Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 56
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
Hafi þetta verið
gert löglega er lítið sem
við getum aðhafst í
málinu.
Guðmundur B. Ólafsson
formaður HSÍ
ÍÞRÓTTALJÓS
Tómas Þór
Þórðarson
fjallar um ákvörðun IHF.
HANDBOLTI „Herra Wiederer vill
ekki tjá sig um þetta núna – vinsam-
legast hafðu samband við Alþjóða-
handknattleikssambandið,“ var
svar einkaritara Michaels Wiede-
rer, framkvæmdastjóra Evrópska
handknattleikssambandsins, EHF,
þegar Fréttablaðið reyndi að ná tali
af honum í gær vegna ákvörðunar
IHF um að veita Þýskalandi keppn-
isrétt á HM 2015 í Katar.
EHF sendi frá sér skjal eftir Evr-
ópumótið í Danmörku í janúar þar
sem það upplýsti að Ísland væri
fyrsta varaþjóð álfunnar inn á HM
ef ske kynni að einhver önnur þjóð
drægi sig úr keppni. Svo fór að Ástr-
alía fékk ekki keppnisrétt á HM í
Katar og kemur Þýskaland í staðinn.
Samkvæmt fréttatilkynningu IHF
fékk Þýskaland sætið vegna þess
að liðið varð í 5. sæti á HM 2013 á
Spáni, en það hunsaði tilmæli evr-
ópska sambandsins.
Einkaritarinn svarar
Fréttablaðið reyndi að fá svör við
þessu hjá báðum samböndum í
gær. Fyrst hafði blaðamaður sam-
band við EHF og ræddi við Peter
Sichelschmidt, starfsmann móta-
mála. Hann sagðist koma af fjöllum
og fullyrti að evrópska sambandið
hefði ekki fengið fregnir af þessu
fyrr en klukkan fimm í fyrradag.
„Við vorum búin að gefa það út að
Ísland væri fyrsta varaþjóð, en EHF
ræður þessu ekki. Samkvæmt okkur
var Ísland næsta þjóð inn en IHF
vinnur greinilega eftir öðrum við-
miðum,“ sagði hann. Nokkuð und-
arlegt í ljósi þess að Sichel schmidt
á sæti í mótanefnd IHF og situr
báðum megin við borðið.
Seinna um daginn reyndi blaða-
maður að hafa samband við fram-
kvæmdastjórann Michael Widerer.
Einkaritari hans setti blaðamann
fyrst á bið, kom svo skömmu síðar
aftur og spurði hver tilgangurinn
með símtalinu væri. Eftir að henni
var tjáð það tóku við aðrar tvær
mínútur á bið. Þegar hún kom aftur
var blaðamanni tjáð að hann fengi
ekki samband við framkvæmda-
stjórann heldur ætti hann að hafa
samband við IHF.
Reglunum breytt
Í lögum IHF um heimsmeistara-
mót segir að dragi ein þjóð sig úr
keppni eða fái hún ekki keppnisleyfi
skuli varaþjóð koma inn á mótið frá
álfu ríkjandi heimsmeistara. Það
eru Spánverjar og morgunljóst
samkvæmt þeirri reglu að Ísland á
sætið.
Svo virðist þó sem reglunum hafi
verið breytt í vor. Guðmundur B.
Ólafsson, forseti handknattleiks-
sambands Íslands, fékk þau svör frá
EHF að Alþjóðasambandið hefði á
fundi í mars ákveðið að fyrsta vara-
þjóð á HM væri sú sem náði bestum
árangri þeirra þjóða á HM 2013 sem
ekki væru með öruggt sæti á HM í
Katar. Það eru Þjóðverjar.
„Ég get hvergi séð hvernig þeim
hefur verið breytt og við þurf-
um skýrari svör. Hafi þetta verið
gert löglega er lítið sem við getum
aðhafst í málinu. Það er samt skrýt-
ið að stjórn IHF geti bara valið lið
inn á HM án þess að það séu reglur
á bak við það. Þetta var mjög skýrt
þegar EHF sendi út sinn lista,“ sagði
Guðmundur B. Ólafsson í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 í gær.
