Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 78
KYNNING − AUGLÝSINGNámskeið LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 20146 Stoðkennarinn býður upp á námsefni í ís-lensku, stærðfræði, ensku, dönsku, nátt-úrufræði, samfélagsfræði og tölvufærni, fyrir miðstig, unglingastig og framhaldsskóla,“ útskýrir Starkaður Barkarson, framkvæmdastjóri námsvefsins Stoðkennarinn.is, en vefurinn fagn- ar tíu ára afmæli í ár. Í ár var vefurinn einnig endurhannaður svo að hann hentar spjaldtölvum, en lítið námsefni er til á íslensku fyrir spjaldtölvurnar sem nú eru að ryðja sér til rúms í íslenskum skólum, að sögn Starkaðar. Þá hentar Stoðkennarinn sérstaklega vel þeim nemendum sem þurfa stuðning við námið. „Kennari getur að sjálfsögðu ekki sinnt þörf- um hvers og eins fullkomlega innan skólastof- unnar, enda geta og hæfileikar nemenda afar misjafnir. Stoðkennarinn útskýrir efnið og legg- ur verkefni fyrir nemendur sem hann fer yfir á svipstundu og skráir einkunn í einkunnabók. Verkefnin ríma vel við það efni sem nemendur eru að kljást við í skólanum,“ útskýrir Starkaður. Vefurinn nýtist foreldrum Margir skólar kaupa áskrift fyrir nemendahópa og nota þá efnið meðfram eða í stað hefðbund- inna kennslubóka. Einnig nýta foreldrar sér vef- inn. „Foreldrar hafa ekki allir þá faglegu þekkingu til að hjálpa börnum með námið heima fyrir. Stoðkennarinn léttir af þeim áhyggjunum enda er hann forritaður á þann hátt að hann bregst ávallt við villum nemenda. Ef nemandi ritar til dæmis „hrissa“ í staðinn fyrir „hryssa“ í stafsetn- ingaræfingu, leiðréttir Stoðkennarinn villuna, minnir á regluna um að y skuli rita ef o finnst í skyldu orði og bendir á orðið „hross“. Á sama tíma skráir hann einkunnina í einkunnabók sem nemandi, kennari og foreldrar hafa aðgang að.“ Aðstoð í skólastofunni „Stoðkennarinn er mikil hjálp fyrir kennara innan skólastofunnar en hann getur lagt verk- efni fyrir allan bekkinn, leiðrétt þau og útskýrt villurnar fyrir nemendum og skráð einkunnir á örfáum sekúndum. Kennarinn þarf aðeins að kalla fram einkunnir og sér á svipstundu hvernig nemendum gengur. Þetta gerir nám og kennslu bæði markvissari og skemmtilegri.“ Stoðkennarinn kostar einstaklinga aðeins 1.300 kr. á mánuði fyrir eitt námskeið og verð- ur hlutfallslega ódýrara eftir því sem fleiri nám- skeið eru keypt. Skólar sem kaupa aðgang fyrir hópa greiða minna. Kerfi Stoðkennarans er einnig vettvangur fyrir stofnanir og fyrirtæki til að bjóða upp á eigið námsefni fyrir starfsfólk eða viðskiptavini. www.stodkennarinn.is Stoðkennarinn – nám á netinu Stoðkennarinn hóf göngu sína árið 2004 og þá eingöngu sem stafsetningarvefur. Á tíu árum hefur vefurinn þróast og vaxið en í dag er boðið upp á námsefni í stærðfræði, tungumálum og tölvufærni svo eitthvað sé nefnt. Í ár var vefurinn endurhannaður fyrir spjaldtölvur. 1. Byrjið daginn rétt Fyrsti dagurinn á skólabekk eftir langt hlé mun taka minna á taugarnar ef við erum úthvíld og með allt klárt í töskunni sem við þurfum fyrir daginn. Láttu símann vekja þig tímanlega og helst með hressu lagi sem þú verður ekki leiður á. Gefðu þér síðan tíma til að borða staðgóðan morgunmat og skelltu í þig kaffi til að hrista þig í gang. 2. Mættu snemma fyrir smá andrými Það getur verið yfirþyrmandi að demba sér strax inn í iðandi fyrirlestrarsal ef langt er síðan þú sast á skóla- bekk síðast. Mættu á staðinn nokkrum mínútum áður en kennsla hefst til að fá smá stund í einrúmi til að undirbúa þig. 3. Skipuleggðu þig vel Til að ná sem bestum árangri í náminu er nauðsyn- legt að útbúa dagskrá til að fara eftir. Til dæmis má nýta sér tilbúin dagatöl á netinu. Gott er að setja inn hvar og hvenær þarf að sækja kennslustundir, hve- nær þú ætlar að læra heima, hvenær á að skila verk- efnum o.s.frv. Það að setja saman skipulag gefur þér yfirsýn og hvetur þig til góðra verka. 4. Komdu þér í gírinn Ekki freistast til að sleppa fyrstu tímunum. Komdu þér strax í gírinn, til dæmis með því að lesa nám- skrána spjaldanna á milli til undirbúnings. Vertu klár með allar bækur og námsgögn sem þarf. www.lifehacker.com Gott skipulag kemur þér í gírinn Ef langt er síðan setið var á skólabekk síðast getur virst yfirþyrmandi að takast á við nám á nýjan leik. Með góðu skipulagi og staðgóðum morgunverði má róa taugarnar. Það getur verið erfitt að setjast á skólabekk eftir langt hlé. NORDICPHOTOS/GETTY Stoðkennarinn býður upp á námsefni í íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, nátt- úrufræði, samfélags- fræði og tölvufærni, fyrir miðstig, unglingastig og fram- haldsskóla. MYND/STOÐKENNARINN.IS Starkaður Barkarson, framkvæmdastjóri Stoðkennarans, segir vefinn bæði hjálp fyrir kennara í skólastof- unni og nýtast foreldrum við að aðstoða börn sín. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Skipuleggjum einnig námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga Enskuskóli Erlu Ara - Let’s speak English Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflest konur á aldrinum 35 ára og eldri. • 10 getustig með áherslu á tal • Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar • Styrkt af starfsmenntasjóðum Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@gmail.com www.enskafyriralla.is Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið lak ön nu n Ca pa ce nt o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.