Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 26

Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 26
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26 Dómur Hæstaréttar frá 12. júní yfir 34 ára karl- manni hefur vakið athygli þar sem fágætt er að maður sé dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að brjóta gegn barni. Það hefur gerst tvisvar áður, árið 1961 og 1983. Málavextir voru þeir að maður, sem hafði verið í langvarandi fíkniefna- neyslu, ók upp að 10 ára telpu á leið heim úr skóla. Hann fór út úr bílnum og réðst fyrirvaralaust á hana. Þegar hún hrópaði á hjálp tók hann fyrir munn hennar, ýtti henni inn í bif- reiðina, lét hana leggjast á gólfið og huldi hana fötum. Hann ók með hana á afvikinn stað og hélt henni fanginni. Hann villti á sér heimild- ir og sagðist vera lögreglumaður sem hefði það verkefni að líkja eftir alvöru barnsráni til að sýna fram á að það væri ekkert hættulegt að taka börn upp í bifreið. Hann beitti hana grófu kynferðislegu ofbeldi og tók hreyfimynd og ljósmynd- ir af verknaðinum á símann sinn. Maðurinn var sakfelldur fyrir að nema barnið á brott, svipta það frelsi og brjóta gegn kynfrelsi þess. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brotið hafi verið þaulskipu- lagt og lýsti styrkum og einbeittum brotavilja. Það hafi beinst að varn- arlausu barni, sem átti sér einskis ills von og að maðurinn hafi svipt telpuna frelsi í rúmar tvær klukku- stundir. Þá hafi hann reynt að leyna brotunum eftir verknaðinn með því að afmá verksummerki. Þá var litið til þess að afleiðingar brotanna hafi reynst telpunni þungbærar og hafi haft mikil áhrif á líf hennar. Hæstiréttur dæmdi manninn í 10 ára fangelsi, en héraðsdómur hafði dæmt hann í 7 ára fangelsi. Tvisvar áður 10 ára dómar Tvisvar áður hefur maður verið dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir að ráðast á barn og beita það kynferðisofbeldi. Fyrra brotið var framið árið 1961 og hið síðara 1983. Í fyrra málinu réðst ölvaður karlmaður á 12 ára telpu á barnaleikvelli að kvöld- lagi. Telpan var á heimleið eftir að hafa verið með vin- konum sínum og stytti sér leið yfir leikvöllinn. Mað- urinn, sem var þrítugur, nauðgaði telpunni eftir að hafa skorið utan af henni fötin með hnífi. Hann beitti grófu ofbeldi við verknaðinn, m.a. sló hann höfði telpunnar við stein- vegg svo hún missti meðvitund. Í seinna málinu var tæplega þrítugur karlmaður sakfelldur fyrir að mis- þyrma á hrottafenginn hátt 15 ára stúlku sem hann reyndi að nauðga. Stúlkan þekkti manninn ekki. Hann barði hana ítrekað í höfuðið með grjóti og beitti hættulegu verkfæri á viðkvæma líkamshluta hennar. Þessi þrjú mál eiga það sameig- inlegt að brotamennirnir eru með öllu ókunnugir fórnarlambinu og beita sérlega meiðandi aðferðum. Í eldri málunum voru stúlkurnar beittar hrottafengnu ofbeldi og í því nýja var stúlkan numin á brott og haldið fanginni í bifreið manns- ins. Það er ólíkt með málunum þremur að samkvæmt eldri dómun- um voru hinir refsiverðu verknaðir ekki skipulagðir fyrirfram meðan sakborningur í hinu nýja máli leit- ar vísvitandi uppi fórnarlamb. Brot hans var þaulskipulagt og í dómin- um kemur fram að maðurinn hafi verið búinn að hlaða niður í farsíma sinn stundatöflum nokkurra grunn- skóla og æfingatöflum íþróttafé- lags, auk þess sem miðar með nöfn- um og símanúmerum þriggja ungra stúlkna fundust í bíl hans. Á undanförnum árum hefur orðið áþreifanleg breyting á við- horfum til kynferðisbrota gegn börnum. Ástæðan er án efa aukin þekking á skaðlegum afleiðing- um brotanna. Þetta hefur leitt til breytinga í löggjöf og jafnframt hafa dómar í þessum málaflokki þyngst. Frá árinu 2009 hefur Hæstiréttur í þrígang dæmt sak- borning í 8 ára fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gegn barni og eru það þyngstu dómarnir sem kveðnir hafa verið upp í málaflokknum