Ómögulegt var að fá samband við
nokkurn mann eða konu hjá IHF í
gær. Þeir sem höfðu setið fundinn
í Króatíu þar sem ákvörðunin var
tekin voru ekki komnir til vinnu
aftur og þá svaraði hvorki móta-
stjórinn né fjölmiðlafulltrúi sam-
bandsins ítrekuðum póstsending-
um Fréttablaðsins. Viðkunnanleg
stúlka á símanum sagði að það tæki
1-2 daga að fá svar við póstum sem
sendir eru til IHF.
Enginn látinn vita
Það sem forsvarsmenn HSÍ spyrja
sig nú að er hvort þessi reglubreyt-
ing sem gerð var í vor sé lögleg.
Ekkert sérsamband og ekki einu
sinni Evrópska handknattleiks-
sambandið var látið vita af ákvörð-
un IHF um að afhenda Þýskalandi
sætið.
Það sem gerðist í Eyjaálfu er, að
Papúa Nýja-Gínea er hætt að stunda
handbolta. Þar með eru aðeins sex
þjóðir eftir þar sem stunda íþrótt-
ina og þá verður álfan ekki tæk á
HM. Samkvæmt öruggum heimild-
um Fréttablaðsins er þetta eitthvað
sem menn, bæði hjá EHF og IHF,
vissu að gæti gerst.
Þess vegna má hæglega draga
þá ályktun að EHF hafi opinberað
ákvörðun sína um þrjár varaþjóðir
álfunnar á HM, eitthvað sem annars
sjaldan er gert.
Að sama skapi fengju forráða-
menn IHF gullið tækifæri til að
koma stærstu handboltaþjóð heims
inn á HM, en sjónvarpstekjurnar
eru hvað mestar frá Þjóðverjum.
Nú vilja menn sjá pappíra og
fundargerðir frá þessum ákvörð-
unarfundi í vor því ekkert var gefið
út eftir hann. Svo virðist sem menn
hafi einfaldlega verið að baktryggja
sig eftir að Þýskaland dróst á móti
Póllandi í umspilinu, en þar var ljóst
að Þjóðverjar væru alls ekkert lík-
legir.
Fyrsta svar í dag
Guðmundur B. Ólafsson býst við
fyrsta svari EHF strax í dag, en HSÍ
gerir kröfu um skýrslu frá báðum
samböndum um hvernig staðið var
að málum.
Þeir sem sátu fundinn í fyrradag
hjá IHF voru forsetinn, varaforset-
inn, gjaldkerinn og forseti franska
handknattleikssambandsins, þann-
ig það er ansi þröngur hringur sem
kemur að þessari stóru ákvörðun.
Ekkert er þó vitað hverjir sátu
fundinn í vor, ef hann fór fram. Ekk-
ert var tilkynnt um hann og niður-
staðan aldrei birt. Regluverkið er
óbreytt á vefsíðu IHF, en samkvæmt
því á Ísland rétt á þessu lausa sæti.
tomas@365.is
Reglugerðin sem enginn vissi af
Alþjóðahandknattleikssambandið breytti reglunum um hvaða þjóð kæmi til vara ef einhver fengi ekki keppnisleyfi , en lét engan vita.
Framkvæmdastjóri evrópska sambandsins lætur ritarann svara spurningum fyrir sig. Eru til pappírar sem sanna reglubreytinguna?
ENGIN SVÖR Framkv.stjórinn Michael Wiederer lét ritarann svara. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kranamaður óskast
Eykt ehf óskar eftir vönum kranamanni til starfa sem fyrst
vegna verkefna fyrirtækisins.
Sækja skal um starfið á heimasíðu Eyktar, www.eykt.is
undir „Atvinna“ eða með tölvupósti eykt@eykt.is.
Nánari upplýsingar veitir Páll Daníel Sigurðsson
alla virka daga milli kl 09:00 -16:00 í síma 822-4422
Eykt ehf. Stórhöfða 34-40. 110 Reykjavík S: 595-4400
SPORT
HANDBOLTI „Ég er á leiðinni aftur til
Frakklands. Ég verð í þjálfarateymi
Cesson-Rennes ásamt því að vera
styrktarþjálfari félagsins og ung-
lingaþjálfari,“ segir Ragnar Ósk-
arsson, fyrrverandi landsliðsmaður,
en hann hættir sem aðstoðarmaður
Ólafs Stefánssonar hjá Val.
