Fréttablaðið - 13.10.2014, Qupperneq 15
VATNSKÖNNUR
Spænski hönnuðurinn Patricia Urquiola
hefur hannað könnur sem nota má á veit-
ingahúsum í Bilbao. Innblásturinn sótti
hún til hefðbundinna trékanna sem not-
aðar hafa verið í Baskalandi um aldir.
Þetta er tiltölulega ný þjónusta hjá okkur en við hreinsum húsgögn fyrir stofnanir og fyrirtæki,“ útskýrir
Daníel Einarsson, framkvæmdastjóri
Hreinsanda ehf.
„Við hreinsum sófasett og stóla af bið-
stofum, setustofum og fyrirlestrasölum,
skrifstofustóla og fleira. Hægt er að fá
lánaða stóla hjá okkur á meðan verið er að
hreinsa húsgögnin en öll hreinsun fer fram
í húsnæði okkar að Eldshöfða 1. Þar höfum
við fullkomin tæki og efni til djúphreins-
unar og einnig þurrkklefa en við þurrkum
húsgögnin eftir hreinsun. Við náum í hús-
gögnin í viðkomandi fyrirtæki og skilum
þeim aftur, hreinum og þurrum. Við tókum
þrjú hundruð stóla um daginn og höfum
tekið allt upp í sjö hundruð stóla í einu.“
Hreinsandi þjónustar fyrirtæki um allt
land. Starfsmaður fer þá á staðinn með
búnað til hreinsunar. „Þar er eini munurinn
á að við þurrkum ekki húsgögnin þar sem
aðstaðan til þess er hér í Reykjavík.“
HREINSUN Á MYGLUSVEPP
„Við erum einnig að hreinsa myglusvepp
úr húsgögnum og innan úr híbýlum fólks
en starfsmenn okkar hafa farið á námskeið
í hreinsun myglusveppa. Við mætum á
staðinn, metum hvað er á ferðinni og til
hvaða aðgerða þarf að grípa. Við köllum
einnig fagmann til að meta aðstæður ef
þess þarf. Íbúar geta þurft að flytja út í
nokkra daga meðan á hreinsun stendur,“
segir Daníel.
Nánari upplýsingar er að finna á heima-
síðu Hreinsanda: www.hreinsandi.is og í
síma 577 5000.
ÞRIF Á STÓLUM
FYRIR FYRIRTÆKI
HREINSANDI KYNNIR Hreinsandi býður fyrirtækjum og stofnunum upp á þrif
á húsgögnum. Hreinsandi bæði sækir húsgögnin á staðinn og skilar og hægt
er að fá lánuð húsgögn á meðan hreinsun stendur yfir.
EINS OG NÝTT „Öll
hreinsun fer fram í hús-
næði okkar að Elds-
höfða 1. Þar höfum við
fullkomin tæki og efni
til djúphreinsunar,“
segir Daníel Einars-
son, framkvæmdastjóri
Hreinsanda.
DJÚPHREINSUN
Hreinsandi ehf. annast
djúphreinsun á stólum
og sófum fyrir fyrirtæki
og stofnanir. Húsgögnin
eru sótt á staðinn, þau
djúphreinsuð og þurrk-
uð og keyrð aftur í hús.
M
Y
N
D
/PJET
U
R