Fréttablaðið - 05.06.2014, Síða 32
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
„Tangóheimurinn er opinn öllum,
bæði einstaklingum og pörum,“
segir Rut Ríkey Tryggvadóttir,
einn skipuleggjenda fyrstu alþjóð-
legu Sólstöðu tangó-hátíðarinnar á
Íslandi sem fram fer dagana 5.-8. júní.
Hátíðin er haldin á
Northen Light Inn í
Svartsengi í Grinda-
vík á vegum Tangó-
ævintýrafélagsins í
samstarfi við Helen
„La Vikinga“ Hall-
dórsdóttur, tangó-
kennara og tangóskó-
hönnuð. „Við erum
dugleg að brydda
upp á nýjungum á hverju tangóballi
og erum með nýtt þema hverju sinni.
Stór partur af tangónum er að klæða
sig upp og draga sig út úr hversdags-
leikanum,“ segir Rut Ríkey.
Nafn hátíðarinnar vísar í bjartar
nætur á Íslandi og bendir Rut á að
Sólstöðutangóhátíðin sé einnig ákveð-
in landkynning fyrir erlenda aðila
sem koma hingað til að dansa og njóta
landsins og náttúrunnar í leiðinni.
„Fólk sem kynnist tangódansinum
ferðast gjarnan til að hitta aðra og því
finnst okkur gaman að geta blandað
þessu saman að vera með Sólstöðu-
hátíðina til að kynna Ísland og laða
erlenda dansara að.“ Tónlistarfólk-
ið Juanjo Passo bandoneonleikari og
Hedda Heiskanen fiðluleikari munu
opna hátíðina með sérstökum tónlist-
arflutningi úti í hrauninu í Grindavík
undir miðnætti í kvöld ásamt sópran-
söngkonunni Svanlaugu Jóhannsdótt-
ur. Í kvöld, föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld verða svokölluð
Milongur eða tangóböll en hátíðarball-
ið verður haldið á laugardagskvöldið
í Salthúsinu í Grindavík. Hægt er að
skoða dagskrána á heimasíðu Tangó-
ævintýrafélagsins, tangoadventure.
com.
marinmanda@frettabladid.is
Fyrsta Sólstöðutangóhátíðin
Tangóævintýrafélagið heldur tangódanshátíð með þekktum erlendum gestakennurum.
RUT RÍKEY
TRYGGVADÓTTIR
TANGÓ FYRIR ALLA Þegar fólk dansar tangó gleymir það stað og stund.
„Þetta gekk alveg glæsilega,“ segir Guðmundur Sigurðs-
son, formaður félagsins Íslenskir eldsmiðir, sem var stofnað
fyrir fimm árum.
Íslenskir eldsmiðir héldu eld smíðahátíð og eldsmíðamót í
samstarfi við Safnasvæðið á Akranesi í Smiðjunni á Akra-
nesi um síðustu helgi. Boðið var upp á byrjenda námskeið í
eldsmíði, fyrirlestra og sýningar á handverki.
„Það var reytingur af fólki allan tímann. Það rigndi svo-
lítið en fólk lét það ekki stoppa sig,“ segir Guðmundur um
aðsóknina. Einn af fyrirlesurunum var bandarískur eldsmið-
ur sem fór yfir damaskus-aðferðina. „Þetta er svipuð aðferð
og er notuð við gerð samúræja sverða. Hann fór yfir hvernig
maður kveikir saman mismunandi stál í munsturstál til að
gera svoleiðis sverð eða hnífa. Það var nú ekki búið til neitt
samúræja sverð en það var búinn til hnífur með damaskus-
munstri,“ segir Guðmundur. „Stálið er mis-kolvetnaríkt.
Þegar það er sett í sýru vinnur hún mismunandi á stálinu og
þannig kemur munstrið fram.“
Á hátíðinni voru einnig smíðuð hnífsblöð eða eldstál úr
járni sem hafði verið bakað í átta klukkustundir í hólki sem
var fylltur með kolum og beinamjöli. Aðferðin hefur mikið
verið notuð við að búa til þjalir. Einnig bjó Daníel Kristjáns-
son frá Þingeyri til hníf úr togaravír.
Alls tóku tólf eldsmiðir þátt í Íslandsmeistaramótinu en
á annan tug manna sótti námskeið fyrir byrjendur sem var
haldið á fimmtudags- og föstudagsmorgni.
Beate Storme, norsk listakona og bóndi sem býr í Krist-
nesi í Eyjafirði, bar sigur úr býtum. „Þetta er í annað
skipti sem við keppum á Íslandsmeistaramóti. Hún
var í barneignum síðast, þannig að við sluppum,“
segir Guðmundur og hlær en Beate er mjög fær á
sínu sviði. „Hún hefur unnið meira við þetta en við
hinir.“ freyr@frettabladid.is
Kenndi Íslendingum
smíði samúræjasverða
Íslandsmótið í eldsmíði var haldið í annað sinn í Görðum á Akranesi um síðustu helgi.
