Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 48
13. október 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 20 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK GONE GIRL KL. 5.45 - 9 THE EQUALIZER KL. 9 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15 BOYHOOD KL. 5.40 - 9 VONARSTRÆTI KL. 6 GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.15 GONE GIRL LÚXUS KL. 4.45 - 8 DRACULA KL. 5.45 - 8 - 10.30 THE EQUALIZER KL. 8 - 10.45 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 LET́S BE COPS KL. 5.45 PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 „TÖ FF, BRENGLUÐ OG ÖGRANDI“ - EMPIRE #1 MOVIE IN THE WORLD „EIN AF ALBESTU MYNDUM ÁRSINS“ -T.V., BIOVEFURINN TUSK - SÉRSTÖK SÝNING 8 GONE GIRL 7, 10:10 DRACULA UNTOLD 10:20 SMÁHEIMAR 5:40 WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8, 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ATH! SÉRSTÖK SÝNING Í SAMSTARFI VIÐ BÍÓVEFINN.IS -T.V., biovefurinn -EMPIRE „Ég frétti að hann hefði verið búinn að spotta mig áður en hann kom að borða hjá mér. Svo kom hann bara til mín og bauð mér að koma næsta sumar. Það má segja að hann sé Siggi Hall Finnlands,“ segir Ylfa Helga- dóttir, kokkur og annar eigenda veitingastaðarins Kopars. Hún tók þátt í Food and Fun-hátíð- inni sem haldin var í Finnlandi nú fyrir skemmstu, og í fram- haldinu var henni boðið að koma og vinna í svokölluðu Food Camp fyrir eina Michelin-stjörnuveit- ingastaðinn í Finnlandi. „Eig- andi staðarins, sem heitir OLO, ætlar að leggja áherslu á kven- kokka á næsta ári. Við verðum á stað sem er rétt fyrir utan Hels- inki og fáum meðal annars að fara út í skóg og tína fersk hrá- efni þar. Þetta verður æði,“ segir Ylfa. Hátíðin Food and Fun er íslensk en þetta er í fyrsta sinn sem hún er haldin erlendis. „Siggi Hall bað mig bara um að koma og vera með í sumar, því hann vantaði kvenkynskokk,“ „Ég var eina stelpan úti, en það var ekkert nýtt, það er yfirleitt sirka ein stelpa á móti tíu strák- um.“ Ylfa segir að Finnarnir hafi tekið þessu mjög alvarlega og setningarhátíðin var einstak- lega glæsileg, en hún var haldin í ráðhúsinu í Helsinki. Ylfa segist hafa verið mjög heppin með veit- ingastaðinn sem hún fékk, sem heitir MAMI. „Ég var búin að senda þeim hugmyndir og leið- beiningar um fjögurra rétta mat- seðil eftir mínu höfði í tölvupósti og var svo búin að gera ráð fyrir að vera að elda allt kvöldið. Svo þegar ég mætti þá rétt náði ég að sýna þeim hvernig diska ég vildi hafa,“ segir Ylfa. „Ég var svo bara stærstan hluta af kvöld- inu frammi að spjalla við gest- ina, það voru allir svo áhuga- samir og spurðu mikið. Það var alveg rosalega gaman og þetta gekk svo vel.“ Við undirbúning matseðilsins lagði Ylfa áherslu á hráefni sem væri fáanlegt bæði hér heima og í Finnlandi. „Ég er rosalega mikið fyrir bragðríkan mat og skemmtilegar samsetn- ingar og lagði áherslu á að hafa mat sem var óvenjulegur fyrir Finnunum,“ segir Ylfa. Á lokakvöldinu hlaut hún og hennar veitingastaður sérstök verðlaun fyrir að hafa náð bestu heildarupplifuninni. „Það er víst ekki venjan að verðlauna fyrir þetta, en þeir voru svo rosalega ánægðir með þetta. Mjög gaman að fá svona extra viðurkenn- ingu,“ segir Ylfa. adda@frettabladid.is Ylfa eldar á