Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 30
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
„Af öllum plönum sem ég hef gert
var þetta planið sem ég hafði minnsta
stjórn á og ég gerði mér grein fyrir því
strax því þetta byggðist á samstarfi,“
segir Björk Guðmundsdóttir, sem
kveður nú Biophilia-verkefnið sitt eftir
þriggja ára viðburðaríkt ferðalag. „Ég
vissi að ég var að hugsa mjög stórt og
mig væri að dreyma mjög stórt og vissi
að ef einn fimmti af því rættist yrði
ég glöð.“
Virkni tónlistar í rými
Áttunda hljóðversplata Bjarkar, Bio-
philia, kom út árið 2011 og í framhald-
inu bjó hún til tíu mismunandi tölvu-
forrit fyrir tíu mismunandi lög, byggð
á tíu mismunandi náttúruöflum. Þau
voru gefin út sem öpp fyrir iPhone,
iPad og síðar meir Android-stýri kerfið.
Verkefnið teygði sig út til skóla, bæði í
Reykjavík, New York, Manchester og
Buenos Aires, þar sem Björk dvaldi
í mánuð í senn, hélt tónleika og hafði
yfirumsjón með verkefninu.
Lokahnykkur þess er sýning heim-
ildarmyndarinnar Björk: Biophilia
Live víða um heim á næstu mánuðum.
„Þegar ég fór af stað með Biophiliu
þá var grunnurinn að því öllu snerti-
skjárinn. Þetta snerist alltaf um
hvernig tónlist virkar í rými og hvernig
hægt væri að ýkja það eins mikið og
maður getur. Á tónleikaferðinni völdum
við minni staði og spiluðum oft á sama
stað. Við vorum með sviðið í miðjunni,
pendúlinn, 24 stelpur að syngja í kór og
svo var allt fólkið í kring. Við náðum
að skrásetja það í myndinni sem hinn
helminginn af þessu verkefni og það
var rosalega mikilvægt fyrir mig. Ég er
rosalega ánægð með að það tókst og um
leið var hægt að binda slaufu á þetta
verkefni,“ segir Björk glöð í bragði.
Biophilia 203
Biophilia-verkefninu er því lokið af
hennar hálfu, að minnsta kosti hvað
tónlistina og tónleikaferðir varðar.
Hún mun áfram tengjast því í gegnum
norrænt samvinnuverkefni. Ísland fer
með formennsku í Norrænu ráðherra-
nefndinni og í tilefni þess óskuðu
stjórnvöld eftir samstarfi á Norður-
löndunum um frekari þróun verkefnis-
ins. „Næsta ár verður tilraunaverkefni
í skólum í Skandinavíu. Núna búum við
til Biophilia 203, sem er námsleið svo að
venjulegur skólakennari geti sett hana
inn í námsskrána hjá sér. Tónlistarnám
ætti ekki að vera bóklegt. Það „meikar
ekki sens“. Og að kenna eðlisfræði, það
er svolítið erfitt að útskýra það fyrir
krökkum í bók. Núna erum við að setja
þetta aftur í bók og það er svolítil mót-
sögn í því en það verður spennandi að
sjá hvernig við leysum þetta verkefni,“
segir hún.
Ný plata tengd MoMa
Björk ætlar ekki að ferðast um heiminn
til að kynna heimildarmyndina, enda er
hún „á bólakafi“ í nýrri plötu. „Svo er
dóttir mín [Ísidóra] líka í skóla hérna á
haustin og ég reyni alltaf að halda mig
hér.“
Þegar hún er spurð nánar út í nýju
plötuna verður fátt um svör. „Hún
gengur bara rosalega vel. Ég veit að
hún kemur pottþétt út á næsta ári en í
raun og veru get ég ekki mikið talað um
hana.“
Verður þetta stórt verkefni í anda
Biophilia eða „venjuleg“ plata? „Pirraði
tónlistarkennarinn er búinn að fá útrás.
Hún er mjög sátt, fitubollukennarinn
einhvers staðar sem ropar. Þetta verður
ekkert svoleiðis núna en meira kannski
tengt MoMa. Sum lögin verða hluti af
þeirri sýningu.“
MoMa er stytting á The Museum of
Modern Art, eða Nýlistasafninu í New
York. Á næsta ári heldur það sýninguna
Björk þar sem ferli tónlistarkonunnar
verða gerð góð skil. Björk og plötuútgáfa
hennar, One Little Indian, gáfu safninu
Bio philia-appið, sem var það fyrsta til að
komast í eigu þess. „Mesti sigurinn við
að MoMa tók það í varanlega vörslu er að
þau eru skyldug til að uppfæra það. Það er
rosa sigur að fá það í skrárnar hjá þeim
sem framtíðarverk,“ segir hún.
