Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 78
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 62
„Við sjáum um framleiðsluna hér
heima ásamt vinkonu okkar, Dóru
Lenu Christians, því það er sumt
sem ekki er hægt að sinna frá öðru
landi. Þegar tökuliðið og erlendu
framleiðendurnir koma til landsins
þá verðum við með þeim á setti og
fylgjum þeim þar til þau fara aftur
út,“ segir Unnsteinn Garðarsson,
einn af stofnendum íslenska fram-
leiðslufyrirtækisins New Age Ice-
landic Films, en fyrirtækið sér um
framleiðslu þýskra raunveruleika-
þátta sem bera nafnið Offline.
Ásamt Unnsteini eiga þeir Ásþór
Aron Þorgrímsson og Gunnar
Gunnarsson einnig hlut í fyrirtæk-
inu.
Stjórnandi þáttarins er Palina
Rojinski en hún er þekkt í heima-
landi sínu. „Hún er þekkt í Þýska-
landi sem leikkona, DJ, bloggari
og partídrottning eins og henni er
lýst,“ bætir Unnsteinn við.
Hann segist lítið mega tjá sig
um þáttinn að svo stöddu. „Þetta er
fyrsta serían af þessum þýska raun-
veruleikaþætti, það er það eina sem
við getum sagt í bili. Tökur fara
fram hér á landi um miðjan júní-
mánuð.“
Þeir félagar eru einnig með
tækjaleigu með búnaði sem ætl-
aður er til framleiðslu
kvikmynda. „Við erum
búnir að vera í því að
koma tækjaleigunni
okkar, Indie Rental í
gang undanfarið. Við
fjárfestum í tækja-
búnaði sem er hugsað-
ur meira fyrir verkefni
með minna fjármagn
þar sem mikill niður-
skurður er til kvik-
myndageirans hér-
lendis. Með því að taka
þetta þýska verkefni
að okkur getum við fjárfest í aukn-
um búnaði,“ útskýrir Unnsteinn.
Fyrir skömmu vann fyrirtækið
tónlistarmyndband fyrir íslensku
hljómsveitina Benny Crespo’s
gang. - glp
Framleiða þýskan raunveruleikaþátt
New Age Icelandic Films framleiðir þætti með þýskri partídrottningu.
ÞEKKT Í ÞÝSKALANDI Palina Rojinski
stýrir þýska raunveruleikaþættinum
sem New Age Icelandic Films sér um
framleiðslu á. NORDICPHOTOS/GETTY
„Þetta er það skemmtilegasta sem
ég hef gert sem ljósmyndari og ég
var hálfpartinn með tárin í augun-
um allan tímann, mér fannst þetta
svo mikill heiður,“ segir ljósmynd-
arinn Saga Sigurðardóttir en hún
var einn tíu ljósmyndara sem fengu
boð um að taka þátt í samsýningu
á vegum hins virta ljósmyndafyrir-
tækis Leica. Fyrirtækið fagnar 100
ára afmæli sínu í ár og opnaði af því
tilefni nýjar höfuðstöðvar í Wetzlar
í Þýskalandi í síðustu viku.
„Leica hafði samband við mig
síðasta haust og bauð mér að vera
partur af sýningu sem kölluð er
10 x 10 en þar voru tíu ljósmynd-
arar fengnir til þess að starfa með
tíu Leica-meisturum. Ég starfaði
til dæmis með Jeanloup Sieff en
hann er franskur tísku-, landslags-
og portrettljósmyndari sem starf-
aði mikið á sjöunda áratugnum í
París. Myndatakan mín átti því að
tengjast honum,“ segir Saga, en hún
fékk íslensku fyrirsæturnar Tinnu
Bergsdóttir, Ingu Eiríksdóttur og
Sif Ágústsdóttur til liðs við sig. „Það
sem við Jeanloup eigum sameigin-
legt er að við förum bæði óhefð-
bundnar leiðir í myndbyggingu.
