Reykjavík


Reykjavík - 01.12.2012, Blaðsíða 6

Reykjavík - 01.12.2012, Blaðsíða 6
6 1.DESEMBER 2012 Miðborgin er 300 milljarða króna hagkerfi Jakob Frímann Magnússon Miðborgarstjóri segir að unnið sé að því að fá ferðamenn úr skemmtiferðaskipunum í miðborgina og að auð verslunarrými við Laugaveg séu með allra fæsta móti. Hann segir að verði hótel byggt við Austurvöll sé áætlað að velta fyrirtækja í nágrenninu muni minnka um 30% á byggingartímanum og að meira en helmingur fyrirtækja á svæðinu muni fara á hausinn. Miðborgarstjórinn er kom-inn í jólaskap og segir að miðborgin verði fallegri og jólalegri á aðventunni en nokkru sinni fyrr. Miðborgin okkar er samstarfs og samráðsvettvangur hasgmunaaðila miðborgarinnar og Reykjavíkurborgar o.fl. Miðborgin okkar tók við forystu- hlutverki sínu af Miðborg Reykjavíkur en forysta hennar var til skamms tíma pólitísk en í dag eru það hagsmuna- aðilarnir sem veita forystuna og hefur það gefist vel að sögn Jakobs Frímanns Magnússonar framkvæmdastjóra Mið- borgarinnar okkar eða Miðborgarstjóra eins hann er yfirleitt kallaður. „Fimm pólitískir meirihlutar á fimm árum trufluðu ansi mikið taktinn í mið- borgarmálunum og því var þessi leið valin hvað sem verður til frambúðar. Þannig að starfið og samfellan í því er ekki lengur alfarið háð því að pólitíkin sé í lagi, sem hún hefur þó verið sem betur fer, síðustu þrjú árin.“ Miðborgin er risahagkerfi Jakob Frímann telur að miðborg Reykjavíkur sé ekki bara andlit Reykja- víkur, heldur Íslands alls og að auki langfjölsóttasti staður landsins sem og langstærsta hagkerfi eins póstnúmers á Íslandi. „Þó bæði borgarsjóði og ríkissjóði sleppti væri hagkerfi mið- borgarinnar engu að síður upp á liðlega 300 milljarða króna skv. upplýsingum Ríkisskattstjóra sem annast hefur mælingar af ýmsu tagi fyrir okkur á undanförnum árum.“ Því sé ekki hægt að horfa framhjá mikilvægi svæðisins, hagsmunum þess og þörfum. Hann upplýsir að Miðborginni okkar hafi árið 2009 verið skipt upp í sjö deildir til að tryggja að raddir allra heyrist og jafnræði ríki. Hann upplýsir jafnframt að samstarf hagsmunaaðila og borgarinnar gangi almennt prýði- lega. Gamla höfnin og svæðið við Hlemm í forgangi Að sögn Jakobs njóta tvö svæði ákveðins forgangs um þessar mundir. Annars vegar er það svæðið frá Hlemmi að Vitastíg og hins vegar Kvosin, gamla höfnin og Grandagarður. „Sem betur fer hlusta borgaryfirvöld eftir þessum áherslum. Nú grillir í að Hlemmur fái að njóta sannmælis og viðeigandi að- hlynningar og gamla höfnin og Grandi eru í brennidepli núna, sérstaklega í tengslum við jólin.“ Sem kunnugt er hefur gamla hafnar- svæðið snarbreyst frá því sem áður var. Þar er nú margs konar rekstur og mikið líf. Jakob segir það vera eina af mörgum góðum fréttum úr miðborginni. Hafnarsvæðið sem nái frá Hörpu og út á Granda sé gríðarlega spennandi svæði sem njóti mikilla vinsælda, ekki síst á sumrin. „Gullnir þríhyrningar“ í Reykjavík Komum skemmtiferðaskipa til Reykja- víkur fjölgar ár frá ári og koma nú tugþúsundir erlendra ferðamanna til borgarinnar með þeim hætti, en færri þeirra leggja þó leið sína í miðborgina en Jakob teldi æskilegt. „Túrisminn sem við vildum svo gjarnan sjá koma beint úr skemmtiferðaskipunum er því miður enn í þeim álögum að af 40 rútum sem bíða á Skarfabakka þar ákveðið hefur verið að „landa“ þessu fólki , fara 39 rútur alla jafna eitthvað út á land og ein hingað niður í bæ. Við erum mark- visst að reyna að jafna þennan leik og það gerist helst með því að bjóða upp á glæsilegar upplifunarfléttur og borg- arferðir sem markaðssetja þarf og selja um borð í skemmtiferðaskipunum. Það ferli er nú hafið af fullri alvöru.