Akureyri - 13.02.2014, Page 4
4 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
Björgun á
Öxnadalsheiði
Vala Hauksdóttir sem lenti í því
að bíll hennar bilaði á Öxnadals-
heiðinni sl. laugardag segist þakklát
vegfarendum sem björguðu henni og
annarri konu ásamt tveimur börnum
eftir að bíll þeirra bilaði.
„Þeir fá svo sannarlega lof herra-
mennirnir sem komu tveimur ungum
konum og börnum þeirra til bjargar,“
segir Vala.
Vala ferðaðist á Golf fólksbíl og
urðu fyrst vandræði þegar bíllinn
lenti í vandræðum upp brekku. Þær
fengu aðstoð til að snúa við en þegar
átti að aka niður af heiðinni bilaði
kúpling. Vala segir að þær ungu kon-
urnar tvær hafi verið ráðalausar úti í
kanti, óreyndar í svona málum. Þær
hafi horft á bílana bruna framhjá
þegar menn á tveimur bílum komu
þeim til bjargar. Fyrst skoðuðu þeir
bílinn en fundu út að bíllinn væri
ekki ökuhæfur. Síðan buðu þeir
ferðalöngunum öllum far.
„Við vorum með tvö börn, annan
18 mánaða gamlan og hinn átta ára
og farangur eftir því. Við sáum fram á
að þurfa skilja allan farangurinn eft-
ir en þessir indælu menn tóku ekki
annað í mál en að taka okkur með til
Akureyrar og allan farangurinn með,
allt frá barnakerru til tannbursta.“
Vala segist ekki vita hvernig þetta
hefði annars endað en leynir því
ekki að hópurinn hafi verið orðinn
áhyggjufullur.
„Þessi aðstoð var einfaldlega
ómetanleg. Ástarþakkir til ykkar!
Þeir voru líka svo kurteisir og hjálp-
samir út í eitt.“ a
Gunnar ótvíræður
sigurvegari í prófkjöri
Njáll Torfi Friðbertsson varabæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn
Akureyrar, segir að 3ja sætið í próf-
kjöri sjálfstæðismanna á Akureyri
sé vonbrigði. Hann þakki þó mikinn
stuðning. Þegar blaðið fór í prentun
lá ekki fyrir hvort Njáll Trausti myndi
þyggja þriðja sætið en hann stefndi á
fyrsta sætið í prófkjörinu.
Gunnar Gíslason fræðslustjóri
hafði sigur í prófkjörinu og er nýr
leiðtogi sjálfstæðismanna. 21 at-
kvæði munaði á Njáli og Evu Hrund
Einarsdóttur í 1.-2. sætið. Atkvæða-
fjöldi Gunnars Gíslasonar í 1. sætið
og Evu Hrundar Einarsdóttur í 2.
sætið varð næstum nákvæmlega sá
sami þegar upp var staðið. Þrálátur
orðrómur gekk fyrir prófkjörið um
bandalög og „óskir að ofan“. Ekki
er vitað hvort innistaða sé fyrir
„samsæriskenningum“ en bandalög
í prófkjörum eru ekki ný af nálinni.
Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfull-
trúi L-listans, sagði í færslu á face-
book að Njáll Torfi hafi aðeins náð að
trufla áform „flokkseigendafélagsins“.
Gunnar Gíslason segist þakklátur
fyrir stuðninginn. Hann lagði allt
undir og gaf aðeins kost á sér í efsta
sætið. Gunnar segir að flokkurinn
stefni á 3-4 bæjarfulltrúa á Akureyri
en flokkurinn galt sögulegt afhroð
árið 2010 þegar sjálfstæðismenn
fengu aðeins einn fulltrúa.
Bergþóra Þórhallsdóttir hafnaði
í fjórða sæti, Baldvin Valdemarsson
í fimmta sæti og Sigurjón Jóhannes-
son í sjötta sæti. a
FJÁRÖFLUN TIL STYRKTAR
GEORGES HOLLANDERS
Kvæðamannafélagið Gefjun efnir til veislu í söng og kveðandi í Laugarborg
föstudaginn 14. febrúar kl. 20:30. Yfirskriftin er Kveðum krabbann í kútinn!
Tilefnið er stuðningur við nokkra Gefjunarfélaga sem glíma við krabbamein og
að minnast eins félaga sem nýlega féll fyrir þeim vágesti, segir í tilkynningu.
Í Laugarborg koma fram fjölmargir og góðir söngkraftar: Kór Hrafnagils-
skóla, Karlakór Eyjafjarðar, George Hollanders, Þór Sigurðarson, tenórarnir
Birgir Björnsson og Gísli Rúnar Víðisson syngja við undirleik Valmars Välja-
ots, Kristjana Arngrímsdóttir, Helgi og hljóðfæraleikararnir auk nokkurra
mögnuðustu kvæðamanna Gefjunar og munu Handraðakonur sjá um heim-
ilislegan undirleik. Allur ágóði samkomunnar rennur til Georges Hollanders
sem leitar sér óhefðbundinna lækninga utan lands.
Svæðisskipulag
Eyjafjarðar frágengið
Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar
hefur á undanförnum árum unnið að
gerð nýs svæðisskipulags. Nefndin
hóf í byrjun ársins 2013 kynningu
á tillögu að Svæðisskipulagi Eyja-
fjarðar 2012 – 2024 í samræmi við
verklagsreglur í skipulagslögum nr.
123/2010. Kynningarferlinu lauk í lok
árs með því að öll aðildarsveitarfélög
skipulagsins sem eru Grýtubakka-
hreppur, Svalbarðsstrandar-hrepp-
ur, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarbær,
Hörgársveit, Dalvíkurbyggð og
Fjallabyggð samþykktu tillöguna.
Hún var síðan staðfest af Skipulags-
stofnun 21. jan. 2014 og birtist aug-
lýsing um staðfest skipulag í B-deild
Stjórnartíðinda hinn 4. feb. s. l.
Í Svæðisskipulagi Eyjafjarðar
2012 – 2014 birtist almenn stefna að-
ildarsveitarfélaganna um byggðaþró-
un, landbúnaðarland, iðnaðarsvæði,
meðhöndlun úrgangs, vatnsverndar-
mál, verndun strandsvæða Eyjafjarð-
ar, samgöngumál og flutningsleiðir
raforku.
Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012
– 2024 ásamt fylgigögnum á að vera
aðgengilegt á vefsíðu allra aðildar-
sveitarfélaganna. a
GUNNAR GÍSLASON EVA HRUND NJÁLL TRAUSTI BERGÞÓRA ÞÓRHALLSDÓTTIR