Reykjavík


Reykjavík - 01.12.2012, Side 1

Reykjavík - 01.12.2012, Side 1
Bygging hótels við Ingólfstorg ógnar afkomu fyrirtækja á svæðinu Miðborgarstjóri segir að áætluð velta fyrirtækja á svæðinu muni minnka um 30% á meðan á byggingu hótelsins stendur og einhver fyrirtæki muni ekki lifa það af. Fyrirhuguð bygging hótels við Ingólfstorg og Austurvöll er eitt umdeildasta mál miðborgar Reykjavíkur. Sem kunnugt er hefur risið mótmælaalda vegna byggingar hótelsins og á heimasíðu andstæðinga byggingar- innar hafa nú 17 þúsund manns skráð nafn sitt á mótmælalista. Auk þess sem forsætisnefnd Alþingis hefur mótmælt fyrirhuguðum framkvæmdum. Jakob Frímann Magnússon Miðborgar- stjóri segir að þarna takist á eignarréttur eiganda og svo vilji þeirra sem fyrir eru á svæðinu og telja fyrirhugaðar fram- kvæmdir svæðinu lítt til framdráttar. Byggingarframkvæmdir myndu standa í eitt til tvö ár og áætluð velta fyrirtækja í nágrenninu minnka um 30% á meðan. Liðlega helmingur þeirra sem nú eru starf- andi á svæðinu mundu við slíkar aðstæður neyðast til að bregða búi. Rekstraraðil- arnir spyrja sig margir: „Til hvers að reisa einhverjar steinhallir inni á miðju Ing- ólfstorgi, til hvers? Hver bað um það?“, spyr Jakob. „Þetta er a.m.k. mjög gegn vilja margra þeirra sem hér stunda rekstur um þesar mundir. Þetta er jú eitt viðkvæmasta svæði borgarinnar. Við Aðalstræti eru nú þegar þrjú hótel sem þegar valda umtalsverðum umferðartruflunum. Að bæta við 300- 500 hótelherbergjum án þess að skýrar sam- göngulausnir séu í sjónmáli veldur ýmsum áhyggjum. Það er ennþá talað um þetta af fullri alvöru, en andstaðan er það sterk og öflug að hún gæti hæglega skipt sköpum,“ segir Jakob Frímann Magnússon. Nánar er rætt við hann á bls. 8. Dúkadagar Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is 25% afsláttur af öllum dúkum í dag, laugardag opið 11-16 20 % opnunarafsláttur Tímapantanir í síma 777-0400 Helga Ína Steingrímsdóttir Löggildur fótaaðgerðafræðingur Hef opnað fótaaðgerðastofu Í Orkuhúsinu Suðurlandsbraut 34, 108 Reykjavík Býð nýja og eldri viðskiptavini velkomna 1. DESEMBER 2012 45. tölublað 3. árgangur V I K U B L A Ð Faxafeni 5, Reykjavik og Skeiði 1, Ísafirði Sími 588 8477 • www.betrabak.is NÝTT Á RÚMIÐ FYRIR JÓLIN! Þegar mjúkt á að vera mjúkt getur þú treyst okkar vöru merkjum. Betra bak er einungis með sérvalin sængur vera sett, svo ekki sé talað um Aloe Vera bómullar-lökin sem slegið hafa í gegn. AÐEINS til 5. des. Rýmum til fyRiR nýjum VöRum 30-50% afsláttur af sængurverasettum! 15% afsláttur af nýju jólasendingunni! Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugard. frá kl. 11-17 • Sunnud. frá kl. 13-17

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.