Reykjavík - 01.12.2012, Blaðsíða 12
1.DESEMBER 201212
· Nautakjöt í ostrusósu
· Núðlur með grænmeti
· Kjúklingur í karrýsósu
· Djúpsteiktar rækjur
með súrsætri sósu
25 ÁR
Heimsent:
1.590 kr. + 900 kr. heimsendingargjald
MATUR
Andrea Guðmundsdóttir mat
gæðingur í Listaháskóla Íslands
býður lesendum Reykjavíkur
upp á forvitnilegar uppskriftir
frá öllum heimshornum.
Myndir: Ylfa Eysteinsdóttitr
ÍSLAND
JÓLAVÖFFLUR OG HEITT
LÚXUSSÚKKULAÐI
Vöfflur eru klassískar og skemmti-
legar og hversdags eru þær eins og
allir vita yfirleitt bornar fram með
sultu og rjóma eða bara sykri. En
það má líka punta þær aðeins upp
og gera hátíðlegar. Ég er hérna með
uppskrift af vöffludeigi frá Jessicu
frænku minni sem er snillingur í öllu
sem viðkemur mat og matargerð
og þá sérstaklega þegar kemur að
kökum og sætmeti. En puntið á
vöffluna er bara spuni og hægt að
nota hvað sem hugurinn girnist. En
þessi samsetning passar einstak-
lega vel saman og mér finnst hún
svolítið jólaleg!
Brakandi jólavöfflur
Fyrir tíu
3 bollar hveiti
8 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
4 tsk. sykur
4 egg (aðskilin)
eggjahvíturnar stífþeyttar
1 bolli bráðið smjör
3 1/2 bolli mjólk
1 vanillustöng
Þurrefnin eru sett í skál ásamt
vanillu (vanillustöngin er skorin eftir
endilöngu og skafið innan úr), síðan
smjör, eggjarauður og mjólk. Hrært
saman og í lokin er stífþeyttum
eggjahvítum blandað saman við
með sleif.
Lúxus jólasúkkulaði
1 msk. smjör
1 tsk. salt
2 msk. sykur
1 bolli vatn
1/2 bolli rjómi
1 vanillustöng
1 1/2 l nýmjólk
300 gr. suðusúkkulaði
150-200 gr. hvítt súkkulaði
Smörið er sett í pott ásamt salti og
sykri, síðan er vatni bætt út í, rjóma
og mjólk. Þá kemur súkkulaðið fína
og innihaldið úr vanillustönginni,
leyfið stönginni samt að liggja í
pottinum. Súkkulaðið er látið hitna
vel en ekki sjóða. Mér finnst mjög
fallegt að mylja piparmyntubrjóst-
sykur yfir rjómann.
Vöfflupunt
Valhnetur, saxaðar gróft
ristaðar möndlur í kanildufti
þurrkuð trönuber
hlynsíróp
og að sjálfsögðu rjómi.
Góða skemmtun!