Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 4
13. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
NEYTENDAMÁL Gert er ráð fyrir að
það kosti 745 krónur á dag að fæða
hvern einstakling, í frumvarpi
fjármálaráðherra um breytingar á
virðisaukaskatti. Hver fjölskylda
verji rúmlega 2.980 krónum í öll
matarinnkaup á dag. Hver máltíð
á einstakling kosti 248 kr.
Þessar tölur eru byggðar á neyslu-
könnun Hagstofu Íslands. Miðað er
við hjón með tvö börn, annað yngra
en sjö ára. Miðað við þetta er búist
við því að fyrirhuguð hækkun á
matarskatti kosti heimilin 4.315
krónur á mánuði. Sé kostnaður við
matar- og drykkjarinnkaup meiri
en þar er gert ráð fyrir má gera ráð
fyrir að áhrif af hækkun matar-
skatts verði líka meiri.
Bryndís Loftsdóttir er húsmóð-
ir og jafnframt varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Hún er ósam-
mála þeim tölum sem lagðar eru til
grundvallar í frumvarpinu. Hún
segist verja tveimur milljónum í
mat á ári, en Bryndís á mann og
þrjú börn á aldrinum 6-11 ára. Í
frumvarpinu er hins vegar gert ráð
fyrir að fjögurra manna fjölskylda
verji 988 þúsund krónum í mat og
drykk.
Bryndís er ósátt við breytingar
á virðisaukaskattsfrumvarpinu.
„Það er nokkuð ljóst að boðuð ein-
földun mun ekki þýða lægri útgjöld
fyrir almenning. Matvæli og aðrar
vörur sem nú bera sjö prósent virð-
isaukaskatt munu samviskusamlega
hækka í verði í takt við hækkun á
virðisauka og að auki um nokkr-
ar krónur og tíkalla umfram það,“
segir Bryndís.
Bryndís segir að Danmörk sé eina
landið í Evrópu með eitt skattþrep.
„Þeir eru með 25% virðisauka-
skatt. Vissulega einfaldur en afar
hár skattur. Í Sviss og Noregi, sem
standa fyrir utan Evrópusamband-
ið, líkt og við, eru þrjú virðisauka-
skattsþrep,“ segir hún.
Bryndís segir að það sem þurfi
að horfa til sé að fella niður vöru-
gjöld og einfalda tollflokkun. „Það
er verðugt verkefni fyrir fjármála-
ráðuneytið ásamt afnámi hafta sem
vonandi er í algjörum forgangi.
Þegar við svo réttum betur úr kútn-
um lækkum við efra skattþrepið, um
það verður varla neinn ágreining-
ur,“ segir Bryndís.
jonhakon@frettabladid.is
Ríkið segir 250 krónur
duga fyrir máltíðinni
Gert er ráð fyrir að það kosti 745 krónur að fæða hvern einstakling á dag. Fjögurra
manna fjölskylda verji 92 þúsund krónum í mat og drykk á mánuði. Þetta eru þær
tölur sem liggja til grundvallar í frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti.
BÓNUS Gert er ráð fyrir að fjögurra manna fjölskylda verji 92 þúsund krónum í mat
og drykk á mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKIPULAGSMÁL Samstaða er milli
borgaryfirvalda í Reykjavík og
bæjaryfirvalda í Kópavogi um
að fyrirhuguð brú yfir Fossvog
verði hönnuð þannig að hún geti
borið strætisvagna þótt hún sé
fyrst og fremst ætluð fyrir
gangandi vegfarendur og hjóla-
fólk.
Málefni Fossvogs voru rædd
á fundi Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra og Ármanns Kr.
Ólafssonar bæjarstjóra fyrir
rúmri viku. Þar var samþykkt
að halda fund með Vegagerð-
inni varðandi Fossvogsbrú því
mannvirkið væri svokallaður
stofnstígur milli sveitarfélaga.
Þá var embættismönnum falið
að ræða við siglingamenn sem
gagnrýnt hafa brúaráformin.
Á fundinum var einnig rætt
um staðsetningu sameiginlegr-
ar sundlaugar í Fossvogsdal.
Skoða á þrjá staði nánar. Að því
loknu verður unnið sameiginlegt
skipulag fyrir dalinn í heild.
- gar
Borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjóri Kópavogs funduðu um sundlaug og samgöngur í Fossvogi:
Brúin yfir Fossvog beri líka strætisvagna
46% fjölgun varð á föngum á Íslandi á
milli áranna 2002 og 2012.
Fyrra árið sátu að meðaltali 85
fangar í fangelsum landsins en
árið 2012 dvöldu að meðaltali 119
manns í fangelsi á hverjum tíma.
Heimild: Hagstofa Íslands.
M
YN
D
/ALARK
FOSSVOGSBRÚ Tengja
á Kópavog og Reykjavík með brú
úr Kársnesi yfir Fossvoginn.
Matvæli
og aðrar vörur
sem nú bera
sjö prósent
virðisauka-
skatt munu
samviskusam-
lega hækka í verði í takt við
hækkun á virðisauka og að
auki um nokkrar krónur og
tíkalla umfram það
Bryndís Loftsdóttir.
Heildarútgjöld fjögurra manna fjölskyldu á mánuði 57.0000 kr.
Útgjöld í mat og drykk á mánuði 92.340 kr.
Dagleg útgjöld í mat og drykk 2978,7 kr.
Útgjöld á máltíð miðað við þrjár máltíðir á dag 992,9 kr.
Kostnaður við einstaka máltíð hvers einstaklings í fjölskyldunni 248,2 kr.
ÚTGJÖLD HEIMILANNA Á MÁNUÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
STILLT HAUSTVEÐUR verður víða á landinu næstu daga og nokkuð sólríkt.
Lítilsháttar úrkoma fellur á Norðvesturlandi og með suðausturströndinni í dag en á
morgun lítur út fyrir að verði úrkomulaust.
3°
6
m/s
3°
5
m/s
3°
3
m/s
4°
6
m/s
Hæg
breytileg
átt.
Fremur
hægur
vindur
víðast
hvar.
Gildistími korta er um hádegi
18°
30°
12°
18°
22°
11°
21°
13°
13°
25°
16°
24°
25°
24°
20°
21°
13°
20°
3°
3
m/s
6°
5
m/s
3°
2
m/s
3°
3
m/s
2°
2
m/s
2°
4
m/s
-3°
2
m/s
4°
5°
2°
2°
3°
5°
3°
3°
0°
0°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
HEILBRIGÐISMÁL „Ef það kæmi
ebólusmitaður sjúklingur hingað
í dag þá myndi ég segja að við
værum ekki undirbúin,“ segir
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans.
Mikil hræðsla hefur gripið um
sig eftir að heilbrigðisyfirvöld
í Texas fullyrtu í gær að starfs-
maður hefði smitast af ebólu. Það
er annað smitið sem upp kemur
utan Vestur-Afríku. Páll segir
viðbragðsteymi hér á landi ekki
fullmannað en að lokaundirbún-
ingur sé nú í gangi. Leit standi
yfir af fólki sem er tilbúið að
ganga til liðs við viðbragðsteymi
þar sem eru um 30 stöðugildi. - þþ
Ekki búin undir ebólu:
Viðbragðsteymi
ekki fullskipað
PÁLL MATTHÍASSON Forstjóri Land-
spítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JAPAN, AP Japanar bjuggu sig í
gær undir heljarmikið fárviðri,
sem strax í gær var reyndar komið
til syðstu eyja landsins en heldur
síðan áfram norður eftir eyjunum.
Stormsveipurinn nær til Tókýó á
morgun, standist spár veðurfræð-
inga.
Það er fellibylurinn Vongfong,
sem þarna er á ferðinni, og er
sagður öflugasti fellibylur ársins. Í
gær feykti hann um koll rafmagns-
möstrum og umferðarmerkjum.
Reiknað var með að fella þyrfti
niður lestarsamgöngur að hluta í
Tókýó og nágrenni. Varað er við
aurskriðum. - gb
Öflugasti bylur ársins:
Fárviðri á leið
til Japans
FYLGST MEÐ ÖLDUGANGI Háar öldur
skullu á ströndum eyjunnar Okinawa í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, segir
500 milljóna evra neyðarlán sem
Seðlabankinn veitti Kaupþingi
þann 6. október árið 2008 hafa
verið tilraun til að bjarga bankan-
um. Ef það hefði tekist og Kaup-
þing lifað þá hefði myndin orðið
allt önnur og miklu viðráðanlegri.
Þetta kom fram í gær í sjón-
varpsþættinum Eyjunni á Stöð
2. Tap Seðlabankans og þar með
skattgreiðenda vegna lánsins
er um 35 milljarðar króna. Geir
segir ákvörðunina um lánið verða
að meta í ljósi þeirra aðstæðna
sem þá voru uppi, ekki þess sem
menn vita núna. - gag
Risalánið til Kaupþings:
Ákvörðun tekin
í ljósi aðstæðna
STJÓRNMÁL Gunnar Bragi Sveins-
son utanríkisráðherra sat á
laugardag fund þróunarnefnd-
ar Alþjóðabankans fyrir hönd
Norðurlandanna og Eystrasalts-
ríkjanna.
Nefndin ræddi hvernig
Alþjóðabankinn gæti betur
brugðist við ójafnræði í heim-
inum og aukið velmegun og hag-
sæld fyrir þá fátækustu. Í frétt
frá utanríkisráðuneytinu segir að
Gunnar Bragi hafi lagt áherslu
á að fjárfesta þurfi frekar í
mannauði í fátækustu ríkjunum,
tryggja jafnrétti kynja og efla
tekjuöflun í þróunarlöndunum
sjálfum. - gar
Utanríkisráðherra ytra:
Þarf af fjárfesta
í mannauði