Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGNámskeið LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 20144
Ýmislegt má gera til að viðhalda virkni heilans og auka minnið, góð leið til þess er til dæmis að
læra nýja hluti og prófa eitthvað nýtt
reglulega.
Nám
Flestir hætta að læra nýja hluti
eða tileinka sér nýtt efni eftir að
þeir hætta í skóla, hvort sem það er
grunnskóli, menntaskóli eða há-
skóli. Í rannsókn Hatch, Feinstein,
Link, Wadsworth og Richards kemur
fram að menntun og nám hafi já-
kvæðar breytingar á heilanum í för
með sér. Rannsakendur telja að vits-
munaleg virkni veiti vörn gegn elli-
glöpum. Heilinn bókstaflega stækk-
ar þegar fólk heldur áfram að læra
nýja hluti og ögra sjálfu sér. Minn-
ið eykst og nýjar heilafrumur mynd-
ast. Það er hægt að læra nýja hluti á
ýmsan máta, svo sem að fara á nám-
skeið í því sem hver og einn hefur
áhuga á, skipta um starf, finna sér
nýtt áhugamál, læra nýtt tungumál,
fylgjast með fréttum um allan heim
eða læra að matreiða nýja rétti.
Líkamlegar æfingar
Heilbrigð sál í hraustum líkama segir
máltækið og virðist sem regluleg-
ar æfingar hafi jákvæð áhrif á heila-
starfsemina. Æfingar styrkja tengsl
milli heilafrumna og hafa vísinda-
menn fundið út að þau svæði sem
örvast hvað mest við hreyfingu eru
tengd minni og námi.
Andlegar æfingar
Það er mikilvægt að halda huganum
uppteknum, að láta reyna á minnið
og nota hugsunina við lausn vanda-
mála. Því meira sem við hugsum
því betur virkar heilinn, burtséð frá
aldri. Án notkunar, líkt og ónotaðir
vöðvar, rýrnar heilinn sem leiðir til
minni getu hans til að leysa hugræn
verkefni. Leiðir til að virkja heilann
eru til dæmis lestur bóka, hugsana-
leikir, svo sem krossgátur, sudoku og
skrafl, dans, hugarreikningur og að
mála eða teikna.
Félagsleg tengsl
Félagsskapur hefur góð áhrif á heil-
ann þar sem samskipti eru í raun
ákveðið form andlegrar æfingar.
Það getur haldið mönnum skörp-
um að eiga samskipti við aðra því
það getur reynt á á mörgum svið-
um. Sterk félagsleg tengsl hafa verið
tengd við lægri blóðþrýsting hjá fólki
og betri lífslíkur.
Nám hefur góð áhrif á virkni heilans
Á undanförnum árum hefur komið í ljós að taugafrumur eða taugungar fólks geta endurnýjast fram eftir öllum aldri. Hægt er að fara
margar leiðir til að viðhalda virkni heilans og bæta minnið, það má fara í nám, gera líkamlegar æfingar, andlegar æfingar eða
einfaldlega hitta annað fólk. Ekki einungis hjálpa þessi ráð við heilastarfsemina heldur eru þau einnig góð fyrir líkama og sál.
Félagsskapur hefur góð áhrif á heilann og
samskipti við aðra eru ákveðið form and-
legrar æfingar. Sudoku þrautir þjálfa hugann og minnið.
Dans er góð andleg og líkamleg þjálfun.
Allt nýtt sem lærist er gott fyrir hugann
hvort sem það er nýtt tungumál eða nýr
réttur í eldhúsinu.
Nám hefur jákvæðar breytingar á heila í
för með sér, minnið eykst og nýjar heila-
frumur myndast. MYNDIR/GETTY
Kilroy Live er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi,“ segir Baldur Ólafs-son, sérfræðingur í námi erlendis
hjá ferðaskrifstofunni Kilroy.
„Á Kilroy Live geta þeir sem hafa
áhuga á háskólanámi ytra haft bein
samskipti við þá gestkomandi háskóla
sem þeir hafa áhuga á og fengið svör
við hverju því sem brennur á þeim hjá
fulltrúum skólanna sjálfra.“
Á Kilroy Live í Bíói Paradís verða full-
trúar frá samstarfsháskólum Kilroy í
Ástralíu, Bandaríkjunum, Kanada og
Englandi.
