Fréttablaðið - 10.07.2014, Síða 62
10. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
„Klárlega engiferskot. Það er besta
leiðin til að byrja daginn og lengir
lífið um ca. 50 ár.“
Unnur Eggertsdóttir, söngkona
UPPÁHALDSDRYKKUR
Afríkusól skarar fram úr í gæðum og fékk lang hæstu
einkunn kaffitegunda á íslenskum matvörumarkaði.
Ummæli úr smökkuninni:
„Yes! Nammi namm.“
„Loksins komin góður kaffibolli. Það er karakter í kaffinu.“
„Karamellulitur, ekki bara svart. Það er mjúkt og gott.“
kaffitar.is *skv blindri bragðsmökkun í DV 8.7.2014
„Ég er er að bóka fyrir helstu staði
landsins og er einnig að bóka fyrir
Keflavíkurnætur,“ segir athafna-
maðurinn Óli Geir. Hann sér um
bókanir fyrir hátíðina Keflavíkur-
nætur sem fer fram í ágúst.
Hann segir hátíðina þó ekki líka
Keflavík Music Festival sem hald-
in var í fyrra en Óli Geir var einn
skipuleggjenda. Fjölmargar hljóm-
sveitir hættu við að spila á hátíðinni
því þær töldu skipuleggjendur ekki
standa við samninga en hann segir
að aðrir aðilar komi að Keflavík-
urnóttum. „Ég vona bara að Kefla-
víkurnætur gangi vel og stækki
með árunum og óska aðstandendum
hátíðarinnar góðs gengis.“
Þá er Óli Geir einnig búinn að
vinna í tónlist og sendi frá sér lagið
Flocka á dögunum. „Ég er búinn að
sitja á þessu helvíti lengi og er nú að
senda frá mér mitt eigið efni í fyrsta
sinn.“ Hann hefur gert samning
við þýska útgáfufyrirtækið Bang
It/Housesession sem felur í sér
útgáfu á stökum lögum. „Micha
Moor og fleiri virtir plötusnúðar
aðstoðuðu mig við að fá samning
hjá fyrirtækinu.“
Óli Geir, sem hefur starfað við
að skemmta fólki með því að þeyta
skífum undanfarin tíu ár, hóf tón-
listarferilinn þegar hann hljóp í
skarðið fyrir Brynjar Má Valdi-
marsson á skemmtistað í Keflavík.
„Ég fékk til dæmis Micha Moor
til að gefa mér ábendingar, ég sendi
honum hugmyndir og hann sagði
mér hvað ég mætti bæta. Maður á
að vera ófeiminn við að biðja um
hjálp.“
Hann er tilbúinn með um tíu lög
sem bíða þess að líta dagsins ljós.
gunnarleo@frettabladid.is
Bókar hljómsveitir á nýja hátíð
Athafnamaðurinn Óli Geir sér um bókanir fyrir hátíðina Kefl avíkurnætur og gefur út frumsamda tónlist.
BJART FRAM UNDAN Óli Geir er með
mörg járn í eldinum, gefur út tónlist og
bókar hljómsveitir. MYND/JÓN ÓSKAR
„Það er rosalega mikil þörf hjá
konum fyrir að láta rödd sína
heyrast og það ríkir mikil eftir-
vænting eftir sögum eftir konur
og um heim kvenna,“ segir Dögg
Mósesdóttir, verkefnastjóri
Doris Film á Íslandi, en í gær
voru birt úrslit handritasam-
keppni sem Doris Film og Wift
efndu til á meðal kvenna í vor.
Þátttakan fór fram úr björtustu
vonum, alls bárust 102 sögur í
keppnina og komust ellefu þeirra
í úrslit en tíu manna dómnefnd
skipuð framleiðendum, leikstjór-
um og handritshöfundum sá um
valið. Samkeppnin var öllum
opin og var hún nafnlaus í fyrstu
umferð en skilyrði var að allar
sögurnar hefðu að minnsta kosti
eina kvenpersónu í aðalhlutverki.
