Fréttablaðið - 10.07.2014, Page 38
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Innilegar þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BJARGAR H. RANDVERSDÓTTUR
Sléttuvegi 23, Reykjavík.
Randver Þorláksson Guðrún Þórðardóttir
Sigríður Þorláksdóttir Ingvar Georgsson
Margrét Þóra Þorláksdóttir Árni Jörgensen
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN BJARNADÓTTIR
áður til heimilis að Kleifarvegi 3,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 11. júlí
klukkan 15.00.
María Hauksdóttir Haukur Jóhannsson
Helga Hauksdóttir Kristján Jónsson
Sólveig Hauksdóttir Haraldur Blöndal
Unnur Hauksdóttir Ólafur Morthens
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
BÁRU KJARTANSDÓTTUR
Norðurbakka 5a,
Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 27. júní. Sérstakar þakkir til starfsfólks
heimahlynningar og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi.
Guðni Adolfsson
Pálmar Ingi Guðnason Kristjana Jenný Ingvarsdóttir
Gunnar Bjarki Guðnason Rúna Gunnarsdóttir
Kristinn Geir Guðnason Eva Björg Jónsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
TÓMAS VILHELM KRISTINSSON
lést mánudaginn 30. júní síðastliðinn.
Hann verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 11. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hulda Hanna Jóhannsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVANHILDUR ÞÓRISDÓTTIR
frá Hólkoti, Reykjadal,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 7. júlí. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju 15. júlí kl. 10.30.
Jarðsett verður á Einarsstöðum í Reykjadal.
Albert Valdimarsson
Guðrún Albertsdóttir
Eva Ásrún Albertsdóttir
Valdís Albertsdóttir
Dóra Þórdís Albertsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tendamóður, ömmu og langömmu,
VALDÍSAR ÁRMANNSDÓTTUR
frá Siglufirði,
Æsufelli 6, Reykjavík.
Guðmundur Kristinn Jónsson Halldóra Pétursdóttir
Sigurður Jónsson Elísabet Þorvaldsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
hjúkrunarheimilinu Tjörn,
áður Brekkugötu 24, Þingeyri,
andaðist miðvikudaginn 2. júlí. Útför hennar
fer fram frá Þingeyrarkirkju í Dýrafirði
laugardaginn 12. júlí kl. 14.00. Sérstakar
þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Tjarnar.
Páll Björnsson Jóhanna Ström
Júlíus Bjarnason
Kolbrún Björnsdóttir Bjarni Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar
og dóttir,
HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR
Eskihlíð 8,
Sauðárkróki,
lést laugardaginn 5. júlí.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 16. júlí kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Einarsson
Lind Einarsdóttir
Guðmundur Ingvi Einarsson
Arndís María Einarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
STEINAR ÞÓR GUÐJÓNSSON
lést aðfaranótt mánudagsins 7. júlí og
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 14. júlí kl. 15.00.
María Jolanta Polanska
María Magdalena Steinarsdóttir Hjörleifur Björnsson
Sandra M. Steinarsdóttir Polanska Kjartan Guðjónsson
Árna Steinunn Rögnvaldsdóttir
Hilmar Guðjónsson Agnes Henningsdóttir
Marta Guðjónsdóttir Kjartan G. Kjartansson
Raggý Björg Guðjónsdóttir
MERKISATBURÐIR
1815 Hið íslenska Biblíufélag er stofnað með einkarétt til útgáfu
Biblíunnar á Íslandi.
1937 Danskur maður fellur um 70 metra niður í gljúfrið við Dettifoss
og lifir fallið af.
1951 Íslendingar sigra í norrænni sund-
keppni með miklum yfirburðum. Fjórði
hver landsmaður syndir 200 metra á
tímabilinu frá 20. maí til 10. júlí.
1973 Bahamaeyjar fá sjálfstæði frá
Bretlandi.
1980 Greiðslukortaviðskipti hefjast á
Íslandi er Kreditkort hf. gefa út Eurocard-greiðslukortin.
1980 Fimmta hrina Kröfluelda hefst og er sú mesta sem komið
hefur.
2009 Hótel Valhöll á Þingvöllum brennur til kaldra kola.
2011 128 manns drukkna í ánni Volgu skammt frá Kazan í Rússlandi
þegar skemmtiferðaskip sekkur.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra,
Sigríður Björnsdóttir, kona hans ,og
fjögurra ára dóttursonur þeirra, Benedikt
Vilmundarson, fórust þegar ráðherrabú-
staðurinn á Þingvöllum brann til kaldra
kola.
Fréttin um þetta hörmulega slys kom
sem reiðarslag yfir íslensku þjóðina. Var
það ætlun forsætisráðherrahjónanna
að dveljast einungis þá nótt í ráðherra-
bústaðnum, en halda síðan vestur á
Snæfellsnes þar sem ráðgert var að for-
sætisráðherra héldi ræðu á héraðsmóti.
Óvíst er um eldsupptökin en svo virðist
sem eldurinn hafi magnast á mjög
skömmum tíma.
Það voru hollenskir ferðamenn sem
fyrstir urðu brunans varir en þegar að var
komið og reynt að opna húsið var engu
líkara en sprenging yrði, svo þrungið
var loftið af eldi og reyk. Þegar ljóst var
að eldur logaði í bústaðnum hljóp einn
Hollendinganna til Valhallar sem stóð
við hliðina á bústaðnum. Jón Eiríksson,
sonur þjóðgarðsvarðar, var að störfum
og hringdi strax í slökkviliðið í Reykjavík
en þegar það var mætt á staðinn var
bústaðurinn brunninn til kaldra kola.
Hið átakanlega slys olli djúpri hryggð og
voru fánar í hálfa stöng um land allt og
flestum samkomustöðum lokað daginn
sem eldsvoðinn varð.
ÞETTA GERÐIST: 10. JÚNÍ 1970
Forsætisráðherra lést í eldsvoða
ÁTAKANLEGT SLYS Eldsvoðinn olli djúpri
hryggð á meðal íslensku þjóðarinnar.
„Við tökum dálítið þröngan hring um
miðbæinn og stoppum hér og þar til
þess að lesa ljóðin,“ segir Björn Unnar
Valsson, en hann leiðir ljóðagöngu um
slóðir hversdagsleikans í miðborginni
ásamt Einari Birni Magnússyni í kvöld.
„Við ætlum að lesa úr ljóðum sem fjalla
um einhvern veginn hversdagslegt líf
og það sem það þýðir að vera til stað-
ar í borginni,“ segir Björn Unnar en
gangan er liður í kvöldgöngum menn-
ingarstofnana borgarinnar, þar sem
hið nýstofnaða Borgarsögusafn Reykja-
víkur og Listasafn Reykjavíkur standa
fyrir skemmtun og fróðleik með léttri
hreyfingu alla fimmtudaga. Yfirskrift
göngunnar er Lífið gengur sinn gang,
sem er tilvísun í ljóðið Miðvikudagur
eftir Stein Steinar og byggir gangan á
Ljóðakorti Reykjavíkur sem starfsfólk
Borgarbókasafns setti á laggirnar síð-
astliðið haust.
„Í nánast öllum ljóðunum sem við
lesum þá er verið að fjalla um eða vísað
í staðina þar sem við stoppum,“ segir
Björn Unnar. „Þetta tengist mjög mikið
svæðinu og við erum að sýna hvaðan
ljóðin eru sprottin.“
Á kortinu, sem má finna á heimasíðu
Borgarbókasafnsins, er stærstu þyrp-
ingu ljóða að finna á milli Garðastræt-
is og Frakkastígs og þar af leiðandi úr
flestu að velja. Í göngunni, sem legg-
ur upp frá Grófarhúsi, Tryggvagötu
15, klukkan 20.00 verður þemað eins
og áður segir hversdagsleikinn, þar
sem miðbæjarljóð um daglegt líf verða
plokkuð upp úr beðum og bílastæðum.
baldvin@frettabladid.is
Plokka ljóð úr beðum
Björn Unnar Valsson leiðir ljóðagöngu um miðborgina ásamt Einari Birni Magnússyni en
þeir félagar ætla að lesa úr miðbæjarljóðum á völdum stöðum.
FRÆÐSLA OG SKEMMTUN Björn Unnar hefur leitt nokkrar ljóðagöngur og alltaf tekist vel til.