Bandarískur eldsmiður kenndi Íslendingum allt um damaskus-aðferðina.
AÐ STÖRFUM Bandaríski fyrirlesarinn kenndi
Íslendingum hvernig á að beita damaskus-
aðferðinni. MYND/ÞÓRARINN JÓNSSON
HNÍFUR ÚR TOGARAVÍR
Hnífurinn sem Daníel Kristjánsson
bjó til úr togaravír.
MYND/ÞÓRARINN JÓNSSON
Robert Kennedy, öldungadeildarþing-
maður og bróðir hins myrta forseta Johns F.
Kennedy, var skotinn á Ambassador-hótelinu
í Los Angeles þennan dag árið 1968, eða
fyrir 46 árum. Hann lést daginn eftir.
Skotárásin átti sér stað stuttu eftir að
Kennedy hélt þrumandi sigurræðu yfir
stuðningsmönnum sínum en hann hafði
þá unnið áfangasigur í forkosningum í
Kaliforníuríki.
Kennedy var á leið út um bakdyr á
hótelinu þegar hinn 22 ára palestínski
Sirhan Sirhan vatt sér upp að honum með
upprúllað kosninga plakat þar sem hann faldi
byssu sína. Hann var aðeins í nokkurra skrefa
fjarlægð þegar hann skaut nokkrum skotum
að Kennedy, sem var 42 ára. Sirhan var yfir-
bugaður en þá höfðu fimm manns særst.
Sirhan játaði verknaðinn við réttarhöld og
var dæmdur til dauða. Dómurinn var aftur-
kallaður árið 1972 og hefur Sirhan setið í
fangelsi síðan.
ÞETTA GERÐIST: 5. JÚNÍ 1968
Robert Kennedy myrtur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÁSGEIR ÓLAFSSON
frá Grænumýri á Seltjarnarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi
þriðjudagsins 3. júní.
Ólafur Ásgeirsson
Eirný Ásgeirsdóttir
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Magnús Ásgeirsson Sigríður Jóna Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR BENEDIKT
BENEDIKTSSON
Blöndubakka 7, Reykjavík,
lést laugardaginn 31. maí á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Starfsfólk
líknardeildar fær sérstakar þakkir fyrir
einstaka umönnun og hlýju. Útförin mun fara fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. júní klukkan 15.00.
Jóhanna Pétursdóttir og fjölskylda
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir Birgir Óli Einarsson
Gunnar Oddgeir Birgisson
Þórunn Hvönn Birgisdóttir
Þökkum öllum sem sendu okkur hlýjar
kveðjur vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSLAUGAR THORLACIUS.
Örnólfur Thorlacius Rannveig Tryggvadóttir
Kristín Rannveig Thorlacius
Kristín Bjarnadóttir
Hallveig Thorlacius Ragnar Arnalds
Kristján Thorlacius Ásdís Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GERÐUR HJALTALÍN
Efstasundi 24, 104 Reykjavík,
lést mánudaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju,
föstudaginn 6. júní, kl. 15.00.
Vilberg Sigtryggsson
Stefán Vilbergsson Salka Rún Sigurðardóttir
María Vilbergsdóttir Þorgeir Sigurðsson
Sigurbjörg Vilbergsdóttir Skúli Hilmarsson
og barnabörn.
Dóttir okkar, systir, mágkona
og móðursystir,
SOLVEIG THORLACIUS
lést sunnudaginn 1. júní á líknardeild LHS.
Hún verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 13. júní kl. 13.00.
Ásdís Kristinsdóttir Kristján Thorlacius
Áslaug Thorlacius Finnur Arnar
Sigrún Thorlacius Pálmi Jónasson
Sigríður Thorlacius
Hera, Salvör, Ásdís, Kristján, Auður, Hallgerður, Helga,
Kristín og Áslaug.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
SVAVARS GUÐNA GUÐNASONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
á taugalækningadeild B2 og þeirra sem
í minningu hans hafa styrkt börnin hans.
Brynhildur Dögg Guðmundsdóttir
Karen Dögg, Alexander Guðni og Elvar Breki
Guðni B. Svavarsson Kristín G. Ólafsdóttir
Guðmundur St. Sigmundsson Elvira Viktorsdóttir
Elín H. Guðnadóttir Stefán Einarsson
María B. Guðnadóttir
Elín Ósk Guðmundsdóttir Kristján Karl Kolbeinsson