að sauma einfalda
flík og einhverja förðun. Svo verður líka
bloggað um allt sem viðkemur tísku inni
á Tískudívunni.“
Anna Karen hefur haft áhuga á tísku
og förðun frá blautu barnsbeini og er
með stúdentspróf af listabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti þar sem
hún lærði fatahönnun. Auk þess er hún
förðunarfræðingur. Rauði þráðurinn
í hennar stíl er pönkaralegur en hún
hefur gaman af alls kyns tilraunastarf-
semi. „Ég fæ aðallega innblástur frá
öðru fólki og umhverfinu. Ég get ekki
sagt að ég eigi einhverja tískufyrirmynd
en mér finnst Kate Moss töff og hönn-
uðurinn Alexander Wang flottur. Mér
finnst flottast þegar fólk hefur persónu-
legan stíl og finnst það hvernig hver og
einn klæðir sig vera ákveðið tjáningar-
form. Ég er ósammála því að fötin skapi
manninn, það er frekar þannig að mað-
urinn geti nýtt fötin til að tjá sig.“
Hún hefur gaman af því að fara á
útsölur og róta í fötum og finna eitt-
hvað sem enginn annar vill eiga. „Þetta
er spurning um að sjá möguleikana í
fötunum. Ég finn til dæmis eitthvað sem
er úr flottu efni og breyti því svo eftir
mínu höfði. Einnig finnst mér gaman að
breyta gömlum fötum sem ég á og gefa
þeim nýtt líf. Undanfarið hef ég gert
mikið af því þar sem ég er búin að vera
í háskóla í nokkur ár og þá er ekki hægt
að eyða miklu. Þegar ég á pening aflögu
er ég hins vegar fljót að eyða honum í
föt. Fyrir sumarið langar mig að fá mér
flotta sandala, léttan sumarkjól og lit-
ríka slæðu. Það væri líka gaman að eiga
bikini til skiptanna þar sem ég fer mikið
í sund. Svo er ég líka hrifin af höttum
og það væri gaman að bæta við hatta-
safnið. Auk þess er ég algjört jakkafrík
og á erfitt með að standast fallega yfir-
höfn. Ég á yfir fjörutíu jakka og tók einu
sinni „jakkaáskorun“ þar sem ég var í
nýjum jakka á hverjum degi. Þegar ég
var búin að vera í þessu í fimm vikur
þá hætti ég af því ég nennti ekki meir,“
segir Anna Karen og hlær.
■ liljabjork@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
TÍSKUDÍVA
Anna Karen pælir mikið
í tísku og öllu sem henni
tengist. Hún bloggar á
síðunni Tískudívunni á
Spyr.is.
MYND/GVA
Á YFIR 40 YFIRHAFNIR
DÍVA Tíska er ákveðið tjáningarform að mati Önnu Karenar, ritstjóra Tísku-
dívunnar. Hún er jakkafrík og á erfitt með að standast flotta yfirhöfn.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Smart föt, fyrir smart konur
Stærðir 38-52
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Flottar buxur
Kr. 4.990.-
Str. S-XXL
Tveir litir
Við erum á Facebook