Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 26

Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 26
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Afglæpavæðing einkaneyslu gæti orðið íslenskur veruleiki Það vakti athygli í vikunni þegar borgarstjóri Kaupmannahafnar, Frank Jensen, sagðist opinberlega styðja afglæpavæðingu einkaneyslu fíkniefna, sem sagt að það eitt að neyta fíkniefna sé ekki glæpsamlegt. Dönsk fíkniefnalöggjöf gæti verið endurskoðuð í vetur með tilliti til þessa. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lagði til ekki alls fyrir löngu að afglæpavæða einkaneyslu á fíkniefnum. Fréttablaðið tók púlsinn á heilbrigðisráðherra, sem sjálfur er hallur undir afglæpavæðingu einkaneyslu, og stjórnmálamönnum, fagaðila, sálfræðingi og fyrrverandi lögreglumanni. Ekki eru allir á eitt sáttir. Björt Ólafsdóttir þingmaður Bjartrar framtíðar „Sú þingsályktunartillaga sem Píratar lögðu til lýtur að því að einkaneysla fíkniefna sé heilbrigðisvandamál, en ekki vanda- mál dómstólanna. Við í Bjartri framtíð studdum þessa tillögu, en það er ekki sama umræða og lögleiðing einkaneyslu fíkniefna, því þar erum við komin skrefinu lengra og þessu tvennu er ekki saman að jafna. Helgi Hrafn, fyrsti flutningsmaður til- lögunnar, gerir það mjög skýrt í allri sinni vinnu í velferðarnefnd að hann er ekki endilega að tala um lögleiðingu, heldur hvernig við eigum að takast á við þann veruleika að fíklar eru til staðar og þeir eru að miklu leyti meðhöndl- aðir í dómskerfinu– er það að hjálpa þessum fíklum? Er það að hjálpa samfélaginu? Skilar það árangri? Eða er betra að huga að fleiri leiðum í því og þá að skoða málið út frá heil- brigðisvinkli? Þessu játum við. Þetta er mikilvæg umræða og mikilvægt skref og við viljum tala um þetta. Ég er hins vegar ekki sann- færð um að afglæpavæðing einkaneyslu sé rétta leiðin. Ég hef í mínum störfum á geðdeildum Landspítalans og í mínu námi séð að neysla á kannabisefnum– svo dæmi sé tekið og rannsóknir styðja það– er gríðarlega ávanabindandi og getur haft rosalegar afleiðingar. Neysla þessara efna getur leitt til þess að fólk verður alvarlega veikt og varanlega. Mikil neysla getur leitt til geðklofa og hefur gert það í mörgum tilvikum og það er alvarlegasti geðsjúkdómur sem við erum að fást við því hann er svo varanlegur. Það er erfitt að vinna sig til baka– við erum að tala um lífeðlisfræðilegar breytingar sem eru varanlegar og það er hættan sem ég held að Íslendingar geri sér ekki nógu vel grein fyrir, eða við í þessari umræðu. Kannski vegna þess að í öðrum löndum sjáum við að kannabisneysla er svo viðurkennd félagslega. En það breytir því ekki hvað rannsóknir sýna okkur. Margir nefna þau rök að áfengi og önnur efni séu líka skaðleg en það gerir kannabis- neyslu ekkert betri. Þau rök eru út úr kú. Það er ekki á allra vitorði, því við erum enn feimin að tala um geðsjúkdóma, hvaða áhrif kannabisneysla getur haft.“ EKKI SANNFÆRÐ Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar „Það sem mér finnst kannski einna helst vera gallinn við umræðuna um afglæpa- væðingu er skortur á skýru markmiði og í því samhengi bind ég miklar vonir við störf nefndarinnar. Mér finnst einkenni- legt að ræða afstöðu til stakra aðgerða án þess að ræða hvaða áhrifum við erum að reyna að ná fram. Erum við að fara í afglæpavæðingu til að fækka glæpamönnum? Erum við að reyna að minnka neyslu eða breyta neyslumynstri? Eru þetta bein viðbrögð við því að kannabis er að verða félagslega viðurkenndari? Það er óásættanlegt að neysla meðal barna og ungmenna sé orðin föst stærð og ég er til í að skoða allar aðgerðir sem miða að því markmiði. Ég tel þörf á meiri umræðu um hvert við stefnum áður en við