Úrslitahópurinn er skipaður fjöl-
breyttum hópi kvenna en þar má
meðal annars nefna fatahönn-
uðinn Ýri Þrastardóttur, fyrr-
verandi dagskrárgerðarkonuna
Elsu Maríu Jakobsdóttur, leik-
konurnar Ísgerði Elfu Gunnars-
dóttur og Lilju Sigurðardóttur og
Evu Sigurðardóttur framleiðanda.
„Þetta eru konur með alls konar
bakgrunn og þær fjalla um sögur
sem einhverjum kvikmyndaleik-
stjórum hefði jafnvel aldrei dottið
í hug. Það má til að mynda nefna
eina konu sem er öryrki í Hvera-
gerði og áhugarithöfundur en hún
kemur með innsýn í mjög áhuga-
verðan heim,“ segir Dögg.
kristjana@frettabladid.is
Þörf hjá konum að
láta rödd sína heyrast
Úrslit í handritasamkeppni Doris Film og Wift voru
kunngjörð í gær. Dögg Mósesdóttir verkefnastjóri
segir þátttöku hafa farið fram úr björtustu vonum.
KONUR SEM SKRIFA UM KONUR Skilyrði fyrir þátttöku í handritasamkeppninni
var að það væri að minnsta kosti ein kvenpersóna í aðalhlutverki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einhverjar hræringar eru í hljóm-
sveitinni Gus Gus sem er þessa
dagana að undirbúa tónleikaferða-
lag með haustinu til að fylgja eftir
hinni nýútkomnu plötu Mexíkó.
Einn af forsprökkum sveitarinnar,
Stephan Stephensen, einnig þekkt-
ur sem President Bongo, fer ekki
með í ferðalagið.
„Hann ætlar að taka sér frí að
minnsta kosti fram að jólum,“ segir
Þorsteinn Stephensen, umboðs-
maður Gus Gus og bróðir Stephans.
„Við erum að fara í mjög þéttan túr
um öll Evrópulöndin, langt ferða-
lag um Rússland, Pólland og síðan
Bandaríkin og Mexíkó.“
Þetta er fyrsta tónleikaferðalag
Gus Gus sem Stephan tekur ekki
þátt í, en hann er einn af uppruna-
legum meðlimum sveitarinnar sem
hóf störf árið 1995.
„Hann vildi bara taka sér pásu
held ég,“ segir umboðsmaðurinn.
„Sem er náttúrulega allt í góðu
þar sem við fengum gamlan Gus
Gus-meðlim til þess að stökkva
inn í fyrir Stebba.“ Það mun vera
tónlistarmaðurinn Magnús Guð-
mundsson, Maggi Legó, sem fyllir
upp í skarðið í tónleikaferðalag-
inu, en hann er einnig uppruna-
legur meðlimur sveitarinnar en
hefur ekki verið með síðan árið
2007. „Hann kann þetta allt saman
og það er bara gaman að þessu en
síðan hugsa ég að Stebbi komi aftur
inn fyrir áramót,“ segir Þorsteinn.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað
Stephan ætlar að taka sér fyrir
hendur í haust. „Hann er náttúru-
lega með fjalla- og siglingabakt-
eríu á háu stigi,“ segir bróðir hans
og hlær. „Ég held að hann langi til
þess að sýna því meiri áhuga.“
Hvorki Stephan né Maggi vildu
tjá sig um málið þegar eftir því var
leitað.
baldvin@365.is
Legó í stað Forsetans
Hljómsveitin Gus Gus heldur í langt tónleikaferðalag í haust en einn forsprakki
sveitarinnar, Stephan Stephensen, kemur ekki til með að ferðast með sveitinni
og í staðinn stekkur Maggi Legó, fyrrverandi meðlimur sveitarinnar, inn.
HÆFILEIKARÍK HLJÓMSVEIT Gus Gus skipa margir hæfileikaríkir tónlistar-
menn.
MÆTTUR AFTUR Maggi Legó
fer með í ferðalagið.
GÓÐIR SAMAN Daníel Ágúst og Stephan
Stephensen hafa átt farsælan feril saman.