Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 30
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447 BLÁMI Simons notaði létt og lipur efni. Raf Simons er belgískur tískuhönnuður sem ráðinn var listrænn stjórnandi Christian Dior árið 2012. Hann er lítt þekktur fyrir að nýta gamlar hugmyndir í verkum sínum og kýs þess í stað að líta fram á veginn. Á hátískusýningu Dior fyrir haustið 2014 sem fram fór í París nýverið var annað uppi á teningnum. Fortíðarhyggjan sveif yfir vötnum þó Simons hafi reyndar ekki einbeitt sér að einu sérstöku tímabili. Í dagskrá sýningarinnar kom fram að Simons væri forvitinn um hvernig mismunandi tímabil hefðu áhrif á þau sem á eftir kæmu. Þá sagði hönnuðurinn einnig eftir sýninguna að hann hefði hugsað til hrifningar Dior sjálfs á Belle Époque- tímabilinu. Sýningunni var skipt í átta flokka en hver og einn vísaði í vissan tíma í tískusögunni. Simons hoppaði oft milli margra alda. Þannig mátti sjá kjóla á borð við þá sem þekktust á tímum Marie Antoinette og allt til samfestinga sem líktust þeim sem geimfarar klæðast. Simons þótti takast afar vel til við að gera þessi sögulegu föt nútímaleg. RÓMANTÍSKT Kjólar með stórum mjaðmapúðum vöktu verðskuldaða athygli. FIFTÍS Simons flakkaði milli áratuga og alda í hönnun sinni. ANTOINETTE Þessi kjóll hefur skýra vísun í kjóla á borð við þá sem franska drottningin Marie Antoinette klæddist seint á átjándu öld. SAMFESTINGUR Í anda vísindaskáldsagna. ÚTSAUMUR Minnir á konunglega jakka við frönsku hirðina. FJAÐRIR Kjóll sem minnir á Charleston- tímabilið. FLAKKAÐ Í TÍMA TÍSKA Tískuhönnuðurinn Raf Simons er þekktur fyrir skýra framtíðarsýn. Á tískusýningu Christian Dior á hátískuvikunni París fyrir stuttu sýndi hann á sér nýja hlið enda voru fyrri tímar honum greinilega ofarlega í huga. Opið virka daga kl . 11–18. Opið laugardaga k l. 10 - 15 Kí ki ð á m yn di r o g ve rð á F ac eb oo k Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516 Gallabuxur á 15.900 Straight leg = skálmar beinar niður. Stretch og háar í mittið. Stærð 34 - 48 (50). Eigum einnig til gallabuxur á 6.900 kr Multidophilus Pro inniheldur fjóra milljarða af virkum gerlum til að viðhalda góðu jafnvægi í meltingarflórunni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.