ræðum hvernig við ætlum að komast þangað. Erum við viss um að allir aðilar sem nú beita sér í umræðunni deili fram- tíðarsýn og stefnu í þessum málaflokki? Á sama tíma og við tölum mjög frjálslega um afglæpavæðingu einkaneyslu fíkniefna þá treystum við þjóðinni ekki til að geta keypt bjór úti í búð. Ég held að við þurfum að stíga varlega til jarðar. “ ÞURFUM AÐ STÍGA VARLEGA TIL JARÐAR Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðis- ráðherra, skipaði nefnd sem hefur það hlutverk að móta stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu. Nefndin, leidd af Borgari Þór Einars- syni, byggir á þingsályktun sem Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, flutti á Alþingi. Nefndarmenn hittust í fyrsta skipti á miðvikudaginn var og ræddu meðal annars þessa hugmynd. Búist er við niðurstöðu nefndarinnar í byrjun næsta árs. Borgar Þór Einarsson héraðsdómslögmaður er formaður nefndarinnar en auk hans skipaði Kristján Þór þau Helga Hrafn Gunnarsson, þingmann Pírata, og Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Auk þeirra eiga landlæknir, stjórn SÁÁ, ríkis- lögreglustjóri, framkvæmda- stjóri geðsviðs Landspítalans, Rauði kross Íslands og vel- ferðarsvið Reykjavíkurborgar einn fulltrúa hvert. NEFNDIN Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra „Ég er enn þá hallur undir þá skoðun að afglæpavæða fíkniefni. Ástæðan fyrir því er einföld– núverandi ástand er eitthvað sem enginn vill búa við. Við sjáum það víða að fólk og stjórnvöld eru orðin langþreytt. Þá hlýtur það að vera skylda okkar að skoða allar leiðir sem við teljum að gætu leitt til breytinga til batnaðar í þessum efnum. Ef afglæpavæðing einka- neyslu gefur okkur færi til þess, og það mun vonandi koma í ljós í þessu starfi nefndarinnar, þá finnst mér líklegt að það horfi til þess að það myndist einhver samstaða í þessari glímu við þetta vandamál. Það er eðlilegt að hugmyndir í þessa veru séu gagn- rýndar. Við erum alin upp við annað viðhorf og við erum að stíga skref inn á ókunnar lendur. En ég vænti þess og til þess er stofnað til þessa starfs nefndarinnar að leita svara við flestum af þessum spurningum, um meiri upplýsingar og mat á áhrifum á því að breyta um stefnu sem við höfum rekið í langan tíma á Íslandi. Við megum heldur ekki gleyma því að stjórnvöld settu sér það markmið að Ísland yrði vímuefnalaust árið 2000. Svo er ekki í dag, árið 2014, en við höfum ekki tekið neina grundvallarumræðu um hvort við eigum að breyta í meginatriðum áherslum okkar frá því sem áður var. Ég er ekki viss um að allt verði óbreytt, eftir að starfi nefndarinnar lýkur. Það er engin fyrirframgefin niðurstaða í þessu en bara umræðan sem þetta hefur vakið leiðir það af sér að það verður ekki allt eins og það var. Niðurstaðan af þessu nefndarstarfi, hver sem svo hún verður, kallar á dýpri umræðu um þessi mál.“ NÚVERANDI ÁSTAND VILL ENGINN BÚA VIÐ Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður „Mér finnst að eigi að afglæpavæða einkaneyslu fíkniefna. Að það eigi að færa þetta inn í heilbrigðisgeirann í stað þess að færa fólk til refsingar. Þannig að við erum að treysta á fagaðila. Á meðan þetta er í refsivörslukerfinu þá er þetta ekki uppi á borðum. Fólk er í felum með þetta og þorir ekki að leita sér hjálpar. Ég þekki dæmi þess að foreldrar vilja ekki segja frá því að barnið þeirra sé í óreglu, því það fer á sakaskrá og fær ekki vinnuna sem það vill næstu fimm árin. Ég held að liður í því að ná sér á strik eftir að hafa verið í óreglu sé að hafa eitthvað að gera. Ef þú getur það ekki í fimm ár er meiri hætta á því að þú leitir aftur í efni. Ég hef séð þetta með eigin augum. Ríkjandi stefna gengur ekki. Þegar ég starfaði sem lögreglumaður fannst mér við oft vera að eltast við menn með einhverja smáskammta, í stað þess að ráðast á rót vandans, sem eru þeir sem selja og dreifa efnunum. Maður var líka oft að lenda í því að spyrja fólk: Ertu búinn að neyta fíkniefna? Og svarið var: Nei, bara reykja gras. Ég held ekki að það sé rétt nálgun að löggan segi fólki að það sé hættulegt að reykja gras, heldur læknirinn. Hann er sá sem veit eitthvað um líkamann.“ HLYNNTUR AFGLÆPAVÆÐINGU Þórarinn Hjaltason forstöðumaður Stuðla „Ég hef áhyggjur af því að afglæpavæðing einkaneyslu auki við þá flóru fíkniefna sem fyrir er og að það verði meira um vímuefni á markaði. Þá eru þeim mun meiri líkur á að krakkar leiðist út í neyslu. Ég held líka að afglæpavæðingin breyti viðhorfum í samfélaginu og það er mikið áhyggjuefni – að neysla fari að verða samþykktari og þar af leiðandi algengari á meðal barna. Mér finnst ekki á það bætandi. Margir krakkar sem koma inn til okkar hafa þau viðhorf að til að mynda kannabis sé allt að því að vera hollt og eru föst í einhverjum mýtum af ein- hverjum síðum á netinu þar sem verið er að lofa kannabis. Að sama skapi er maður á því að við séum komin í ógöngur varðandi dóma í fíkniefnamálum og verið sé að glæpavæða þá sem á ekki að vera að glæpavæða. Ef einkaneysla verður gerð lögleg þá verður fræðsla og forvörn að fylgja með í pakkanum, sem ég vil reyndar að fari að mestu leyti fram í gegnum foreldra og uppeldi. Við vitum að það verða alltaf einhverjir sem lenda í vanda með neysluna, ákveðið prósentuhlutfall, og því fleiri sem nota fíkniefni, þeim mun fleiri lenda í vanda þótt prósentan sé hin sama. En svo er spurningin þessi: Eigum við að láta þessa lágu prósentu skemma fyrir hinum? Ég er hlynntur starfi þess- arar nefndar, því á þessu máli eru tvær hliðar. Það er að mínu mati alveg ljóst að það er stórt skref að lögleiða einkaneysluna og við þurfum að vera mjög meðvituð um það að hafa eins mikla þekk- ingu og við getum á afleiðingum þess og hvernig við getum tæklað afleiðingarnar áður en ákvörðunin er tekin. Þetta hefur galla eins og þetta er, ég hugsa að það hafi trúlegast líka galla að afglæpavæða einkaneyslu.“ FRÆÐSLA OG FORVÖRN VERÐA AÐ FYLGJA Borgar Þór Einarsson héraðsdómslögmaður og formaður nefndar „Verkefnið er skýrt frá löggjafarvaldinu. Nefndin á að móta nýja stefnu til að draga úr þeim skaða af völdum vímuefnaneyslu sem er staðreynd. Hópurinn er að skoða þetta með opnum huga án þess að nein fyrirframgefin niðurstaða liggi fyrir og við vinnum þetta mjög mikið á forsendum meðferðaraðila og félags- þjónustunnar. Í starfi hópsins erum við ekki að fjalla um mismun á tegundum ólöglegra vímuefna, það er horft til þeirra allra í sama tilliti. Þegar nefndin hittist fyrst á miðvikudaginn ræddum við hvað myndi gerast ef við myndum afglæpavæða neyslu og vörslu fíkniefna, eins og hefur verið í umræðunni. Það liggur fyrir að umönnun fíkla og þeirra aðbúnaður verður betri. En hvað gerist í stóra samhenginu? Það að flytja inn, selja og dreifa fíkniefnum verður áfram í höndum glæpamanna og allt það fjárstreymi sem þar fer í gegn verður hjá þeim. Þegar þú afglæpavæðir vörsluna og neysluna, ertu að stækka markaðinn fyrir þá sem selja og dreifa fíkniefnum? Þetta er til dæmis gagnrýnin á hina svokölluðu „portúgölsku leið“. Þá er einnig hægt að líta til þess sem þeir gerðu í Colorado í BNA, en þar er skrefið stigið til fulls og sala og dreifing er líka í verkahring ríkisins. Er það kannski eitthvað sem ætti að skoða? Það er ljóst að það er margt að ræða, og við mun- um nota fyrstu vikurnar til að ræða þetta opinskátt og horfa til þess sem aðrir eru að gera í heiminum.“ ENGIN FYRIRFRAMGEFIN NIÐURSTAÐA Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.