Fréttablaðið - 10.07.2014, Side 6
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hver urðu úrslitin í leik Þýskalands
og Brasilíu á HM í fótbolta?
2. Hvaða íslenska bók hlaut bresku
UKLA-verðlaunin?
3. Hvað heitir forstöðumaður Minja-
stofnunar Íslands?
SVÖR:
1. 7–1 fyrir Þýskaland. 2. Sagan af bláa
hnettinum. 3. Kristín Huld Sigurðardóttir.
VEISTU SVARIÐ?
Ný tækni
við göngu-
greiningu
Flexor notast við nýja tækni við
göngugreiningu. Göngu- og hlaupa-
brettið okkar býr yfir innbyggðum
þrýstinemum sem skilar nákvæmum
upplýsingum um göngulag.
Fáðu góð ráð, faglega göngugreiningu
og lausnir við stoðkerfisvandamálum
hjá Flexor.
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
LÖGREGLUMÁL Heimilisofbeldismál-
um sem koma til kasta lögreglunn-
ar á Suðurnesjum hefur fjölgað úr
átján í fimmtíu og sex síðastliðin
þrjú ár. Fjöldinn hefur því þrefald-
ast á þessum tíma. Skúli Jónsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suð-
urnesjum, segir að þar hafi menn
mætt þróuninni með fullum þunga.
Lögreglan þar hóf til dæmis til-
raunaverkefni í byrjun árs 2012
sem kallað var „Að halda gluggan-
um opnum“. Markmiðið var að gera
verklagsreglur, alla afgreiðslu, eft-
irfylgni og forvarnir skilvirkari.
„Þetta eru nú bara orðnar verk-
lagsreglur hjá okkur í dag svo að
þegar lögreglan er kölluð til þá opn-
ast allir gluggar kerfisins þannig
að félagsþjónusta, barnavernd
og fleiri koma beint að málinu og
svo höfum við eftirfylgni og vitj-
um fórnarlamba til að fyrirbyggja
frekari vanda.“ Hann segir því að
hluta af aukningunni megi skrifa á
reikning skilvirkari verklagsreglna
og eins vitundarvakningar í sam-
félaginu.
Fyrir nokkrum dögum var tek-
inn í notkun neyðarhnappur sem
ætlaður er fólki sem býr við við-
kvæmar aðstæður, eins og Skúli
orðar það. Það getur verið í tilfell-
um þar sem þolandi heimilisofbeld-
is býr við þá hættu að brotamaður-
inn brjóti nálgunarbann og ógni
öryggi þolanda. Verkefnið er gert
í samvinnu við fyrirtæki í öryggis-
þjónustu sem leigir hnappinn.
Aðeins einn notandi er með hnapp-
inn enn sem komið er. Þolandinn er
vaktaður hvar sem hann er á land-
inu og bregst lögregla viðkomandi
umdæmis við ef notandinn neyð-
ist til að hringja meðan hann er
utan Suðurnesja. Lögregla í öllum
umdæmum hefur einnig gögn um
mál þolanda. Nýlundan er tilkomin
að frumkvæði lögreglunnar á Suð-
urnesjum.
„Við vorum á ráðstefnu í fyrra-
vetur á Spáni og þar kom það fram
að sums staðar er brugðist við þessu
svona svo við ákváðum að prófa.“
Aðspurður hvort hann telji lík-
legt að þessir hnappar verði notað-
ir í fleiri tilfellum segir hann: „Ég
get lítið sagt um það, það veltur á
þolendum. En þetta er til staðar og
viðleitni okkar líka.“ Hann segir
enn fremur að hnappurinn geti
haft fyrirbyggjandi áhrif því brota-
maður sé ólíklegri til að leggja til
atlögu viti hann af þessum öryggis-
ventli þolandans. jse@frettabladid.is
Mál tengd ofbeldi á
heimilum þrefaldast
Lögreglan á Suðurnesjum sker upp herör gegn heimilisofbeldi. Fjöldi slíkra mála
hefur þrefaldast á þremur árum. Neyðarhnappur sem nú er notaður til að vernda
þolanda í áhættu var tekinn í notkun að frumkvæði lögreglunnar á Suðurnesjum.
