Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 66
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
Hátíðarstemning hjá Hönnunarsjóði
Það var rífandi stemning hjá Hönnunarsjóði þegar önnur úthlutun úr sjóðnum fór fram. Alls fengu þrettán verkefni styrki úr sjóðnum,
samtals 17,5 milljónir króna. Bóas Kristjánsson fatahönnuður hlaut hæsta styrkinn, tvær og hálfa milljón króna, fyrir kynningu á
vörumerki sínu á alþjóðavettvangi. Fjöldi fólks kom saman í húsnæði Hönnunarsjóðs við Vonar stræti og skálaði í tilefni dagsins.
GLÆSILEGAR Hildur Sigurðardóttir og Ólöf Birna
Garðarsdóttir. Fréttablaðið/Andri Marinó
SKÁLUÐU Egill Egilsson, Auður Ösp Guðmunds-
dóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir.
BROSMILDAR Guðný Hafsteinsdóttir, Ingunn Erna Stefánsdóttir og
Katrín Valgerður Karlsdóttir.
STILLTU SÉR UPP Brynhildur Pálsdóttir og Helga Haraldsdóttir. SUMARLEGAR Ástríður Magnúsdóttir, Ólöf Jakobína Ernudóttir og
Guðbjörg Káradóttir.
SKEMMTILEGT TEITI Margrét Bóasdóttir og Halla
Helgadóttir.
FLOTTIR Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Greipur
Gíslason.
Raunveruleikastjarnan Kourtney
Kardashian og kærasti hennar,
Scott Disick, eiga von á sínu þriðja
barni samkvæmt heimildum tíma-
ritsins Us Weekly.
„Hún er aðeins komin nokkra
mánuði á leið,“ segir heimildar-
maður tímaritsins. Annar bætir
við að barnið hafi verið planað.
Kourtney og Scott eiga fyrir
soninn Mason, 4 ára og dótturina
Penelope, 23ja mánaða. Kourtney
grínaðist einmitt með það í þætt-
inum Keeping Up With the Kar-
dashians árið 2012 að hún væri
hætt að nota getnaðarvarnir.
„Ég þarf að sjá hvernig þetta
verður með tvö börn en lífið snýst
um að eignast börn. Ég ætla ekki
á pilluna. Ég trúi ekki á hana
lengur.“
Þriðji heimildarmaður Us
Weekly segir að von sé á nýjasta
fjölskyldumeðlimnum í desember.
- lkg
Von á þriðja barninu
Kourtney Kardashian og Scott Disick fj ölga sér.
ÞRJÁR SYSTUR Kourtney er systir
Khloe og Kim Kardashian.
La Toya Jackson, systir tónlistar-
mannsins heitna Michaels Jackson
og söngkonunnar Janet Jackson, er
búin að trúlofast kærasta sínum og
viðskiptafélaga, Jeffré Phillips.
„Ég var ekki snögg að segja já,“
segir La Toya í samtali við tímarit-
ið People, sem birtir einnig mynd
af trúlofunarhringnum.
Jeffré bað La Toyu er þau voru
í fríi á Havaí þar sem þau gæddu
sér á uppáhaldsmat hennar, kjúk-
lingasúpu. Jeffré faldi síðan trúlof-
unarhringinn í eftirréttinum.
„Þetta var mikið áfall. Við erum
bestu vinir og höfum verið við-
skiptafélagar í langan tíma,“ bætir
La Toya við. - lkg
La Toya
trúlofuð
Jackson-systirin gengur
bráðum í það heilaga.
ÁSTFANGIN La Toya er himinlifandi
með ráðahaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY