Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 55
ATVINNA - KERFISSTJÓRI
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða
kerfisstjóra til starfa sem fyrst, eða skv. nánara samkomulagi.
Um er að ræða 100% stöðu.
HSA rekur blandað tölvukerfi á 11 stöðum á Austurlandi.
Kerfisstjóri sinnir miðlægum kerfum, notendaþjónustu og öðrum
þeim verkefnum sem tengjast rekstri tölvukerfis stofnunarinnar
beint eða óbeint, auk annarra tilfallandi verkefna.
Viðkomandi annast daglegan rekstur net-, síma- og tölvukerfis
HSA, uppsetningu á vél-, hug- og jaðarbúnaði, umsjón með tölvum
og öðrum vélbúnaði, notendaumsýslu, stofnun og viðhald notenda,
eftirlit með hugbúnaði, umsjón með afritun og geymslu rafrænna
gagna, almenna ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn.
Menntun á sviði upplýsingatækni, svo sem kerfisfræði, kerfis-
stjórnunar eða sambærilegs æskileg. MCSA, MCSE eða MCITP
vottun æskileg. Haldbær reynsla af sambærilegu starfi við
rekstur tölvukerfa. Góð net- og hugbúnaðarþekking og þekking
á vélbúnaði. Staðgóð þekking á Windows-netkerfum, netþjónum
og útstöðvum. Þekking á Linux stýrikerfum og Cisco netbúnaði er
kostur.
Lögð er áhersla á frumkvæði í starfi, skipulagshæfni, sveigjan-
leika, ríka þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi stéttarfélags viðkomandi við
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og stofnanasamningum HSA.
Umsóknarfrestur um starfið er til 22. september nk.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út um-
sóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum
„laus störf.“
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Einarsson, forstöðumaður eigna- og tæknisviðs HSA, s.
892-3090, netf. kjartan@hsa.is og Emil Sigurjónsson, forstöðum.
mannauðssviðs HSA, s. 470-3053 & 895-2488, netf. emils@hsa.is.
Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar á þremur fagsviðum;
heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Umdæmissjúkrahús fyrir Austurland
er í Neskaupstað. Stofnunin þjónar alls um 11.000 íbúum frá Vopnafirði til
Djúpavogs, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim.
Vegna aukinna umsvifa leitar EFLA að reyndum hönnunar-
og verkefnisstjóra á samgöngusvið. Starfið felst aðallega í
að stýra fjölbreyttum hönnunarverkum í samgöngum með
áherslu á veghönnunarverkefni í Noregi og á Íslandi, ásamt
því að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu
samgöngusviðs EFLU.
Aðsetur starfsmanns verður í höfuðstöðvum EFLU í
Reykjavík. Um framtíðarstarf er að ræða.
Hæfniskröfur:
• A.m.k. BSc. gráða í byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði er
skilyrði
• Reynsla í stjórnun hönnunarverka í vega- og gatnagerð
• Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð tök á íslensku, ensku og a.m.k. einu norðurlandamáli
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skulu berast
í gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/umsokn-um-starf, fyrir 20.
september næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað og farið með
þær sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Guðnason, sviðsstjóri
samgöngusviðs, gudmundur.gudnason@efla.is.
EFLA verkfræðistofa óskar
eftir að ráða starfsmann á
samgöngusvið
EFLA er alhliða verkfræði- og
ráðgjafarfyrirtæki sem veitir
vandaða þjónustu á öllum helstu
sviðum verkfræði og tækni. Við
lítum á öll verkefni sem tækifæri
til þess að stuðla að framförum
og efla samfélagið.
EFLA býður upp á afbragðs
starfsumhverfi, áhugaverðan
starfsvettvang í alþjóðlegu
umhverfi og sterka liðsheild yfir
240 samhentra starfsmanna.
HÖFÐABAKKI 9 • 110 REYK JAVÍK • 412 6000 • www.efla.is • ÍSLAND • DUBAI • FRAKKLAND • NOREGUR • SVÍÞJÓÐ • PÓLLAND • RÚSSLAND • T YRKLAND
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna
Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni
fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og
að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem milli-
landaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia
leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
Umsækjandi þarf að standast bakgrunnsskoðun ríkis-
lögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september.
Umsóknum skal skila rafrænt á www.isavia.is/atvinna
Isavia óskar eftir reynslumiklum rafvirkja með áhuga á
flugi. Gerð er krafa um sveinspróf í rafvirkjun og reynslu
af rekstri og viðhaldi smá-, lág- og háspennukerfa. Auk
þess er þekking á iðntölvustýringum og CCR aflgjöfum
æskileg. Starfið felur í sér ferðalög um landið.
Í starfinu felst meðal annars:
• Vinna við brautarlýsingu, aðflugs- og flugleiðsögukerfi
• Viðhald hússtjórnarkerfa
• Almenn raflagnavinna