“ Jakob segir auðvitað mikla upplifun að sjá Geysi, Þingvelli og Gullfoss, en Reykjavíkurborg eigi líka sína „gullnu þríhyrninga“ og telur upp fjölda val- kosta s.s. útsýnisstaðinn í Perlunni með sígjósandi hver í hlaðinu,alla fjölbreytni safna, sundlauga, veitingahúsa og ekki síst frábærra verslana í miðborginni. „Miðborgin býður upp á eftirminnilega upplifun í svo ótal myndum“. Auð verslunarrými við Laugaveg með allra fæsta móti Laugavegurinn er aðalverslunargata landsins og þar eru verslanir sem hafa verið reknar í áratugi og jafnvel í allt að öld, en jafnframt umtalsverð endur- nýjun þó sumir rekstraraðilar eigi það til að staldra stutt við. Miðborgarstjór- inn segir málið einfalt. Vilji menn vera með verslunarrekstur í Reykjavík á stað þar sem er straumur fólks, standi þeir andspænis því að fara inn í verslunar- miðstöð með miklum föstum kostn- aði sem sé oft og tíðum erfitt eða lítt fýsilegt fyrir ungt fólk sem er að hefja rekstur. Margir kjósi því miðborgina sem ekki gerir sömu kröfur um framlög til markaðssetningar, þrifa, öryggis o.fl. En því miður lifir ekki allur rekstur af. „Auð verslunarrými við t.a.m. Laugaveg eru þó með allra fæsta móti um þessar mundir,“ segir Jakob Frímann og bætir við: „Það sem kannski gerir miðborgina sérstaka er að þar er mikið um einyrkja sem standa vaktina sjálfir, hanna jafnvel vöruna sjálfir og geta veitt ráðgjöf og persónulega þjónustu sem erfiðara er að finna í verslunarmiðstöðvunum. Þá hugnast mörgum nándin, notalegheitin og huggulegheitin sem fylgja mörgum af þessum gömlu byggingum sem hafa fengið að ganga í endurnýjun lífdaga eða standa óbreyttar um áratuga- eða aldaskeið.“ Miðborgarstjórinn segir marga hafa áhyggjur af því að svokölluð „high street“ verslun fari víða halloka fyrir verslunarmiðstöðvum, til dæmis í Bretlandi. Í verslunarmiðstöðvunum sé boðið upp á ókeypis bílastæði, þak yfir höfuðið og fleira, auk þess sem netvæð- ing í verslun fari vaxandi. Að hans mati skiptir þó staðsetning rekstrareiningar ekki höfuðmáli heldur frekar hvaða vöru og þjónustu sé boðið upp á og hvernig. Hugkvæmnin og sköpunargleðin séu sterkustu vopn miðborgarkaupmanna. Gengið til góðs með göngugötum? Aðspurður um tilraunir með göngugötur undanfarin sumur segir Jakob að þar beri að mörgu að hyggja. Skv. könnun Capacent virðast margir vegfarendur og miðborgargestir hafa kunnað vel að meta þá nýjung. Það megi þó ekki skella skolla- eyrum við viðvörunum kaupmanna með áratugareynslu sem allmargir hafi lýst efasemdum um göngugötu- væðinguna, sem yngri rekstraraðilar, einkum veitingamenn virðist kunna betur að meta. Hann segir að innan samtaka Miðborgarinnar séu mjög skiptar skoðanir á því hvort breyta eigi götum í göngugötur og þar sé reynt að sætta ólík sjónarmið sem og að hvetja borgaryfirvöld til að fara gætilega í allar slíkar breytingar. „Þetta er dæmi um mál sem erfitt er að leysa svo öllum líki.“ Framkvæmdir vegna hótels við Austurvöll munu draga úr veltu sumra fyrirtækja og setja önnur á hausinn Eitt umdeildasta mál miðborgarinnar nú um stundir, fyrir utan takmörkun bílaumferðar, er fyrirhuguð hótel- bygging við Ingólfstorg og Austurvöll og hefur hópur andstæðinga fyrirhug- aðrar byggingar verið áberandi og talið það mikið skaðræði að heimila þetta. Miðborgarstjórinn segir að þarna tak- ist á eignarréttur eiganda og svo vilji þeirra sem fyrir eru á svæðinu og telja fyrirhugaðar framkvæmdir svæðinu lítt til framdráttar. Byggingarfram- kvæmdir myndu standa í eitt til tvö ár og áætluð velta fyrirtækja í nágrenninu minnka um 30% á meðan. Liðlega helmingur þeirra sem nú eru starfandi á svæðinu mundu við slíkar aðstæður neyðast til að bregða búi. Rekstraraðil- arnir spyrja sig margir: „Til hvers að reisa einhverjar steinhallir inni á miðju Ingólfstorgi, til hvers? Hver bað um það?“, spyr Jakob. „Þetta er a.m.k. mjög gegn vilja margra þeirra sem hér stunda rekstur um þesar mundir. Þetta er jú eitt við- kvæmasta svæði borgarinnar. Við Að- alstræti eru nú þegar þrjú hótel sem þegar valda umtalsverðum umferð- artruflunum. Að bæta við 300- 500 hótelherbergjum án þess að skýrar samgöngulausnir séu í sjónmáli veldur ýmsum áhyggjum. Það er ennþá talað um þetta af fullri alvöru, en andstaðan er það sterk og öflug að hún gæti hæg- lega skipt sköpum.