Reykjavík - 01.12.2012, Blaðsíða 4
1.DESEMBER 2012
Unglingar í Grafarvogi styrkja fjöl-
skyldu Davíðs Arnar Arnarssonar
Unglingar og félagsmiðstöðvar á vegum frístundamiðstöðv-arinnar Gufnesbæjar í Graf-
arvogi ætla dagana 4.-7. desember
að styrkja fjölskyldu Davíðs Arnar
Arnarssonar sem lést frá eiginkonu og
tveimur ungum börnum á dögunum
eftir erfiða baráttu við krabbamein.
Þettar verður í svokallaðri Góð-
gerðarviku, sem er hugmynd ungling-
anna sjálfra, en þetta er í sjöunda sinn
sem þeir efna til slíkrar viku. Megin-
markmið vikunnar er að unglingar
kynni sér góðgerðarmálefni og vakni
til vitundar um það hvernig þeir geti
lagt öðrum lið og haft uppbyggileg
áhrif á samfélag sitt.
Undirbúningurinn núna hefur
staðið í tvo mánuði og hafa tveir
stórir atburðir verið skipulagðir.
Annars vegar kaffhúsakvöld fyrir
alla Grafarvogsbúa, en það verður 4.
desember í Fjörgyn og munu þekktir
tónlistarmenn og grínistar koma þar
fram, happdrættismiðar verða seldir
og léttar veitingar. Hins vegar verður
efnt til unglingaballs í Sigyn fyrir alla
unglinga í Grafarvorgi og munu vin-
sælar poppstjörnur koma þar fram.
Allir listamennirnir gefa vinnu sína
og mun því allur ágóði renna til fjöl-
skyldu Davíðs Arnar. Þess má geta
að Davíð Örn var Grafarvogsbúi og
starfaði lengi með börnum og ung-
lingum í hverfinu.
Þeir sem ekki geta mætt á við-
burðina, en vilja styrkja málefnið er
bent á styrktarreikninginn 0544-05-
402441 kt. 111177-4819.
4
Reykjavík vikublað er á
www.reykjavikblad.is
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim!
Ekta saltfiskur tilbúinn til útvötnunar.
Tímarnir breytast en saltfiskurinn frá
Ekta ski, þessi gamli góði með
íslenskum kartöum og smjöri, stendur
alltaf fyrir sínu.
Sérútvatnaði saltfiskurinn er sérstaklega
hentugur í seiðandi saltfiskrétti.
Fæst um allt land. Hafðu samband!
466 1016
www.ektafiskur.is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega
jólaskeiðin
frá Ernu
Jólaskeiðin 2012
er hönnuð af
Sóleyju Þórisdóttur.
Skeiðin er smíðuð á
Íslandi úr ósviknu silfri.
Verð: 18.500.- stgr.
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
Borg-
arstjóri
eignast
tvífara
Jón Gnarr borgarstjóri er kominn í hóp ýmissa ofurhetja, því búin hefur verið til brúða af honum.
Það var pólski listamaðurinn
Tadeusz Wnek sem það gerði eftir
ljósmynd. Hann er Íslandsvinur og
ferðaðist um landið ásamt vinum
sínum í haust.
Borgarstjórinn ræddi við pólskan
blaðamann um starfið, fjölmenn-
ingu, samráðsveginn Betri Reykja-
vík og fleira, en í lok viðtalsins
afhenti blaðamaðurinn, Marta M.
Niebieszczanska Jóni brúðuna.
Brúðan er í bleikum jakkafötum
líkt og Jón Gnarr klæddist í tilefni
af baráttudegi gegn brjóstakrabba-
meini.
Borgarstjóri varð undrandi á gjöf-
inni en sagði strax að brúðan væri
„Mini Me.“
Miðasala á Iceland
Airwaves 2013 hefst í dag
Þrátt fyrir að tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sé nýlokið, hefst í dag miðasala á hátíðina
2013.
Fyrstu listamennirnir verða kynntir
til sögunnar eftir áramót. Þess má geta
að miðarnir fyrir hátðina í ár seldust
upp fyrr en nokkru sinni áður og
var fjöldi erlendra gesta á hátíðinni í
Reykjavík meiri en verið hefur á fyrri
hátíðum.
Hátíðin 2013 stendur frá 30. október
til 3. nóvember, en hátíðin nýtur sífellt
meiri virðingar um gervallan heim.
Reykjavíkurtjörn er nú ísilögð og borgarbúar geta því rennt sér á skautum í hjarta höfuðborgarinnar.
Flóamarkaður í
Austurbæjarskóla
Nemendur í 7. bekk Austur-bæjarskóla verða með flóa-markað í dag, en þeir stefna
að því að fara norður að Reykjum í
Hrútafirði.
Markaðurinn verður haldinn í 2. og
3. kennsluskúr á neðri lóð skólans og
hefst hann klukkan 12 og stendur til
klukkan 16.
Að sögn markaðsfólksins verður ým-
islegt til sölu á markaðnum, en auk
þess verður starfrækt kaffihús þar sem
heitt kakó verður á boðstólum sem og
heimabakað góðgæti.
Jón Gnarr borgarstjóri og „Mini Me“.