að þeim þremur frátöldum sem hér hafa verið gerðir að umfjöllunar- efni. Í þeim málum þekktu börn- in gerendurna, sem brutu á þeim í skjóli tengsla og trausts. Brotin voru margendurtekin og stóðu yfir í langan tíma. Fæst brot framin af ókunnugum Fréttir af dómum sem þessum valda ótta í samfélaginu. Ótta við hinn hættulega og óþekkta ger- anda. Staðreyndin er þó sú að flest brot gagnvart börnum sem koma fyrir dómstóla eru framin af þeim sem börnin þekkja og eru tilvik þar sem ókunnugir eiga í hlut fátíð. Settar hafa verið fram ýmsar kenningar um markmið og eðli refsinga. Í sinni fumstæðustu mynd snúast þær um hefnd, að gjalda líku líkt. Aðrir leggja áherslu á fælingarmátt refsinga, bæði gagnvart sakborningi svo hann endurtaki ekki brot sitt og eins gagnvart öðrum og komi í veg fyrir að slík brot verði fram- in. Enn aðrir líta svo á að markmið- ið eigi að vera betrun brotamanns- ins. Líklega eru hugmyndir okkar flestra blanda af þessu öllu. Þess væri í öllu falli óskandi að þyngri refsingar fækkuðu þessum brotum. Þyngri refsingar fyrir kynferðisbrot Fiskistofumálið og ýmislegt sem hefur verið fleygt fram í því samhengi hefur vakið athygli mína. Í áratugi hefur heyrst af því að stefna allra stjórnmálaflokka hafi í orði verið á þá lund að gæta beri að jafnvægi í byggð lands- ins og byggja upp störf utan höfuðborgarsvæðis- ins. Þetta á ekki síst við um opinber störf, sem þegar eru um fjórðungur allra starfa í landinu og það hlutfall mun hækka, ef þróunin verður eins og í velferðarlöndum í kringum okkur. Ríkið verður því að reka þá starf- semi, sem er á þess vegum víðar en á höfuðborgarsvæðinu og þess vegna væntanlega hafa allir stjórn- málaflokkar haft þetta á stefnuskrá sinni um áratugaskeið. En af hverju aðeins í orði en ekki á borði? Það hefur nefnilega komið í ljós í þessari umfjöllun um flutning Fiskistofu að opinberum störfum úti á landi hefur á undanförnum árum fækkað á meðan störfum á vegum ríkisins fjölgar og þar með hefur opinberum störfum á landsbyggð- inni fækkað hlutfallslega enn meira. Spurningin er því hverju sé um að kenna að opinber störf dreifast svona ójafnt á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins, þrátt fyrir þessa stefnu stjórnmálaflokkanna. Stefnu sem oftar en ekki kemst í stjórnarsáttmála, sem flaggað er á tyllidögum. Er það vegna ístöðuleys- is stjórnmálamanna? Jú, vissulega höfum við oft orðið vitni að því að stjórnmálamenn fylgja ekki þess- um stefnumálum flokka sinna þegar reynir á. (Það á reyndar við um fleiri mál!) Gífurleg mótstaða En við höfum líka alltaf þurft að horfa á gífurlega mótstöðu embættismanna, þegar flutningur er nefnd- ur á nafn. Og miðað við hve illa hefur gengið að fá opinber störf út á land og hve drjúgan þátt embættis- menn hafa átt í að sú stefna hefur í reynd breyst í and- hverfu sína, má álykta að embætt- ismenn hafi haft mjög einbeittan brotavilja þegar reynt er að fylgja stefnu og ákvörðunum stjórnvalda í þessum efnum. Þegar Fiskistofa var stofnuð hafði tiltölulega nýlega verið sam- þykkt þingsályktun á Alþingi um að miðstöð stjórnsýslu og mennt- unar í sjávarútvegi skyldi staðsett á Akureyri. Það hefði því verið eðli- legt að Fiskistofa hefði verið stað- sett á Akureyri. Það má í raun segja að það hafi verið mistök í upphafi að stofna hana í Reykjavík. Og í ákveðnum skilning má segja að með ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að flytja Fiskistofu til Akureyrar sé verið að leiðrétta mistök frá fyrri árum. Mér finnst það bara gott mál en ég eins og aðrir legg þó áherslu á að það komi einstaklingum sem hjá Fiskistofu starfa og fjölskyldum þeirra ekki illa. Hjá því mætti auð- veldlega komast með því að gefa sér góðan tíma í flutninginn, þannig að hann haldist í hendur við þá starfs- mannaveltu, sem hvort eð er verður hjá stofnuninni. Fiskistofumálið – mistök eða leiðrétting? Alltaf