Fréttablaðið - 05.06.2014, Side 40

Fréttablaðið - 05.06.2014, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGReiðhjól & öryggi FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 20142 Tilgangurinn er að hittast og njóta þess að hjóla um miðbæ Reykjavíkur í sparifötunum. Það er mjög svo frábrugðið því að hjóla á fjöll eða úti í mó í spandex-gallanum,“ segir Þjóðverjinn Alexander Schepsky, einn af aðstandendum hjólatúrsins Tweed Ride Reykjavík. „Tweed Run varð til í Lundúnum árið 2009 þegar nokkrir reiðhjólafélagar ákváðu að hjóla um borgina í sínu fínasta pússi. Það vatt fljótt upp á sig og hefur siðurinn náð útbreiðslu um allan heim,“ segir Alexander sem íslensk- aði tvídtúrinn í fyrsta sinn sumarið 2012. Þátttakendur Tweed Ride Reykjavík mæla sér mót við Hallgrímskirkju klukkan 13 á laug- ardag, íklæddir sígildum, virðu- legum fatnaði og drögtum í anda bresks hefðarfólks. Síðan hjóla þeir af stað á klassískum, virðulegum borg- arhjólum. „Þegar við hjól- um fylktu liði er það fögur sjón að sjá og gleður augu vegfarenda,“ segir Alexander. „Á Ís- landi er yfirleitt litið á hjól sem íþróttatæki, eins og fjallahjól og keppnishjól, en upprunalega var reiðhjólið hugsað sem farar- tæki til að koma fólki á milli staða. Með Tweed Ride viljum við benda borg- arbúum á að hægt sé að hafa yndi af rólegum hjólreiðum og meðtaka um- hverfi og mannlíf í slíkum yndistúr því Reykjavík er frábær hjólaborg með endalaust skemmtilegar hjólaleiðir.“ Þægilegur fjölskyldurúntur Áður en hjólað er frá Hallgrímskirkju býður Dr. Bæk fría hjólaskoðun og Bike Brothers þrífa hjólin. Klukkan 13.30 er hópmyndataka og svo er stigið á pedalana klukkan 13.45. „Við hjólum saman niður Laugaveg og um miðbæinn, förum í pikknikk á sólpalli Satt á Hótel Natura og endum á Kexi Hosteli í „high tea“ með ensk- um samlokum og smákökum að breskum sið og reynum að vera svolítið ensk í okkur,“ segir Alexander, fullur tilhlökkunar. Á Kexi Hosteli verður best klæddi herramaðurinn verðlaunaður af Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar, best klædda daman hlýtur verðlaun frá versluninni Geysi og fallegasta hjólið fær verðlaun frá Reiðhjólaverslun- inni Berlin. „Stemningin er einstaklega létt og skemmtileg þar sem safnast saman fólk með sameiginlegt áhugamál, sem er að klæðast fínum fötum og nota hjól sem farartæki. Þá fer feimnin af fólki og kjaftar á því hver tuska,“ segir Alexander, hvergi banginn við að hjóla í sumarhita í tvídi, sem er gróft ullarefni. „Íslenskt sumar verður aldrei svo heitt að manni verði of hlýtt í tvíd-föt- unum. Við förum líka hægt yfir og njótum þess að skoða borgarlandslagið, gömul hús og mannlíf á þægilegum rúnti sem hæfir öllum í fjölskyldunni.“ Taka skal fram að allar gerðir hjóla eru velkomnar í Tweed Ride Reykja- vík 7. júní. Skráning og upplýsingar á tweedridereykjavik.weebly.com og á Facebook. Hjólað í tvídi Tweed Ride fer fram í Reykjavík á laugardag. Þá verður hjólað í spariklæðnaði bresks hefðarfólks. Það er augnayndi að fylgjast með klæða burði hjólreiðafólks í Tweed Ride. Síðast hjóluðu níutíu manns um miðbæinn og nú stefnir fjöldinn í 120 hjólreiðamenn. Alexander Schepsky er doktor í sameindalíffræði og eigandi Reiðhjólaverslunarinnar Berlin sem hann segir í raun vera herrafataverslun á hjólum. MYND/VALLI Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, 512-5429 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. www.hiss.is Mjög öflugt reiðhjólaljós með 2 ljósgeislum Ljósmagn: 800 ANSI Lumens Drægni: 167 metrar Stillingar: 6 Vatnsvarið: IPX-6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.