Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 12
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
VERSLUN „Við teljum þetta fyrir-
komulag sem við búum við í dag á
úthlutun tollkvóta alveg fráleitt,“
segir Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna.
Fréttablaðið greindi frá því á
þriðjudag að innlend framleiðsla
annar ekki eftirspurn eftir ákveðn-
um hlutum svína, svo sem grísa-
hryggjum og svínasíðum. Þar af
leiðandi þurfti í fyrra að flytja inn
um 440 tonn af svínakjöti til lands-
ins, en þrátt fyrir skort á þessu
kjöti greiða innflytjendur háa tolla
af þessum vörum. Sama saga hefur
verið sögð í Fréttablaðinu á undan-
förnum mánuðum af öðrum land-
búnaðarvörum þar sem staðfestur
skortur er fyrir hendi.
Nú þegar er skortur á nautgripa-
kjöti þannig að fyrirsjáanlegt er að
innlendir framleiðendur muni ekki
ná að bregðast við eftirspurn. Sam-
tök verslunar og þjónustu (SVÞ)
óskuðu eftir því við landbúnaðar-
ráðuneytið að tollar á nautakjöti
yrðu felldir niður án tafar. Erind-
ið hefur ekki enn verið afgreitt.
„Það sem okkur finnst ankannalegt
í þessu er hvernig stjórnvöld geta
réttlætt það að halda uppi vernd
fyrir framleiðslu sem ekki getur
annað eftirspurn. Ekkert bendir
til þess að íslenskir framleiðendur
muni gera það á næstunni, bændur
fá fullt verð fyrir alla þá mjólk sem
þeir framleiða og þar af leiðandi er
meiri hvati til að framleiða mjólk
en nautakjöt. Þetta ætti að vera
hvati fyrir stjórnvöld til að lækka
verulega eða afnema tolla af nauta-
kjötinu,“ segir Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri SVÞ.
Greint var frá því í desember
í fyrra að skortur væri á íslensku
smjöri og því var Mjólkursamsöl-
unni leyft að flytja inn írskt smjör.
Andrés gagnrýnir muninn á við-
bragðstíma stjórnvalda eftir því
hvaðan erindin koma. „Viðbragðs-
leysi stjórnvalda gagnvart erindi
okkar er mjög athyglisvert og þegar
það er borið saman við beiðni Mjólk-
ursamsölunnar vegna yfirvofandi
skorts á smjöri. Þar var brugðist
við strax.“
Andrés segir að hið sama eigi
við um kjúkling, en salmonellusýk-
ing komi reglulega upp í íslenskum
kjúklingabúum. „Þá verður skortur.
Það gerist ekki síst svona síðsumars
og tekst aldrei að fylla með eðlileg-
um hætti upp í það tómarúm sem
myndast.“ Innflytjendur greiði samt
sem áður tolla af innfluttum kjúk-
lingi, þrátt fyrir að ekki sé hægt að
anna eftirspurn.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir framleiðendur halda uppi
verði og kaupa sig frá samkeppni.
„Að mínu mati þarf að lækka
þessa tolla þannig að það myndist
meira verðaðhald á innanlands-
markaði. Við erum að horfa upp
á það til dæmis í nautakjötinu að
frá því í ágúst hefur verð hækkað
um rúm 20 prósent á meðan verð-
bólga er innan við þrjú prósent.
Það er skortur á nautakjöti sem
veldur þessu, framleiðendur eru
að hækka verð langt umfram það
sem eðlilegt er. Þeir geta leyft sér
að hækka verð á almennri neyslu-
vöru, nauðsynjavöru um yfir tutt-
ugu prósent. Það er óeðlilegt að
mínu mati,“ segir hann.
Finnur segir að ekki sé hægt að
flytja inn nautakjöt til að mæta
þessum skorti nema á ofurtoll-
um, verðið hækki, þar af leið-
andi neysluvísitalan í kjölfarið og
síðan lán heimilanna. „Kerfið er
úr sér gengið og stjórnvöld verða
að bregðast við með því að lækka
þessa ofurtolla. Þá eru menn ekki í
þeirri aðstöðu að misnota kerfið til
að hækka verðið langt umfram það
sem eðlilegt er.“
Jóhannes bendir á að fyrir-
komulagið við úthlutun tollkvót-
anna bitni á neytendum. „Menn
bjóða í kvótann, sá sem býður
hæst fær úthlutun. Að sjálfsögðu
felst í þessu kostnaður sem inn-
flytjandinn þarf að borga og hann
leggur það ofan á vöruverð. Þarna
er verið að draga úr ávinningi sem
neytendur ella hefðu haft af þess-
um innflutningi.“
Fréttablaðið hefur ítrekað á
undan förnum mánuðum, við vinnslu
frétta af tollum á landbúnaðarvör-
um og áhrifum þeirra á neytendur,
reynt að ná í Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur innanríkisráðherra, sem
fer með neytendamál í ríkisstjórn-
inni, án árangurs. fanney@frettabladid.is
Framleiðendur kaupa sig frá samkeppni
Mörg dæmi eru um að umframeftirspurn sé eftir ýmsum landbúnaðarvörum en samt greiða innflytjendur fullan toll af vörunum. For-
maður Neytendasamtakanna segir tollkvótakerfið fráleitt og forstjóri Haga segir kerfið í heild úr sér gengið og þarfnast endurskoðunar.
BREYTINGA ER ÞÖRF Framkvæmdastjóri SVÞ, formaður Neytendasamtakanna og
forstjóri Haga eru allir sammála um að breytinga sé þörf á landbúnaðarkerfinu til
að hagur neytenda sé tryggður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Erlent verð
án tolla
%
tollur
Magntollur á
hvert kíló
Verð með
tollum
Samtals
tollur
Algengt inn-
kaupsverð
Verðmunur á
innlendu og inn-
fl uttu án tolla
Kjúklinga-
bringur
700 18% 540 1.353 93% 1.860 166%
Svínasíður/
beikon
500 18% 217 797 59% 900 80%
Nautalundir 2.500 18% 877 3.827 53% 4.450 78%
Camembert-
ostur
1.300 90% 430 2.080 60% 2.340 80%
VÖRURVERÐ MEÐ INNFLUTNINGSTOLLUM*
*Verð er miðað við kíló, verð og uppruni í Evrópu
210 hestafla dísilvél, 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýri og loftpúðafjöðrun með Terrain Response drifbúnaði á öllum
hjólum gera Land Rover Discovery 4 að einum öflugasta og þægilegasta jeppa sem völ er á. Meðal nýjunga er nýr framendi með
nýjum aðalljósum, breytt afturljós, start/stopp ræsibúnaður og Meridian 380W hljómtæki.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
19
7
1
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
ÞAÐ ER KOMINN NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
Discovery 4 S – verð frá: 11.890.000 kr.
Eldsneytisnotkun 8,8 l/100 km* í blönduðum akstri.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
KEMUR ÞÚ AF FJÖLLUM?
landrover.is