Ragnar er öllum hnútum kunnug-
ur í Frakklandi enda lék hann þar í
ellefu ár á sínum tíma.
„Það er góður vinur minn að taka
við liðinu og hann vildi fá mig með
í teymið. Ég er að horfa til lengri
tíma með þessari ákvörðun. Það er
uppbygging í gangi og þetta er mjög
spennandi verkefni,“ segir Ragnar
en Cesson-Rennes hafnaði í sjöunda
sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á
síðustu leiktíð.
Þar sem Ragnar er ekki kominn
með nein þjálfararéttindi má hann
ekki sitja á bekknum hjá liðinu
næsta vetur þó svo hann sé aðstoð-
arþjálfari. Hann mun fara strax í
það að ná sér í þjálfararéttindi er
hann kemur út.
Ragnar á sjö ára gamla dóttur í
Frakklandi og hún er helsta ástæð-
an fyrir því að hann fer til Frakk-
lands. „Hún býr 40 mínútum frá
því þar sem ég verð. Hún er það
sem skiptir mestu máli í þessu. Ég
vil komast sem næst henni. Tím-
inn líður fljótt og ég vil eðlilega fá
að vera sem mest með henni. Þetta
eru ár sem maður fær ekkert aftur,“
segir Ragnar.
Hann viðurkennir að hugurinn
hafi í raun aldrei stefnt út í þjálfun
þegar ferlinum lyki en nú er annað
upp á teningnum.
„Þetta var aldrei stefnan en svona
hefur þetta þróast. Ég var meira að
horfa á styrktarþjálfunina en hef
svo haft ótrúlega gaman af því að
þjálfa með Óla hjá Val. Það var frá-
bær reynsla og lærdómsrík. Ég
ætla mér að fara eitthvað lengra
með þennan þjálfaraferil og það eru
góðar líkur á því að ég verði næstu
árin í Frakklandi.“ - hbg
Vildi komast nær dóttur minni
Ragnar Óskarsson er á förum frá Val og verður aðstoðarþjálfari í Frakklandi.
AFTUR ÚT Ragnar er á leið á kunnug-
legar slóðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Ísland tapaði
fyrir Danmörku, 84-53, á Ásvöllum í
Hafnarfirði í fyrsta leik körfubolta-
landsliðs kvenna hér á landi í fimm
ár. Ísland lék sterkan varnarleik í fyrri
hálfleik og leiddi að honum loknum,
28-26. Leikur íslenska liðsins hrundi
hins vegar í þriðja leikhluta og gengu
gestirnir á lagið.
Helena Sverrisdóttir var stigahæst
í íslenska liðinu með fjórtán stig
auk þess sem hún tók sjö fráköst.
Kristrún Sigurjónsdóttir kom næst
með tólf stig. Liðin eigast einnig við
í kvöld en þá fer leikurinn fram í
Stykkishólmi. - esá
Stelpurnar töpuðu fyrir Dönum á Ásvöllum
FÓTBOLTI FH, Stjarnan og Fram geta í kvöld tryggt sér
sæti í annarri umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA
en öll leika á útivelli í síðari viðureign sinni í fyrstu
umferðinni í kvöld. Framarar ríða á vaðið gegn
eistneska liðinu Nömme Kaju klukkan 16.00 en
lærisveinar Bjarna Guðjónssonar eiga á brattann
að sækja eftir 1-0 tap á heimavelli í síðustu viku.
FH og Stjarnan eru bæði í betri málum en
FH-ingar eru með 3-0 forystu gegn norður-
írska liðinu Glenavon og Stjarnan er í afar
góðri stöðu eftir 4-0 sigur á Bangor frá Wales í
fyrri leiknum. Leikur Garðbæinga í Wales hefst
klukkan 17.45 en FH-ingar leika gegn Glenavon
klukkutíma síðar. Fylgst verður með gangi mála
á íþróttavef Vísis. - esá
Íslensku liðin á faraldsfæti
STIGAHÆST Helena Sverrisdóttir í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL