Fréttablaðið - 10.07.2014, Page 25

Fréttablaðið - 10.07.2014, Page 25
FIMMTUDAGUR 10. júlí 2014 | SKOÐUN | 25 1 Af hverju náttúruvernd-argjald? Fjöldi erlendra ferðamanna í Mývatns- sveit hefur nær sex- faldast á síðasta ára- tug. Áætlað er að um 400.000 erlendir ferða- menn heimsæki sveit- ina í ár. Vegna gífur- legs ágangs erlendra ferðamanna nær náttúr- an ekki að viðhalda sér, auk þess sem öryggi ferðamanna er ábótavant. Ríkið hefur ekki komið að uppbygg- ingu í einkalandi á Íslandi síð- asta áratug og lítið sem ekkert á því landi sem er í ríkisforsjá, sbr. þjóðgarðinn á Þingvöll- um og aðrar náttúruperlur. Landeigendur í Landeigend- um Reykjahlíðar ehf. (LR ehf.) hafa miklar áhyggjur af versn- andi ástandi náttúrunnar í sínu landi. Því hefur sú leið verið farin að óska eftir að þeir sem njóti hennar, taki þátt í kostn- aði við uppbyggingu svæðanna. Tveir kostir voru í stöðunni: að loka þessum svæðum eða hefja gjaldtöku strax. Gjaldtöku við Dettifoss var frestað til 1. maí 2015. 2 Hversu hátt er gjaldið? Inn á hvorn stað, Hveri austan Náma- skarðs og Leirhnjúk, er gjald- ið 800 kr. m/vsk. og frítt fyrir 18 ára og yngri. Af hverjum miða tekur ríkið 163 kr. (25,5% virðisauki) sem er ný tekju- lind sem rennur beint til ríkis- ins. Þessar 163 krónur skila sér líklega ekki til baka til uppbyggingar á okkar svæði. Athugaður var sá möguleiki að Íslendingar fengju frítt inn á svæðin en óvíst er að það hefði staðist íslensk lög. Athygli vekur að þó að ferðaþjónustuaðilar fái um 450 milljónir króna árlega frá ríkinu í endur- greiddan virðisauka, þá hafa þeir ekki veitt neina fjár- muni í verndun eða uppbygg- ingu náttúrusvæða sem þeir selja ferðamönnum inn á. Því er erfitt að skilja gagnrýni þeirra á gjaldtöku fyrir uppbyggingu á ferðamannasvæðum. Í dag á sér stað mismunun í ferðaþjónustu, því sumir greiða engan virðis- auka, aðrir 7%, en landeigendur í Reykjahlíð eru skyldaðir til að greiða 25,5%. Hvers vegna? 3 Hverjir eiga Reykjahlíð, stærstu jörð í einkaeigu á Íslandi, og hvernig eignuðust þeir hana? Jörðin Reykjahlíð, sem talin er vera um 150 þúsund hektarar að flatarmáli, er í eigu 17 einstak- linga og fjölskyldna þeirra og eru eignarhlutirnir mismunandi stórt hlutfall af jörðinni, frá 0,55% upp í 25%. Jörðin Reykja- hlíð var keypt árið 1895 fyrir 7.000 ríkisdali auk jarðar sem var sett upp í kaupverðið. Eign- inni fylgdu þær kvaðir að ferja alla ferðamenn yfir Jökulsá á Fjöllum og tóku Reykhlíðungar ferjutoll fyrir. Eigendur hafa frá upphafi til dagsins í dag greitt alla skatta og skyldur af jörðinni eða í 119 ár! Jörðin Reykjahlíð er ekki sjálftökujörð. Tekjur af jörðinni eru mjög litlar miðað við gæði, umfang og stærð. Landeigendur stofnuðu hags- munafélag allra landeigenda í formi einkahlutafélags (ehf.) árið 2002 og er hlutur hvers og eins í félaginu í samræmi við eignarhlut hans í jörðinni. 4 Hvernig verður náttúruvernd-argjaldinu ráðstafað? Landeig- endur hafa því miður ekki laust fjármagn og hefur LR ehf. tekið á sig fjárskuldbindingar vegna stofnkostnaðar þessa verkefnis ásamt vinnulaunum upp á nær 30-40 m.kr. Fyrst verður staðið við þær skuldbindingar og það sem eftir er fer í uppbyggingu og verndun. Á næstu árum eru mörg verkefni áætluð, svo sem hönnun og bygging þjónustu- húsa, göngupalla/útsýnispalla (allt handunnið), bílastæða, sal- ernisþjónustu og ótal lagfæringa á illa förnum göngustígum í kíló- metratali. Öll uppbygging tekur mið af náttúru hvers svæðis. Heimamenn, sem best þekkja sitt eigið land, munu koma að þessum framkvæmdum ásamt sérfræðingum á hverju sviði. 