„Margir sem ætla sér utan í háskóla-
nám hugsa það ekki til enda,“ segir Bald-
ur. „Þá er góð staðsetning og orðspor
skólanna látið duga en ekki hugsað út í
hvað nemandinn uppsker úr námi sínu á
endanum. Kannski hentar draumaskól-
inn ekki jafn vel og skyldi en að því er
ómögulegt að komast nema fara vel ofan
í málin, bera skólana saman og ræða allt
sem veldur vangaveltum um viðkom-
andi skóla.“
Baldur segir stigsmun vera á öllum
háskólum þegar kemur að gæðum og
áherslu.
„Því er að mörgu að huga. Til dæmis
getur einn háskóli lagt áherslu á gæða-
nám í íþróttafræðum og þá vitaskuld
skynsamlegra að velja hann umfram
annan skóla sem er þó meðal þeirra
bestu í heimi en með litla áherslu á
íþróttafræði.“
Ástralskir háskólar vinsælir
Á Kilroy Live verður Baldur með fyrir-
lestur um hvað Kilroy gerir fyrir um-
sækjendur um háskólavist erlendis.
„Ég fer yfir ýmis mikilvæg atriði til
að koma sér utan til náms því mismun-
andi lönd hafa mismunandi reglur. Aðal
hausverkur flestra er hvernig fjármagna
á háskólanám ytra. Það er enda varhuga-
vert að ætla sér að æða út í nám þegar
skólagjöld eru kannski 40 þúsund dalir
en Lánasjóður íslenskra námsmanna
(LÍN) lánar ekki nema 14 þúsund dali
fyrir námsárið.“
Baldur segir æ fleiri Íslendinga fara til
háskólanáms í Ástralíu, þar sem eru af-
bragðs háskólar.
„Þrír af þeim sem koma til Íslands eru
Monash University, University of New
South Wales og University of Sydney en
þeir eru allir á lista meðal topp eitt pró-
sent háskóla í heiminum. Róðurinn er
ekki eins þungur að fara til há-
skólanáms í Ástralíu eins og
í Bandaríkjunum. Þannig
lánar LÍN 62 þúsund dali til
3ja ára grunnnáms í Ástr-
alíu en aðeins 44.100 dali
til fjögurra ára grunn-
náms í Bandaríkjun-
um.“
Baldur hefur ekki
fengið haldbærar skýr-
ingar frá LÍN af hverju
þessi einkennilega mis-
munun námslána er á milli
heimsálfa.
Í Bíói Paradís verða ráðgjaf-
ar Kilroy til skrafs og ráðagerða um
hvernig sótt er um háskólanám erlendis,
tungumálaskóla og fleira. Einnig verða
ferðasérfræðingar Kilroy á staðnum.
Á Facebook er hægt að taka þátt í leik
vegna Kilroy Live og vinna flug og heim-
sókn í einn af samstarfsháskólum Kilroy.
Frítt er inn á kynningarnar sem verða
tvisvar yfir daginn, klukkan 17 og 18.
Frekari upplýsingar um háskólanám
og skráningu á viðburðinn er að finna á
heimasíðu Kilroy: kilroy.is
Viltu læra við bestu háskóla heims?
Menntaviðburðurinn Kilroy Live 2014 verður haldinn hátíðlegur í Bíói Paradís mánudaginn 8. september, milli klukkan 16 og 19.
Þá gefst íslenskum námsmönnum tækifæri til að kynnast fjórtán mismunandi háskólum víðs vegar í heiminum og fá ráðleggingar
um hvernig best er að haga umsóknarferli í háskólana.
Háskólanám
erlendis felur
í sér dýrmæta
lífsreynslu en
að mörgu er
að huga og
algengt að fólk
átti sig ekki á
hvar byrja skuli á
umsóknarferlinu.
Þar kemur Kilroy
til hjálpar með
sérfræðingum í
námi erlendis.
EFTIRFARANDI SAMSTARFSHÁSKÓLAR KILROY VERÐA Á KILROY LIVE 2014:
Frá Ástralíu:
■ University of Sydney
■ Griffith University
■ La Trobe University
■ University of the Sunshine
Coast
■ Monash University
■ Queensland University of
Technology (QUT)
■ University of New South
Wales
■ TAFE Queensland East Coast
Frá Kanada:
■ Thompson Rivers University
Frá Bandaríkjunum:
■ Berkeley College
■ California State University of
San Marcos
Frá Englandi:
■ Bournemouth University
■ Coventry University
Kilroy er til húsa á
Skólavörðustíg 3a.