“ Góður borgarbragur að helgarnóttum undanskildum Aðspurður telur Jakob Frímann Magn- ússon miðborgarbraginn almennt góðan fyrir utan mesta galskapinn síðla um nætur á helgunum þegar hnefa- rétturinn tekur gildi og hlutirnir eiga til að fara úr böndunum. Velta á veitinga- stöðum hafi vissulega snaraukist, um allt 40% á milli ára. Eitthvað af því megi skrifa á fjölgun ferðamanna. „Mér hefur lengi fundist Reykja- víkurborg og miðborgin með allra skemmtilegustu borgum og hún hefur að mínu viti aldrei verið eins aðlaðandi og hún er akkúrat núna. Í batnandi borg er vissulega best að vera.“ Miðborgin fallegri og jóla- legri en nokkru sinni fyrr Aðventan gekk í garð í dag og segir Miðborgarstjórinn að miðborg Reykja- víkur muni skarta sínu fegursta. „Hún verður betur og meira skreytt en nokkru sinni. Miðborginni okkar var falið á sl. ári að leggja línurnar í skreytingum og völdum við tvær af okkar smekkvísustu dætrum til þeirrar leiðsagnar, þær Báru Hólmgeirsdóttur í Aftur og Matthildi Leifsdóttur í 38 þrepum. Þær stallsystur leystu verk- efnið af stakri prýði“ Að sögn Jakobs var ákveðið að smíða gamaldags jólabjöllur yfir margar af götum miðborgarinnar og nýta þar með íslenskt handverk, í stað þess að kaupa alfarið skreytingar frá Kína. Ljósaþemað byggir einkum á hvítum ljósum og gulum. Einnig segir hann lifandi tónlist og margs konar jólaviðburði verða áberandi víða um miðborgina. „Aðventan er mörkuð einkum þremur viðburðasviðum; á Ingólfstorgi þar sem jólabærinn verður, á Skólatorgi á mörkum Laugavegar og Skólavörðustígs og svo Laugatorgi framan við Kjörgarð. Síðan verða á vappi kórar og lúðrasveitir og ýmislegt annað alveg til jóla. Við leggjum áherslu á að jólabærinn sem verður opnaður föstudaginn 14. desem- ber hafi breidd í hátíðatengdu lostæti, matvöru, gjafavöru og jólatengdri vöru og við teljum að hann verði fallegri og fýsilegri en oftast áður.“ Þá segir hann hefðbundna jólasveina verða áberandi, en einnig þjóðlegu rammíslensku jóla- sveinana sem tilheyra hugmyndinni um jólavættirnar sem listateiknarinn Gunnar Karlsson hafi dregið upp í svo skýrum og skemmtilegum myndum. Ein þeirra er splunkuný af nálinni og verður kynnt í næstu viku og segir Jakob að hún eigi eftir að koma skemmtilega á óvart. Hann fullyrðir að aðventan í miðborginni verði fallegri og jólalegri en nokkru sinni fyrr. „Á undanförnum árum vantaði stundum dálítið upp á alvöru samstöðu um myndarlegt jólahald í miðborginn en nú er öldin aldeilis önnur og í fyrra fór af stað alvöru samstarf allra lykilsviða borgarinnar í þessum efnum og má segja að það hafi verið CNN að þakka, en þeir gáfu okkur ómeðvitað spark í rassinn þegar þeir völdu okkur eftirsóknarverð- ustu jólaborg heims árið 2010.“ Jakob Frímann segir menn nokkuð hafa undrast valið því ekki hafi verið margt í boði, en í framhaldinu hafi allir lagst á eitt og lagt mikla vinnu í að standa undir nafni sem nú skili sér í þeim afrakstri sem við blasi. Og hann bætir við að verslunarmiðstöðvarnar geti ekki keppt við miðborgina hvað þetta varðar. „Þær keppa ekki við okkur í kósý- heitunum.Það er órjúfanlegur hluti af upplifun jólanna að dúða sig upp, fara í bæinn, fá helst smá snjó og hitta jóla- sveinana, heyra lifandi músik og finna ilminn af hnetum og jólaglöggi og njóta alls þess séríslenska sem tengist jólunum. Það er í rauninni miklu blæ- brigðaríkari hátíðarbragur en ég hef kynnst í öðrum þeim löndum sem ég hef búið, Bretlandi, Danmörku og Bandaríkjunum,“ segir Jakob Frímann Magnússon Miðborgarstjóri og ljómar, enda augljóslega kominn í jólaskap. Jakob Frímann Magnússon Miðborgarstjóri er kominn í jólaskap og segir að miðborgin verði jólalegri en nokkru sinni.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.