5 Hvers vegna ekki að bíða eftir „náttúrupassa“ 2015? Veru- legur meirihluti landeigenda treystir ekki ríkinu né stjórn- málamönnum til að koma með útfærslu á gjaldtöku þannig að Mývatnssveit/Reykjahlíð fái það sem henni ber miðað við fjölda ferðamanna sem koma í sveitina. Löng reynsla af aðgerðaleysi ríkisins sem og sjóða í þess umsjá undanfarin 12 ár sýnir það. Einkaaðilum er og verður ekki gert hátt undir höfði varðandi úthlutun úr sjóð- um sem stjórnað er af ríkinu. Á því verður engin breyting. Fjölmennar nefndir á vegum ríkisins, ráðuneyti og samtök ferðaþjónustunnar (SAF o.fl.) hafa ekki skýrt á einfaldan hátt, hvern- ig slík gjaldtaka verður útfærð, hver fær hvað eða hvernig hlut- fallið verður reiknað út, t.d fyrir Reykjahlíð. Á meðan svo er, er það skylda okkar að vernda land- ið og því hefjum við gjaldtöku nú í sumar. Við erum samt tilbúin til við- ræðna um góðar hugmyndir, en því miður er ekki mikil bjartsýni meðal flestra landeigenda. Það sem vakir fyrir landeig- endum Reykjahlíðar er að vernda náttúruna og skapa góða ímynd þegar til lengri tíma er litið. Verið velkomin á upplýsinga- og sölusíðu verkefnis okkar: náttúru- gjald.is Frh. kemur í grein 2 er birtist síðar. Af hverju náttúruverndargjald í Reykjahlíð? Fyrri grein Það lýsir best hinum innri manni hvernig við komum fram við þá sem eru varnar- lausir og á okkur treysta, rík þjóð sem Íslendingar á að sjá sóma sinn í að tryggja öllum lágmarks- framfærslu til samræmis við raunverulegan framfærslu- kostnað. Það sparkar enginn með heilbrigða sið- vitund í liggj- andi mann né skerðir lífsgæði þeirra þögulu. Ég bið ykkur um að hjálpa mér við að safna undirskriftum til að þrýsta á Alþingi um að sett verði lög til að tryggja lág- markslaun og að við þau verði framfærsla öryrkja, aldraðra, atvinnulausra og annarra sem fá bætur miðuð. Við eigum ekki að umbera biðraðir eftir matar- og fjár- hagsaðstoð í jafn auðlindaríku landi og okkar. Friður og sátt tryggir vel- megun, mismunun og stéttskipt- ing tryggir ófrið og sundrungu. Vinsamlega undirritið og deilið áfram sem mest: http://www.avaaz.org/en/ petition/Althingi_setji_log_um_ lagmarkslaun_Vid_skorum_a_Alt- hingi_ad_logsetja_lagmarkslaun_ til_samraemis_vid_framfaerslu/?- copy Tryggjum mannvirðingu alls launafólks SAMFÉLAG Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm áhugamaður um velferð FERÐAÞJÓNUSTA Ólafur H. Jónsson forsvarsmaður LR ehf. fyrir verkefninu ➜Það sem vakir fyrir land- eigendum Reykjahlíðar er að vernda náttúruna … KAFFIVÉLAR, ELDHÚSÁHÖLD, POTTAR OG PÖNNUR, VÖFFLUJÁRN, BLANDARAR, DISKAR OG GLÖS, HEILSUGRILL, BORÐBÚNAÐUR, SAFAPRESSUR, BÖKUNARVÖRUR, RYKSUGUR, SUMAR- OG GRILLVÖRUR, BRAUÐRISTAR, HRAÐSUÐUKÖNNUR, ELDFÖST MÓT, HITAKÖNNUR OG BRÚSAR, BAÐVOGIR OG MARGT FLEIRA! Líkaðu við okku r á Facebook: www.facebook .com/ byggtogbuid SUMARÚTSALAN ER HAFIN! RISA Nú má skoða útsöluvörurnar líka á byggtogbuid.is 20-90% afsláttur! HUNDRUÐIR VARA!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.