Reykjavík - 01.12.2012, Blaðsíða 2
2 1.DESEMBER 2012
Jól í Laugardal
Nú þegar aðventan er gengin í garð verður ýmislegt í boði fyrir gesti Laugardals eða
Jóladalsins eins og hann heitir þessa
dagana.
Jólakötturinn hefur komið sér fyrir
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
þar sem kofi hefur verið reistur fyrir
hann. Þá verður Café Flóra opin um
allar helgar frá klukkan 12 til 16:30 og
fagurlega skreyttu jólatré hefur verið
komið fyrir á miðju svellinu í Skauta-
höllinni. Listhlaupadeild Skautafélags
Reykjavíkur verður með sýningar allar
helgar til jóla.
Reykjavík vikublað óskar eftir að komast í samband við borgar búa sem sjaldan eða
aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl.
Vinsamlegast sendið okkur tölvu póst á ritstjorn@fotspor.is eða hringið í síma 698-6789.
REYKJAVÍK VIKUBLAÐ 45. TBL. 3. ÁRGANGUR 2012
ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578-1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Haukur Holm, netfang: haukur@fotspor.is. Myndir: Ýmsir, netfang: ritstjorn@fotspor.is, sími: 698-6789.
Umbrot: Prentsnið. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 46.000 eintök. Dreifing:
REYKJAVÍK VIKUBLAÐI ER DREIFT Í 45.600 EINTÖKUM ÓKEYPIS Í ALLAR ÍBÚÐIR Í REYKJAVÍK.
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
REYKJAVÍKURGETRAUNIN
Aðventan hófst í dag og því formlegur aðdragandi jóla. Ýmsir hafa tekið forskot á sæluna og víða um borgina hefur um hríð mátt sjá fagurlega skreytt hús, en viðbúið er að slíkt færist
mjög í aukana frá og með deginum í dag.
Það verður mikið tilstand í miðborg Reykjavíkur fyrir þessi jól, ef
marka má orð Miðborgarstjórans Jakobs Frímanns Magnússonar, en
hann lofar því að miðborgin verði jólalegri og fallegri en nokkru sinni
fyrr. Slíkt gefur góð fyrirheit um skemmtilega og jólalega aðventu.
Það er gömul saga og ný að miðborgin eigi undir högg að sækja gagnvart
verslunarmiðstöðvum og víst er að þær hafa sína kosti, en líka galla,
alveg á sama hátt og það fylgja því kostir og gallar að fara um stræti
miðborgarinnar, einkum ef veður eru válynd. En líklega er óhætt að
fullyrða að þegar jólin nálgast þyki flestum meira til þess koma að gera
sín innkaup í miðborginni sem og að fara þangað til að sýna sig og
sjá aðra sem og að njóta þess sem þar er í boði. Og það verður meira
heldur en minna sem verður í boði samkvæmt Miðborgarstjóranum.
Jólaþorp rís um miðjan mánuðinn á Ingólfstorgi þar sem margs konar
varningur verður í boði, en einnig verða ýmsar uppákomur á mótum
Laugavegar og Skólavörðustígs og líka framan við Kjörgarð á Laugavegi.
Á morgun verða ljósin á Óslóartrénu tendruð, en íbúar höfuðborgar
Noregs hafa í yfir sextíu ár fært Reykvíkingum jólatré á Austurvöll.
Í hugum margra kynslóða er sú ljósatendrun óbrigðult merki um að
það styttist í jólin.
Góða helgi.
Leiðari
Jól í Reykjavík
Svar á bls. 14
Hvaða samband er með starfsemi sína í
þessu húsi og hvar stendur það?
Betri afkoma
Reykjavíkurborgar
en ráð var fyrir gert
Árshlutareikningur Reykja-víkurborgar fyrir fyrstu níu mánuði ársins sýnir að af-
koman er betri en áætlanir gerðu ráð
fyrir, samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg.
Þar segir að rekstrarniðurstaðan
fyrir tímabilið, bæði fyrir A og B
hluta borgarsjóðs sé jákvæð um 2.218
milljónir króna, en áætlunin hafi gert
ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 2.098
milljónir. Samkvæmt þessu er niður-
staðan 120 milljónum króna betri en
gert var ráð fyrir. Þetta gerist, segir
í yfirlýsingu frá borginni, þrátt fyrir
að fjármagnsgjöld hafi verið rúmlega
einum og hálfum milljarði króna hærri
en áætlanir sögðu.
Mestu skiptir í þessu samhengi að al-
gjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri
Orkuveitu Reykjavíkur, sem telst til
B-hluta borgarsjóðs.
Átak gegn kynbundnu ofbeldi
stendur yfir í Reykjavík
Um er að ræða alþjóðlegt átak, en fulltrúar í mannréttinda-ráði Reykjavíkurborgar sem
og starfsfólk borgarinnar hafa tekið
höndum saman og ætla að fjalla um
kynbundið ofbeld á margvíslegan
hátt, á vef borgarinnar. Daglega birt-
ist ljóð, lag, hugleiðing eða örsaga
um efnið.
Borgarráð samþykkti í sumar
aðgerðaráætlun borgarinnar gegn
kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn
börnum. Þá hefur borgin sett upp vefi
á íslensku, ensku og pólsku þar sem
fórnarlömb ofbeldis geta fengið upp-
lýsingar um hvar finna megi hjálp.
Átakið hófst 25. nóvember og stendur
til 9. desember.
Jólakötturinn hefst við í hreysi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum