Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 46

Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 46
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 38 AFMÆLISBARN DAGSINS Leikkonan Sofia Vergara er 42 ára í dag Hún er hvað þekktust fyrir að leika Gloriu Delgado-Pritchett í sjónvarps- þáttunum Modern Family. Earth to Echo, fjölskyldumynd Aðalhlutverk: Teo Halm, Astro, Reese Hartwig, Ella Wahlestedt, Jason Gray- Stanford og Alga Smith 5,9/10 52/100 49/100 FRUMSÝNING Tarzan, teiknimynd Íslensk talsetning: Álfrún Örnólfs- dóttir, Ævar Þór Benediktsson, Guðmundur Ólafsson, Orri Huginn Ágústsson, Kolbeinn Arnbjörnsson, Víðir Guðmundsson og fleiri 4,7/10 20/100 FRUMSÝNING Bíó Paradís sýnir sex listrænar kvikmyndir í samvinnu við EYE ON FILMS-verkefnið, alþjóðlegt tengsl- anet sem leitast við að tryggja dreif- ingu fyrstu mynda í fullri lengd eftir áhugaverða leikstjóra. Myndirnar sex verða teknar til sýninga frá 11. júlí og sýndar til 31. ágúst. Myndirnar sem um ræðir eru Only in New York, The Gambler, Clip, Man Vs Trash, Before You Know It og Supernova. SEX LISTRÆNAR MYNDIR Hasarhetjan Sylvester Stallone hefur landað hlutverki í kvikmyndinni Scarpa sem Brad Furman leikstýrir. Sylvester leikur leigumorðingjann Gregory Scarpa í myndinni en hann var mafíósi í Colombo-fjölskyldunni og uppljóstrari alríkis- lögreglunnar. Hann játaði á sig þrjú morð árið 1993 og lést úr eyðni í fangelsi árið 1994. Brad Furman er þekktastur fyrir að leik- stýra The Lincoln La- wyer og Runner Runner. LEIKUR LEIGUMORÐINGJA Grínmyndin Tammy var frum- sýnd á Íslandi í gær en hún fjallar um Tammy sem missir vinnuna og kemst að því að eiginmaður henn- ar hefur haldið framhjá henni. Hún ákveður að gera eitthvað nýtt og býður ömmu sinni, Pearl, í bíltúr en amman er illa haldin af alkóhólisma. Þegar Tammy ákveð- ur síðan að ræna skyndibitastað eru góð ráð dýr og stöllurnar lenda í ýmsum ævintýrum. Leikkonan Melissa McCarthy leikur Tammy en hún náði að slá í gegn í Hollywood í kvikmyndinni Bridesmaids frá árinu 2011. Hún stal senunni og kvikmyndir eins og The Identity Thief og The Heat fylgdu í kjölfarið og er Melissa ókrýnd gríndrottning Hollywood. Tammy er hins vegar persónu- legasta verkefni hennar til þessa þar sem hún skrifaði handritið ásamt eiginmanni sínum, leikar- anum Ben Falcone. Ben leikstýr- ir myndinni en þetta er frumraun hans í leikstjórn. Í viðtali við Fast Company segir Ben að hann vilji sýna nýja hlið á Melissu. „Ég vil auðvitað að myndin gangi vel af milljónum ástæðna. En þetta er frábært tækifæri fyrir Melissu að leika allt þetta og sýna aðra hlið á sjálfri sér,“ segir hann. Þau hjónin vilja semja grín um venjulegt fólk í skringilegum aðstæðum. „Melissa og ég segjum bæði að við skrifum ekki góðar skrýtlur. En grín snýst um að setja einhvern í aðstæður þar sem hann þarf að berjast fyrir því að ná árangri og horfa á hann annað hvort standa sig vel eða, eins og líklegra er í grínmynd, standa sig illa.“ Myndin hefur hins vegar ekki hlotið lof gagnrýnenda og segir Amy Nelson hjá Guardian Liberty Voice að Melissa hafi sóað hæfi- leikum sínum við leik í myndinni. „Melissa McCarthy er ótrúlega hæfileikarík leikkona og grín- Fjölskylduverkefni sem fl oppar Kvikmyndin Tammy var frumsýnd á Íslandi í gær. Aðalhlutverkið er í höndum leikkonunnar Melissu McCarthy en eiginmaður hennar, Ben Falcone, sest í fyrsta sinn í leikstjórastólinn. Þau skrifuðu handritið saman. Ben og Melissa kynntust í leik- listar hópnum The Groundlings í Los Angeles á sínum yngri árum. Þau gengu í það heilaga þann 8. október árið 2005. Þau eiga tvær dætur, Vivian, fædda í maí 2007, og Georgette, fædda í mars 2010. GIFT Í NÍU ÁR Því miður hefur Melissa McCarthy sóað hæfileikum sínum í nýju mynd- inni Tammy og bæði áhorfendur og gagn- rýnendur eru sam- mála um að kvik- myndin sé flopp. Amy Nelson LENDA Í KLANDRI Susan Sarandon leikur ömmu Tammy í myndinni. 4,6/10 39/100 24/100 KVIKMYND ★★★★★ 22 Jump Street Leikstjóri: Phil Lord og Christopher Miller Ég var yfir mig hrifin af 21 Jump Street á sínum tíma og því bar ég miklar væntingar til framhalds- myndarinnar. Það besta við 22 Jump Street er að aðstandendur hennar eru ólmir í að láta áhorfendur vita að um fram- haldsmynd sé að ræða. Því detta þeir ekki í þá gryfju að reyna að toppa fyrri myndina heldur gera allt „nákvæmlega eins“ eins og sagt er margoft í myndinni. Channing Tatum og Jonah Hill snúa aftur í sín hlutverk og eru þeir búnir að skipa sér á lista yfir bestu gríndúó sögunnar. Þeim fer grínleikur svo listilega vel úr hendi að það er ekki annað hægt en að emja úr hlátri. Það kemur lítið á óvart í myndinni – nema sú risastóra staðreynd að hún er alveg jafn góð, jafnvel betri en fyrri myndin. Lilja Katrín Gunnarsdóttir NIÐURSTAÐA Óheyrilega fyndin mynd sem dettur ekki í framhalds- myndagryfjuna. Eitt besta gríndúó sögunnar YNDISLEGIR Channing og Jonah eru hreint út sagt frábærir. isti og hefur sýnt hvað hún getur fyrir framan myndavélina í mörg- um myndum upp á síðkastið. Því miður hefur Melissa McCarthy sóað hæfileikum sínum í nýju myndinni Tammy og bæði áhorf- endur og gagnrýnendur eru sam- mála um að kvikmyndin sé flopp,“ skrifar hún. Auk Melissu eru það Susan Sar- andon, Dan Aykroyd, Kathy Bates og Toni Collette sem fara með hlutverk í myndinni. liljakatrin@frettabladid.is fyrir börn í Suður-Súdan Neyðarákall Söfnunarreikningur: 701-26-102040 Kennitala: 481203-2950 Sendu sms-ið BARN í númerið 1900 og gefðu 1.900 krónur Þín hjálp skiptir máli

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.