HEIMILISOFBELDI Tilfellum þar sem lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að láta til
sín taka vegna heimilisofbeldis hefur fjölgað verulega. Hún tekur á málinu af fullum
þunga og leitar ýmissa leiða. NORDICPHOTOS/GETTY
FERÐAÞJÓNUSTA „Hafnarfjarðar-
bær hafði samband við okkur að
fyrra bragði til að leita eftir hug-
myndum að sýningu tengdri jökl-
um sem þróaðist út í samstarf um
þekkingarsetur um jöklana, snjó
og ís,“ segir Páll Ásgeir Davíðs-
son, framkvæmdastjóri alþjóð-
legu félagasamtakanna Vox Nat-
urae.
Samtökin hafa óskað eftir lóð
í Hafnarfirði undir íshöll og sýn-
ingarskála. Þar vill Vox Naturae
nota nýjustu tækni til að fræða
ferðamenn og aðra um jöklana,
snjó og ís.
„Gestir hallarinnar eiga þar
eftir að koma inn í 360 gráðu upp-
lifun. Við erum að að vinna þetta
með erlendum listamönnum sem
hafa sérhæft sig í þessari tækni,“
segir Páll.
Bæjaryfirvöld hafa falið skipu-
lags- og byggingarsviði bæjarins
að ræða við samtökin um stað-
setningu íshallarinnar. Einn-
ig liggur fyrir viljayfirlýsing á
milli Vox Naturae og bæjarins
um þróun og uppbyggingu verk-
efnisins. Í yfirlýsingunni segir að
íshöllin eigi að auka komu ferða-
manna til bæjarins.
„Og styrkja stöðu Íslands sem
mögulegs ráðstefnuvettvangs um
málefni tengd snjó og ís,“ segir
Páll.
„Þegar staðsetningin verð-
ur komin þá förum við í að leita
að fjármagni í verkefnið og við
munum meðal annars leita til
erlendra styrktaraðila.“
- hg
Vilja koma á þekkingarsetri um íslensku jöklana, snjó og ís í stórri íshöll og sýningarskála í Hafnarfirði:
Hafnarfjarðarbær vill íshöll Vox Naturae
SNÆFELLSJÖKULL Samtökin vilja auka
vitund um afleiðingar þess að ís og snjó-
hula fer ört hopandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þegar lögreglan er
kölluð til þá opnast allir
gluggar kerfisins þannig
að félagsþjónusta, barna-
vernd og fleiri koma beint
að málinu.
Skúli Jónsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
2013 56
2012 43
2011 27
2010 18
Fjöldi heimilisofbeldismála sem
komu til kasta lögreglunnar á
Suðurnesjum.
➜ Heimilisofbeldismál
á Suðurnesjum
EFNAHAGSMÁL Búið er að ráða fjölmarga sérfræðinga og fyrir-
tæki til að aðstoða íslensk stjórnvöld við afnám fjármagns-
hafta.
Glenn Kim mun stýra verkefninu. Kim hefur meðal annars
starfað sem ráðgjafi þýska fjármálaráðuneytisins við endur-
skipulagningu á evrusvæðinu.
Með Kim munu starfa Benedikt Gíslason, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, Eiríkur Svavarsson, hæstaréttarlögmaður
og einn forsvarsmanna InDe fence-hóps ins, ásamt Frey Her-
mannssyni, forstöðumanni fjárstýringar Seðlabanka Íslands.
Lögmannsstofa Lee Buchheit, aðalsamningamanns Íslands í
Icesave-deilunni, mun einnig vinna að losun haftanna.
Fleiri sérfræðingar koma að verkefninu. Til dæmis starfs-
menn ráðgjafarfyrirtækisins White Oak Advisory LLP og
hagfræðiprófessorinn Anne Krueger. -ih
Fjármálaráðuneytið hefur skipað sérfræðingahóp vegna afnáms hafta:
Þýskur sérfræðingur í haftanefnd
FÁ AÐSTOÐ
Fjármálaráðu-
neytið er búið
að ráða fjölda
sérfræðinga til
að aðstoða við
afnám hafta.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI