Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 30
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 „Af öllum plönum sem ég hef gert var þetta planið sem ég hafði minnsta stjórn á og ég gerði mér grein fyrir því strax því þetta byggðist á samstarfi,“ segir Björk Guðmundsdóttir, sem kveður nú Biophilia-verkefnið sitt eftir þriggja ára viðburðaríkt ferðalag. „Ég vissi að ég var að hugsa mjög stórt og mig væri að dreyma mjög stórt og vissi að ef einn fimmti af því rættist yrði ég glöð.“ Virkni tónlistar í rými Áttunda hljóðversplata Bjarkar, Bio- philia, kom út árið 2011 og í framhald- inu bjó hún til tíu mismunandi tölvu- forrit fyrir tíu mismunandi lög, byggð á tíu mismunandi náttúruöflum. Þau voru gefin út sem öpp fyrir iPhone, iPad og síðar meir Android-stýri kerfið. Verkefnið teygði sig út til skóla, bæði í Reykjavík, New York, Manchester og Buenos Aires, þar sem Björk dvaldi í mánuð í senn, hélt tónleika og hafði yfirumsjón með verkefninu. Lokahnykkur þess er sýning heim- ildarmyndarinnar Björk: Biophilia Live víða um heim á næstu mánuðum. „Þegar ég fór af stað með Biophiliu þá var grunnurinn að því öllu snerti- skjárinn. Þetta snerist alltaf um hvernig tónlist virkar í rými og hvernig hægt væri að ýkja það eins mikið og maður getur. Á tónleikaferðinni völdum við minni staði og spiluðum oft á sama stað. Við vorum með sviðið í miðjunni, pendúlinn, 24 stelpur að syngja í kór og svo var allt fólkið í kring. Við náðum að skrásetja það í myndinni sem hinn helminginn af þessu verkefni og það var rosalega mikilvægt fyrir mig. Ég er rosalega ánægð með að það tókst og um leið var hægt að binda slaufu á þetta verkefni,“ segir Björk glöð í bragði. Biophilia 203 Biophilia-verkefninu er því lokið af hennar hálfu, að minnsta kosti hvað tónlistina og tónleikaferðir varðar. Hún mun áfram tengjast því í gegnum norrænt samvinnuverkefni. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherra- nefndinni og í tilefni þess óskuðu stjórnvöld eftir samstarfi á Norður- löndunum um frekari þróun verkefnis- ins. „Næsta ár verður tilraunaverkefni í skólum í Skandinavíu. Núna búum við til Biophilia 203, sem er námsleið svo að venjulegur skólakennari geti sett hana inn í námsskrána hjá sér. Tónlistarnám ætti ekki að vera bóklegt. Það „meikar ekki sens“. Og að kenna eðlisfræði, það er svolítið erfitt að útskýra það fyrir krökkum í bók. Núna erum við að setja þetta aftur í bók og það er svolítil mót- sögn í því en það verður spennandi að sjá hvernig við leysum þetta verkefni,“ segir hún. Ný plata tengd MoMa Björk ætlar ekki að ferðast um heiminn til að kynna heimildarmyndina, enda er hún „á bólakafi“ í nýrri plötu. „Svo er dóttir mín [Ísidóra] líka í skóla hérna á haustin og ég reyni alltaf að halda mig hér.“ Þegar hún er spurð nánar út í nýju plötuna verður fátt um svör. „Hún gengur bara rosalega vel. Ég veit að hún kemur pottþétt út á næsta ári en í raun og veru get ég ekki mikið talað um hana.“ Verður þetta stórt verkefni í anda Biophilia eða „venjuleg“ plata? „Pirraði tónlistarkennarinn er búinn að fá útrás. Hún er mjög sátt, fitubollukennarinn einhvers staðar sem ropar. Þetta verður ekkert svoleiðis núna en meira kannski tengt MoMa. Sum lögin verða hluti af þeirri sýningu.“ MoMa er stytting á The Museum of Modern Art, eða Nýlistasafninu í New York. Á næsta ári heldur það sýninguna Björk þar sem ferli tónlistarkonunnar verða gerð góð skil. Björk og plötuútgáfa hennar, One Little Indian, gáfu safninu Bio philia-appið, sem var það fyrsta til að komast í eigu þess. „Mesti sigurinn við að MoMa tók það í varanlega vörslu er að þau eru skyldug til að uppfæra það. Það er rosa sigur að fá það í skrárnar hjá þeim sem framtíðarverk,“ segir hún. Dýrt að fljúga yfir eldgosið Björk er þekkt fyrir að vera mikið nátt- úrubarn og eldgos hafa komið við sögu í tónlist hennar og myndböndum. Spurð hvort hún hafi flogið yfir eldgosið í Holu- hrauni segist hún hafa verið að spá í það en ekki enn látið verða af því. „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt. Ég trúði því ekki hvað þetta kostaði. Á sama tíma er ég mjög ánægð með að það er alla vega minni séns á álverum á meðan þeir kunna að verðleggja náttúruna,“ segir hún og glottir. Dóttirin mikið náttúrubarn Af og til heyrist slúður af Björk og það nýjasta er að hún sé að flytja úr vestur- bæ Reykjavíkur yfir í Þingholtin. Þetta segir hún ekki rétt. „Ég er mjög ánægð í Vesturbænum. Svo framarlega sem ég er nálægt Vesturbæjarlauginni þá er ég nokkuð góð.“ Hún vill ekki tjá sig um skilnað sinn Björk bindur slaufu á Biophilia Björk Guðmundsdóttir lýkur þriggja ára Biophilia-verkefni sínu með nýrri heimildarmynd þar sem tónleikaferð hennar er fönguð. Fram undan er vinnsla nýrrar plötu sem kemur út á næsta ári. Henni líður vel svo lengi sem hún býr nálægt Vesturbæjarlauginni. Þetta er bara svo ógeðslega dýrt. Ég trúði því ekki hvað þetta kostaði. Á sama tíma er ég mjög ánægð með að það er alla vega minni séns á álverum á meðan þeir kunna að verðleggja náttúruna. Heimildarmyndin Björk: Biophilia Live fer í almennar sýningar í Bíói Paradís í dag en Björk var viðstödd íslensku frumsýninguna í gær. Myndin fangar tónleikaferðina sem söngkonan fór til að kynna áttundu hljóðversplötu sína, Biophilia. Myndin verður sýnd á takmörkuðum fjölda tónlistarhátíða, listasafna, bókasafna og gallería víðs vegar um heim. Evrópufrumsýning myndarinnar var haldin nýlega í Tékk- landi á Karlovy Vary-hátíðinni, þar sem bandaríska tímaritið Variety hældi myndinni og sagði m.a. að hún væri „grípandi heimild um listamann sem væri með fulla stjórn á eðlislægum kröftum sínum“. Á völdum sýningum verður heimildarmyndin When Björk Met Attenborough sýnd ásamt Björk: Biophilia Live, sem fjallar um samstarf söngkonunnar og sjónvarpsmannsins Davids Attenborough. HEIMILDARMYND Í BÍÓI PARADÍS við bandaríska listamanninn Matthew Barney en segist enn eyða hálfu árinu á Íslandi og hinum helmingnum í New York, eins og hún gerði áður en þau skildu. „Ég verð að vera hérna helm- inginn af tímanum. Mér hefur líka fund- ist það mikilvægt að krakkarnir mínir upplifi Ísland. Þau tala bæði íslensku og kunna líka íslensk jólalög. Dóttir mín er mjög mikið náttúrubarn. Það er búið að vera mjög gaman að fara með henni í göngur og réttir og fleira. Það tekur bara tíma að upplifa svoleiðis. Þú ferð ekki bara í sumarfrí og upplifir það.“ Stjörnuljós með Bono Þá er það lokaspurningin. Þegar Bono kom til Íslands um áramótin, kom hann þá ekki í heimsókn til þín? „Ég held að hann hafi textað alla sem hann þekkir. Hann textaði mig og við hitt- umst í hálftíma með stjörnuljós. Hann er nú enginn stórvinur minn en við í Sykurmolunum hituðum upp fyrir U2 í gamla daga. Það er einn af uppá- haldstúrunum mínum, Sykurmol arnir, Public Enemy og U2,“ segir Björk dreymin en um leið tilbúin til að tak- ast á við næstu verkefni á ferli sínum. Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.