Hann notaði oft gleiðar linsur og
myndir inn í mynd, lék sér með sam-
spil ljóss og skugga og vann einn-
ig mikið með landslagið. Ég náði að
sameina alla þessa þætti og notaði
bæði íslenska náttúru, meðal ann-
ars frá Þingvöllum og Þórshöfn, og
svo stúdíómyndir af fyrirsætunum.“
Saga segir að mörg þúsund manns
hafi sótt opnunarhátíðina en hún
stóð yfir í þrjá daga. „Leica er virt-
asta fyrirtæki í heimi í þessum
bransa og fyrir mig að fá að sýna
þarna með heimsþekktum ljósmynd-
urum er þvílíkur heiður og á eftir að
opna enn fleiri dyr fyrir mér sem
ljósmyndari,“ segir Saga. Allir ljós-
myndararnir sem tóku þátt í verk-
efninu fengu Leica M-myndavél að
gjöf með áletruðu nafni hvers og
eins. Saga er nú í sumarfríi á Íslandi
en er annars á kafi í verkefnum. „Ég
var að skjóta herferð fyrir Smára-
lind og er að undirbúa samsýn-
ingu í Foam Gallery í Amsterdam
nú í sumar. Svo er stefnan að halda
sýningu á myndunum mínum hér á
Íslandi í haust.“
kristjana@frettabladid.is
Mikil viðurkenning
Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir fékk boð um að taka þátt í samsýningu á
vegum ljósmyndafyrirtækisins Leica en fyrirtækið er eitt það allra virtasta á
sviði ljósmyndunar. Saga segir samstarfi ð koma til með að opna enn fl eiri dyr.
„Æfingarnar eru búnar að ganga
mjög vel og mér líst alveg ofboðs-
lega vel á Latabæ,“ segir hinn fimm-
tán ára Brynjar Dagur Albertsson,
sigurvegari hæfileikakepninnar
Ísland Got Talent sem sýnd var á
Stöð 2 í vetur. Brynjar Dagur er nú
kominn á samning hjá Þjóðleikhús-
inu en hann fer með hlutverk í sýn-
ingunni um Latabæ sem frumsýnd
verður í haust. „Við sáum Brynjar
eins og hálf þjóðin vinna Talentinn
og þá hugsuðum við bara með okkur
hvernig við gætum mögulega nælt í
þennan dreng,“ segir leikstjóri Lata-
bæjar, Rúnar Freyr Gíslason, um
hinn hæfileikaríka Brynjar. „Nú er
hann byrjaður að svitna á dansæf-
ingum hjá Stellu Rósenkranz og það
er klárt að fólk fær að sjá meira frá
honum en það sá í Ísland Got Tal-
ent.“
Brynjar Dagur segir lífið í
atvinnuleikhúsinu stórskemmti-
legt. „Þetta er aðeins öðru vísi en
ég bjóst við, meira fjölskyldulíf og
töluvert skemmtilegra. Ég gæti vel
hugsað mér að starfa í leikhúsi í
framtíðinni.“
Brynjar Dagur hlaut 10 milljón-
ir króna í verðlaunafé þegar hann
vann hæfileikakeppnina. Er hann
nokkuð búinn að eyða öllum pening-
unum? „Nei, alls ekki. Ég er búinn
að kaupa mér nokkra hluti, Play-
Station 4 og einhver föt en annars
verð ég að passa mig að eyða þessu
ekki öllu saman,“ segir Brynjar
Dagur hress að lokum. - ka
Líst rosalega vel á lífi ð í Latabæ
Sigurvegari Ísland Got Talent, dansarinn Brynjar Dagur Albertsson, leikur í fyrsta sinn á sviði atvinnu-
leikhúss en hann fer með hlutverk í Latabæ sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu næsta haust.
HLAKKAR TIL Brynjar Dagur er spennt-
ur fyrir haustinu en þetta er í fyrsta
skipti sem hann leikur í atvinnumanna-
leikhúsi.
Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert sem
ljósmyndari og ég var hálfpartinn með tárin í augun-
um allan tímann, mér fannst þetta svo mikill heiður.
„Þetta er svo einfalt, ég elska hreint
Nóa Síríus rjómasúkkulaði. Eftir að
hafa hlaupið 200 kílómetra á átta
vikum hef ég kannski borðað aðeins
meira af því en ég á skilið.“
Greta Salóme Stefánsdóttir, tónlistarkona
UPPÁHALDSNAMMI