er það gott þegar fólk er heiðrað að verðleik- um fyrir vel unnin störf og afrek á lífsleiðinni. Snemma í maí var frá því greint í Morgunblaðinu (02.05.2014) að American Scandinavian Founda- tion, sem eru eins og blaðið segir „aðalsamtök fólks af norrænum upp- runa í Bandaríkjunum“ hefðu heiðrað Ólaf Ragn- ar Grímsson fyrir fram- lag hans til samvinnu Íslands við Bandaríkin. Þetta var auðvitað tímabært og mátti sannarlega ekki dragast öllu lengur. Ólafur Ragnar Grímsson átti að baki langan feril í stjórnmálum á Íslandi, þegar hann af einstakri fórnfýsi bauðst til að verða forseti lýðveldisins. Það þáði þjóðin. Með þökkum að því er virtist. Það var eitt öðru fremur, sem setti mark á stjórnmálaferil Ólafs Ragnars Grímssonar. Það var að gera allt sem í hans valdi stóð til að spilla og skaða samvinnu og sam- skipti Íslands og Bandaríkjanna. Ólafur Ragnar Grímsson var í öllu sínu pólitíska starfi andvígur varnarsamstarfinu við Bandarík- in og vestrænar þjóðir og aðildinni að Nató sem í áratugi hefur verið einn af hornsteinum utanríkis- stefnu íslenska lýðveldisins. Hann barðist gegn þessu með kjafti og klóm. Það gerði hann hvar sem var og hvenær sem var og taldi ekkert eftir sér í þeim efnum. Ólafur Ragnar Grímsson vann markvisst að því að koma því inn hjá þjóðinni, og naut þar aðstoðar fjölmiðla, eins og Ríkisútvarps- ins, að Bandaríkjamenn geymdu kjarnorkuvopn á Íslandi og héldu því leyndu fyrir íslenskum ráðamönnum. Fullyrðingar hans reyndust rangar. Erlendur maður, William Arkin, sem hafði látið að þessu liggja kom hingað til þess að biðjast afsök- unar á ummælum sínum. Ekki rekur mig minni til þess að Ólafur Ragn- ar Grímsson hafi dregið í land með nein ummæli sín um kjarnorkuvopn Banda- ríkjamanna á Íslandi. Eða beðið nokkurn mann afsökunar. Ólafur Ragnar Grímsson barðist gegn byggingu nýrrar flugstöðvar við Keflavíkurflugvöll vegna þess að hann leit á flugstöðina sem ein- hverskonar hernaðarmannvirki í þágu Bandaríkjanna. Illu heillu tókst honum að fá flugstöðina minnkaða frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir. Ólafur Ragnar Grímsson vildi leggja Ameríkuflug Flugleiða niður. Steingrímur Hermanns- son, þá samgönguráðherra, kom í veg fyrir að þau áform hans næðu fram að ganga. Þessa sögu kunna þeir vel, sem störfuðu að flugmál- um á þeim tíma. Einstæð uppákoma Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lét hringja í Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkj- anna á Íslandi, í apríl 2009 þegar hún var á leið til Bessastaða til að veita hinni íslensku fálkaorðu við- töku. Henni hafði verið tilkynnt að hún hefði verið sæmd fálkaorð- unni. Efni símtalsins frá forseta Íslands var að segja Carol van Voorst, sendiherra bandarísku þjóðarinnar á Íslandi, að þetta væri allt tóm vitleysa. Hún fengi enga fálkaorðu. Þetta væri bara allsherjar misskilningur. Seinna gaf hann í skyn að hún verðskuld- aði ekki fálkaorðuna. Eftir þessa einstæðu uppákomu varð nokkur bið á því að Bandaríkin skipuðu nýjan sendiherra á Íslandi. Þótt sumum kunni að finnast það ótrú- legt þá skaðaði þessi gjörð forset- ans samskipti Íslands og Banda- ríkjanna meira en flest annað í þeirri sögu allri. Það var sennilega ekki þetta sem American Scandinavian Founda- tion var að heiðra Ólaf Ragnar Grímsson fyrir í bættum sam- skiptum Íslands og Bandaríkj- anna. Eða hvað? Eru störf og stefna stjórnmála- mannsins Ólafs Ragnars Gríms- sonar eitthvað, sem allir eiga að gleyma? Ég er ekki þeirrar skoðunar. Þannig á ekki að skrifa söguna. Allan sinn stjórnmálaferil vann Ólafur Ragnar Grímsson mark- visst að því að spilla og skaða sam- starf Íslands við Bandaríkin. Seinni árin hefur hann kosið að bregða yfir sig öðrum blæ. Sög- unni verður samt ekki breytt. Sagan verður ekki endurskrifuð. Það er bara reynt í þeim ríkjum, sem við síst viljum líkjast. Auðvitað