Michelin-stjörnu- veitingahúsi í Finnlandi Ylfa Helgadóttir kokkur tók þátt í Food and Fun í Finnlandi. Fékk sérstök verðlaun fyrir bestu heildarupplifun. SLÓ Í GEGN Finnarnir voru yfir sig hrifnir af matnum hennar Ylfu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ég var eina stelpan úti, en það var ekkert nýtt, það er yfirleitt sirka ein stelpa á móti tíu strákum. BAKÞANKAR Berglindar Pétursdóttur Ég þarf ekki að ganga nema þrjú hundr-uð metra eftir Bergstaðastrætinu til að komast í vinnuna. Á þessari stuttu morgungöngu er ýmislegt við að vera. Hægt er að veifa að minnsta kosti fimmtíu túristum, og aðstoða þá svo alla við að finna The Volcano Show í Hellusundi (ábending til Volcano Show; fáið ykkur skilti), dást að mið- borginni og hnjóta um glaðleg leik- skólabörn á leið sinni á Laufásborg. Þarna á horni Bragagötu er líka listasafn með fallegri list en gluggar gallerísins eru ekki síður upplagðir til að spegla sig í. Á þessari skemmtilegu leið minni hefur upp á síð- kastið verið bryddað upp á nýjung að frumkvæði hinna ýmsu hundaeigenda sem virðast margir vera hættir að a) tína upp eftir hundana sína og b) vísa hundunum sínum í garð Egils Helgason- ar að skíta. Undanfarið hef ég á þrjúhundruðmetrunum talið allt að fjórtán saursýni sem hundarnir hafa í lífeðlisfræði- legri blindni verið svo vingjarnlegir að skilja eftir, og hinir siðblindu eigendur barasta haldið blístrandi áfram göngunni, „érekki með poka sko“. DÆMI um týpískan haust-antíklímax er þegar þú ert spígsporandi í haustsólinni, andandi hraustlega að þér köldu súrefni í glænýjum bomsum og finnur svo að þú rennur í sporinu. Í hægðum. Þú reynir að klína stærsta lortinum aftur í stétt- ina, tekur kleprana sem eftir verða með þykku laufi, veltir vöngum yfir því af hverju þetta séu örlög þín og horfir á eftir litlu tári sem dettur ofan í kúkinn. Hvort sem um er að ræða sólþurrkaðan með skorpu eða niðurrignda ógeðs klessu, allt sama niðurlægingin. ÉG á ekki hund svo ég veit ekki hversu þrúgandi álag það er að tína upp spörðin eftir þá en ég á þriggja ára son og ekki legg ég það á hundaeigendur að stíga glæ- nýjum Timberland-skóm í sakleysi sínu í lungamjúkar hægðir hans. HÆTTIÐ að vera svona mikil ógeð. Tínið upp eftir dýrin ykkar. Hundakúkur Þegar Reese Witherspoon var 14 ára var hún farin að fara í áheyrnarpruf- ur. Þegar dóttir hennar Ava var 14 ára sýndi hún móður sinni bók Mal- övu Yousafzai. Þessu sagði Reese frá á góðgerðarkvöldi Variety fyrir konur með völd á föstudaginn í Los Angeles. Reese talaði til heiðurs góð- gerðarsjóði Malövu. Þar sagði hún frá því hvernig dóttir hennar hefði kynnt hana fyrir þessari hetju. „Þegar dótt- ir mín var 7 eða 8 ára gömul sagði hún við mig að hún vildi ekki fara í skólann. Ég nýtti tækifærið og sagði henni frá því að til væri fullt af stelp- um um allan heim sem fengju ekki að fara í skóla. Hún var mjög hissa og spurði mig af hverju,“ sagði hún meðal annars í ræðu sinni. Dóttirin kynnti móður sinni svo þessa mögn- uðu baráttuhetju síðar, þegar hún var orðin 14 ára. Reese var þakklát fyrir það og talaði hún einnig um hversu mögnuð barátta Malövu væri og hvað hún hefði gert mikið fyrir konur í heiminum. Dóttirin kynnti Reese fyrir Malövu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.