Akureyri


Akureyri - 13.02.2014, Síða 16

Akureyri - 13.02.2014, Síða 16
16 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014 AÐSEND GREIN SVANFRÍÐUR LARSEN ZONTA segir NEI Frá Peking til Akureyrar Á næsta ári eru liðin 20 ár frá kvennaþingi Sameinuðu þjóðanna í Peking. Þar samþykktu 189 ríki - og fjöldi frjálsra félagasamtaka - yfirlýsingu og aðgerðaáætlun í mál- efnum kvenna. Einn kafli áætlun- arinnar er um ofbeldi á konum og útrýmingu þess. Þar er skilgreining á kynbundnu ofbeldi, líkamlegu og andlegu, og langur listi yfir tegundir ofbeldis. Eins kemur fram að skortur á upplýsingum valdi erfið- leikum þegar grípa eigi til aðgerða. Ástæða ofbeldis er einkum talin valdamisrétti kynjanna sem leitt hafi til yfirráða karla og komið í veg fyrir framsókn kvenna. Á þinginu í Peking var fríður flokkur kvenna úr hinni al- þjóðlegu Zontahreyfingu (Z.I.) sem hafði í nokkra áratugi barist fyrir bættri stöðu kvenna og unnið náið með Sameinuðu þjóðunum. Zonta- konur tóku reyndar forskot á sæluna og héldu alþjóðlegan fund (ZISVAW) um ofbeldi á konum í júní 1995. Þær fóru því vel undirbúnar til Kína og komu margefldar til baka. Ári síðar hafði Z.I. stofnað sérstakan sjóð og gert áætlun til að berjast gegn of- beldi á konum og stúlkum. Síðan þá hefur Zonta unnið að verkefnum um heim allan til að skapa konum ör- uggara umhverfi svo þær megi njóta almennra mannréttinda, lausar við ofbeldi. En hver er staðan nú eftir ára- tugabaráttu ríkja heims og frjálsra félagasamtaka í samræmi við Pek- ingsáttmálann? Rannsóknir hafa ver- ið efldar, upplýsingum safnað og víða um lönd er nú aðstoð við þolend- ur. Miklum fjármunum hefur verið varið í margháttuð verkefni til að stemma stigu við ofbeldi. Nýjar tölur frá WHO og UN Women eru þó ekki uppörvandi. 35% kvenna um allan heim hafa orðið fyrir líkamlegu og/ eða kynferðislegu ofbeldi af hendi sambýlismanns eða annarra. 98% af þeim 4.5 milljónum einstaklinga sem ætlað er að neyddir séu í vændi eru konur og stúlkur - og meira en 64 milljónir stúlkna eru brúðir á barnsaldri. Zontahreyfingin blés til sérstaks átaks í nóvember 2012 undir slag- orðinu ZONTA segir NEI. Þar var klúbbum um allan heim ætlað að höfða til al- mennings heima fyrir og vekja athygli á og umræð- ur um þessa skelfilegu stöðu. Zontaklúbbarnir tveir á Ak- ureyri skrifuðu vorið 2013 í Akureyri vikublað um málefni kvenna og boðuðu til funda undir þessu slag- orði, í samvinnu við Jafnréttisstofu og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi. Á Íslandi er erfitt að nálgast op- inberar tölur um ofbeldi, en reikna má með að a.m.k. fjórða hver íslensk kona verði fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Tölur frá samtökum, sem sinna þolendum, sýna stöðuga sókn í viðtöl og hjálp. Við fáum reglulega fréttir af kynferðisofbeldi á stúlku- börnum. Mál koma fram í dagsljósið, sum tengd stofnunum sem trúað hef- ur verið fyrir gæslu og uppfræðslu barna. Kynlífsuppeldi fer fram á al- netinu, vændi og mansal er staðreynd. Sorglegastar eru fréttir af ofbeldi sem bitnar á þeim varnarlausustu, s.s. líkamlega og/eða andlega fötluðum konum