Fréttablaðið - 10.07.2014, Side 52
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
„Það var pakkfullur salur, um tólf
hundruð manns, og þetta var í fyrsta
sinn sem ég sýndi myndina opinber-
lega. Og í fyrsta sinn sem ég sé hana
með fólki. Það var góð tilfinning,“
segir leikstjórinn Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson. Hann frumsýndi kvik-
myndina París norðursins á alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni Karlovy
Vary í Prag í Tékklandi á þriðju-
dagskvöldið. Hann segir að myndin
hafi hlotið góð viðbrögð hingað til.
„Það er frábær stemning hér. Það
er mikil bíómenning í Tékklandi og
hér er frábær jarðvegur til að frum-
sýna mynd. Ég finn fyrir mikilli
athygli og myndin er búin að fá boð
á fleiri hátíðir í kjölfarið á sýning-
unni á þriðjudag. Þannig að mér sýn-
ist hún fara vel af stað,“ segir Haf-
steinn en getur lítið sagt um hvaða
hátíðir eru fram undan.
„Við förum til Króatíu eftir þrjár
vikur í keppni á kvikmyndahátíð
þar en myndin á örugglega eftir að
flakka töluvert á árinu, þó ég geti
ekki talað um hvert akkúrat núna.
Svo stefnum við á að frumsýna hana
á Íslandi með haustinu.“
París norðursins keppir um Crys-
tal Globe-verðlaunin, svokallaða
Kristalskúlu, á hátíðinni ásamt ell-
efu öðrum myndum. Verðlaunin
verða afhent á laugardaginn og sigri
Hafsteinn verður hann ekki fyrsti
Íslendingurinn til að hreppa hnoss-
ið þar sem Baltasar Kormákur hlaut
verðlaunin árið 2007 fyrir Mýrina.
Aðrir sigurvegarar í gegnum tíðina
eru til dæmis Jean-Pierre Jeunet
fyrir Amélie og Alain Berliner fyrir
Ma vie en rose. Hafsteinn gerir sér
engar vonir um sigur þótt hann leyfi
sér að sjálfsögðu að dreyma.
„Maður veit aldrei. Þetta er alltaf
bara lottó og erfitt að spá fyrir um
hver hlýtur verðlaunin. En auðvitað
vonar maður að maður verði fyrir
valinu.“
Hafsteinn er hvað þekktastur
fyrir kvikmyndina á Annan veg
sem endurgerð var í Bandaríkjunum
sem Prince Avalanche og frumsýnd
í fyrra. Leikstjórn var í höndum
Davids Gordons Green og útilokar
Hafsteinn ekki frekara samstarf
þeirra á milli.
„David Gordon Green er búinn
að sjá myndina og elskaði hana. Við
erum í góðu sambandi og það er
verið að tala um fleiri endurgerð-
ir. Það gæti alveg verið eitthvað
meira að frétta á næstunni,“ segir
Hafsteinn dulur. Hann er með tvö
önnur verkefni í gangi, annars vegar
kvikmyndina Kanarí og hins vegar
mynd byggða á handriti eftir Huldar
Breiðfjörð, sá hinn sama og skrifaði
handritið að París norðursins.
liljakatrin@frettabladid.is
KEPPIR UM
KRISTALSKÚ
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson heimsfrumsýndi
myndina París norðursins á Karlovy Vary-kvikmynda-
hátíðinni í vikunni. Myndin hefur vakið gríðarlega
lukku og keppir um Crystal Globe-verðlaunin sem
besta mynd hátíðarinnar. Hafsteinn útilokar ekki
frekara samstarf með David Gordon Green en hann
leikstýrði endurgerð á Á annan veg í Hollywood.
FRÆKIN FERNA
Hafsteinn ásamt
aðalleikurum
myndarinnar;
Helga Björnssyni,
Nönnu KRistínu
Magnúsdóttur og
Birni Thors.
ERU EKKI ALLIR SEXÍ?
Helgi Björns tók sporið
á rauða dreglinum.