Dýrt að fljúga yfir eldgosið
Björk er þekkt fyrir að vera mikið nátt-
úrubarn og eldgos hafa komið við sögu
í tónlist hennar og myndböndum. Spurð
hvort hún hafi flogið yfir eldgosið í Holu-
hrauni segist hún hafa verið að spá í það
en ekki enn látið verða af því. „Þetta er
bara svo ógeðslega dýrt. Ég trúði því
ekki hvað þetta kostaði. Á sama tíma er
ég mjög ánægð með að það er alla vega
minni séns á álverum á meðan þeir kunna
að verðleggja náttúruna,“ segir hún og
glottir.
Dóttirin mikið náttúrubarn
Af og til heyrist slúður af Björk og það
nýjasta er að hún sé að flytja úr vestur-
bæ Reykjavíkur yfir í Þingholtin. Þetta
segir hún ekki rétt. „Ég er mjög ánægð
í Vesturbænum. Svo framarlega sem ég
er nálægt Vesturbæjarlauginni þá er ég
nokkuð góð.“
Hún vill ekki tjá sig um skilnað sinn
Björk bindur slaufu á Biophilia
Björk Guðmundsdóttir lýkur þriggja ára Biophilia-verkefni sínu með nýrri heimildarmynd þar sem tónleikaferð hennar er fönguð.
Fram undan er vinnsla nýrrar plötu sem kemur út á næsta ári. Henni líður vel svo lengi sem hún býr nálægt Vesturbæjarlauginni.
Þetta
er bara svo
ógeðslega
dýrt. Ég
trúði því
ekki hvað
þetta
kostaði. Á
sama tíma
er ég mjög
ánægð
með að
það er alla
vega minni
séns á
álverum á
meðan þeir
kunna að
verðleggja
náttúruna.
Heimildarmyndin Björk: Biophilia Live fer í almennar sýningar í Bíói Paradís í dag en
Björk var viðstödd íslensku frumsýninguna í gær. Myndin fangar tónleikaferðina sem
söngkonan fór til að kynna áttundu hljóðversplötu sína, Biophilia.
Myndin verður sýnd á takmörkuðum fjölda tónlistarhátíða, listasafna, bókasafna og
gallería víðs vegar um heim. Evrópufrumsýning myndarinnar var haldin nýlega í Tékk-
landi á Karlovy Vary-hátíðinni, þar sem bandaríska tímaritið Variety hældi myndinni
og sagði m.a. að hún væri „grípandi heimild um listamann sem væri með fulla stjórn
á eðlislægum kröftum sínum“. Á völdum sýningum verður heimildarmyndin When
Björk Met Attenborough sýnd ásamt Björk: Biophilia Live, sem fjallar um samstarf
söngkonunnar og sjónvarpsmannsins Davids Attenborough.
HEIMILDARMYND Í BÍÓI PARADÍS
við bandaríska listamanninn Matthew
Barney en segist enn eyða hálfu árinu
á Íslandi og hinum helmingnum í New
York, eins og hún gerði áður en þau
skildu. „Ég verð að vera hérna helm-
inginn af tímanum. Mér hefur líka fund-
ist það mikilvægt að krakkarnir mínir
upplifi Ísland. Þau tala bæði íslensku og
kunna líka íslensk jólalög. Dóttir mín er
mjög mikið náttúrubarn. Það er búið að
vera mjög gaman að fara með henni í
göngur og réttir og fleira. Það tekur
bara tíma að upplifa svoleiðis. Þú ferð
ekki bara í sumarfrí og upplifir það.“
Stjörnuljós með Bono
Þá er það lokaspurningin. Þegar Bono
kom til Íslands um áramótin, kom
hann þá ekki í heimsókn til þín? „Ég
held að hann hafi textað alla sem hann
þekkir. Hann textaði mig og við hitt-
umst í hálftíma með stjörnuljós. Hann
er nú enginn stórvinur minn en við
í Sykurmolunum hituðum upp fyrir
U2 í gamla daga. Það er einn af uppá-
haldstúrunum mínum, Sykurmol arnir,
Public Enemy og U2,“ segir Björk
dreymin en um leið tilbúin til að tak-
ast á við næstu verkefni á ferli sínum.
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is