og stúlkubörnum. Viljum við lifa í slíku samfélagi? Zontahreyfingin segir nei. Zonta- klúbbarnir á Akureyri taka undir og hvetja samborgara sína til að vera með. Fyrstu skrefin felast í fræðslu og meðvitund okkar allra um vand- ann. Í Peking voru gefin loforð sem enn er ekki búið að efna. Höfundur er félagi í Zonta- klúbbnum Þórunni hyrnu. SVANFRÍÐUR LARSEN AÐSEND GREIN SELMA HÖRN VATNSDAL Vaðlaheiðargöng – kostir fleiri en gallar Ég veit ekki hversu oft ég hef keyrt yfir Víkurskarðið í brjáluðu veðri og verið mjög hrædd. Á veturna er þessi vegur alveg stórhættulegur. Afi minn býr í Þingeyjarsveit og því þurfum við að keyra yfir Víkurskarðið til að komast í sveitina. Þegar Vaðlaheiðar- göng verða tilbúin þurfum við ekki að hafa eins miklar áhyggjur af því að það verði ófært. Að keyra í sveitina er 40 mínútna akstur og göngin koma til með að stytta ferðina um 15 til 20 mínútur. Þegar göngin verða tilbúin stækkar atvinnusvæðið og verður vegalengdin og tím- inn sem tekur að keyra styttri. Fólk getur þá sótt í vinnu frá Akureyri yfir í Þingeyjarsveit og öfugt. Vet- urinn 2012-2013 var Víkurskarðið lokað mjög oft vegna ófærðar. Ég hef ekki tölu á því hversu marga daga var lokað en það var allt of oft. Afi minn er í hrossarækt og þarf hann þess vegna oft að flytja hesta fram og til baka. Hann þarf oft að keyra yfir Víkurskarðið til að fara með hestana. En hvernig haldið þið að það sé að keyra á stórum bíl með 6 hesta kerru aftan í bílnum í brjáluðu veðri? Það er hrikalega erfitt og það sama gildir um flutn- ingabíla. Sjúkraflutningar verða líka léttari með göngunum, þ.e.a.s. með tilkomu ganganna verður mik- ið meira öryggi allan ársins hring. Sjúkrabílarnir lenda þá ekki í því að sitja fastir svo klukkutímum skipt- ir uppi á Víkurskarði. Í fyrravetur þurfti að flytja ólétta konu frá Húsavík á fæðingardeildina á Akur- eyri, það voru tveir bílar fastir uppi á Víkurskarði og það var þess vegna ekki hægt að ryðja veginn sökum slæms veðurs. Þá þurfti að fara aðra leið, um Dalsmynni og þurfti snjó- ruðningstæki á undan sjúkrabíln- um. Barnið gat hins vegar ekki beðið og fæddist í sjúkrabílnum í Dalsmynni. Ef göngin hefðu verið til staðar hefði konan mögulega komist til Akureyrar á sjúkrahús- ið í tæka tíð og átt barnið sitt þar. Sem betur fer gekk fæðingin vel og engin vandræði (fyrir utan að vera í sjúkrabíl í brjáluðu veðri) þannig að í þetta skipti bjargaðist þetta. Við getum ekki alltaf búist við því að hlutirnir fari svona vel. Göngin stytta ferðina á sjúkrahúsið og minnka líkurnar á því að mað- ur komist ekki á sjúkrahús vegna ófærðar. Ég veit að það er mikill kostnaður við að byggja göngin en kostirnir eru fleiri sem mér finnst vega upp á móti göllunum. Víkurskarðið verður ekki lengur hindrun hvort sem það er fyrir fólk sem er að ferðast, flutningabíla eða sjúkrabílana á leið á sjúkrahúsið. Vegalengdin styttist, atvinnusvæðið mun opnast og öryggið verður meira í umferðinni allan ársins hring. Er það ekki það sem við viljum? Höfundur er nemandi í 10. bekk í Giljaskóla. SELMA HÖRN VATNSDAL AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.