getur American Scand- inavian Foundation heiðrað Ólaf Ragnar Grímsson. En ekki fyrir framlag hans til að bæta og efla samvinnu Íslands og Bandaríkj- anna. Heiður þeim sem heiður ber? STJÓRNSÝSLA Pétur Bjarnason sjávarútvegs fræð- ingur frá Háskól- anum í Tromsö Sumarleyfin eru fram undan, sumarbústaða- hverfin eru vöknuð og umferðin á þjóðvegunum eykst. Sumir velja að eyða fríinu í rólegheitum, aðrir þjóta upp á fjöll eða leita á vit annarra ævintýra. Ein- hverjir ætla kannski að nota fríið til að dytta að húsinu sínu eða mála þakið. Hraði og spenna eru oft samfara fríinu. Slysahætt- ur leynast víða en þær eru mestar þegar breytt er út af vananum. Mænuskaði er meðal alvarlegustu afleiðinga slysa og hefur mikil áhrif á einstaklinginn og fjölskyldu hans. Margir þurfa að læra að lifa lífinu að nýju við gerólíkar aðstæður, oft lamaðir og háðir hjólastól eða með verulega skerta færni ævilangt. Helstu orsakir mænuskaða hér Umferðarslys eru algengasta orsök mænuskaða. Flest þeirra hafa átt sér stað í bílveltum úti á þjóðvegum landsins, oft í beygjum eða lausa- möl. Í langflestum tilfellum hefur hinn slasaði ekki notað bílbelti og stundum hefur verið um of hraðan akstur að ræða miðað við aðstæður. Notkun vélhjóla hefur aukist til muna á undanförnum árum. Mikill hraði er oft samfara vélhjólanotkun og þá þarf lítið að bregða út af til að alvarlegt slys verði. Fall er næst algengasta orsök mænuskaða hér á landi og getur verið um að ræða fall úr mikilli hæð allt niður í fall á jafnsléttu. Slík slys geta hent hvern sem er. Frístundaslys eru u.þ.b. 20% af öllum mænuskaðaslysum og eru hestaslys algengust þeirra. Áhugi á hestamennsku fer sívaxandi og fjöldi þeirra sem hefur fengið mænuskaða í hestaslysi hefur einn- ig aukist. Samkvæmt gögnum frá WHO, alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, eru dýfingaslys algengasta frístundas- lysið í heiminum sem veld- ur mænuskaða. Flest þess- ara slysa verða á sumrin þegar fólk stingur sér í ár, grunn stöðuvötn eða í sjó. Hér á Íslandi hafa mænuskaðaslys vegna dýf- inga verið fátíð en þau hafa öll átt sér stað í grunnum sundlaugum. Strangar öryggisreglur eru á opin- berum sundstöðum lands- ins um dýfingar. Einka- sundlaugar eru oftast grunnar og ekki hannað- ar til dýfinga. Reglur um dýfingar í tengslum við þær eru sjaldséðar. Um leið og sumrar sjáum við fréttir með flottum myndum af fólki að leika sér í góða veðrinu að stökkva fram af klettum út í ár, stöðuvötn og sjó, eins og sjá mátti á forsíðu Fréttablaðsins þriðju- daginn 24.júní. Þetta sport verð- ur sívinsælla og heyrst hefur að á samskiptamiðlunum sé unga fólkið að mana hvert annað til að stökkva út í sjó og vötn. Forðumst mænuskaða Við getum minnkað áhættuna á alvarlegum slysum með nokkrum einföldum ráðum: ● Notaðu alltaf bílbelti í umferð- inni – líka í aftursætinu ● Aktu miðað við aðstæður – gættu að hraðanum og lausamöl- inni ● Fylgdu öryggisreglum í byggingavinnu ● Sýndu aðgát í bröttum hlíðum, skriðum og klettum ● Fylgdu öryggisreglum, sýndu aðgát og tillitssemi í hesta- mennsku ● Gættu að dýpi vatns og athugaðu botn þess áður en þú stingur þér ● Aldrei stinga þér í grunna sundlaug, stöðuvatn, á eða í sjó Kæru landsmenn, förum eftir þessum einföldu ráðum, njótum sumarsins og komum heil heim. Frí fram undan – komum heil heim HEILBRIGÐISMÁL Sigrún Knútsdóttir klínískur ráðgjafi um mænuskaða á sjúkraþjálfun Landspítala Grensási DÓMSMÁL Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík UTANRÍKISMÁL Eiður Svanberg Guðnason fyrrverandi stjórnmálamaður ➜ Á undanförnum árum hefur orðið áþreifanleg breyting á viðhorfum til kynferðisbrota gegn börnum. Ástæðan er án efa aukin þekking á skaðlegum áhrifum brotanna. ➜ Sagan verður ekki endurskrifuð. Það er bara reynt í þeim ríkjum, sem við síst viljum líkjast.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.