Akureyri - 13.02.2014, Blaðsíða 21
13. febrúar 2014 6. tölublað 4. árgangur 21
Samkynhneigð er
ennþá feluleikur
„Já, af því sem ég hef fræðst um hjá
samkynhneigðum í tengslum við
undirbúning þessarar leiksýningar
get ég ályktað að það sé betra fyrir
samkynhneigða að búa á stað eins
og Akureyri í dag en fyrir 20 árum.
En þetta er ennþá feluleikur. Þeir eru
víða fordómarnir,“ segir Saga Geirdal
Jónsdóttir.
Saga snýr aftur á fjalir Leikfélags
Akureyrar annað kvöld þegar leik-
ritið Lísa og Lísa verður frumsýnt í
Rýminu. Leikritið er staðfært og ger-
ist á Akureyri. Það er hvort tveggja
kómík og drama. „En þessi sýn ing
er frekar á léttari nótunum þótt það
fjalli líka um alvarlega hluti.“
Saga stendur á sviðinu allan tí-
mann ásamt annarri akureyrskri
leikkonu, Sunnu Borg. Þessar stjörn-
ur voru Akureyringum áður fyrr
fastir kraftar á fjölum Samkomu-
hússins en langt er síðan þær léku
síðast saman. Í leikritinu hafa
persónur Sögu og Sunnu búið saman
í þrjátíu ár – hálfvegis í felum. En
fyrir atbeina ungs leikskálds taka
Lísurnar tvær ákvörðun um að koma
út úr skápnum og segja sögu sína á
leiksviði.
Níu ár liðin
Níu ár eru liðin síðan Saga fór síð-
ast með hlutverk hjá LA. Hún var
í hópi þeirra sem þurftu að víkja
þegar Magnús Geir Þórðarson, nýr
útvarpsstjóri, flutti norður og gerðist
leikhússtjóri. „Það var það besta sem
fyrir mig gat komið að missa vinnuna
því ég hef gert svo marga skemmti-
lega og áhugaverða hluti síðan. En ég
skal samt alveg viðurkenna að það er
óheyrilega gaman að leika aftur. Ég
veit eiginlega ekkert skemmtilegra,“
segir Saga og hlær.
Saga hefur sett upp urmul sýn-
inga, bæði innanlands og utan síðan
hún hætti störfum hjá LA árið 2004.
Hún hefur einnig kennt leiklist, hefur
starfað sem leiðsögumaður á Spáni,
bjó eitt ár í Danmörku og var um
tíma fréttaþulur hjá N4. Um sam-
starfið við Sunnu segir Saga að það
hafi gengið mjög vel. Blaðamanni
verður á að kalla Sögu Sunnu og
segir hún það henda iðulega að fólk
ruglist á þeim tveimur. Það hljóti
að enda með því að þær tvær renni
saman í eitt.
Krossar fingur
Saga var í hópi fyrstu fastráðnu leik-
ara LA árið 1972. Hún hefur síðan
komið að flestum störfum innan leik-
húsa. Meðal annars starfaði hún í sjö
ár sem markaðs- og sölustjóri hjá
Borgarleihúsinu og þegar blaðamað-
ur spyr hvernig markaðsnefið segi
Sögu að Lísu og Lísu muni farnast,
svarar hún:
„Ég held þetta verði vinsæl sýn-
ing. Hún er bara þannig, bæði segir
margt, skemmtileg og falleg held ég.
Snertir hjartans rætur ef vel geng-
ur. En auðvitað krossar maður bara
fingur, það er svo langur tími liðinn
síðan ég lék síðast að þetta verður
svolítið sérstakt.“
Lítið skrifað um miðaldra konur
Við ræðum að lokum hve erfitt er
fyrir konur á miðjum aldri að fá
leikhlutverk. Saga segir að megnið
af leikverkum samtímans horfi ekki
til miðaldra kvenna. Ungar konur
séu stundum með misgóðum árangri
látnar leika upp fyrir sig í aldri þá
sjaldan að hlutverk reki á fjörurn-
ar. Stundum gangi það ágætlega
en stundum skorti ungu konurnar
þyngd eða lífsreynslu til að túlka þær
sem sem eldri eru. Saga segist alveg
til í að halda áfram leikferlinum,
en leikari geti aldrei stjórnað hvort
hann sé notaður í sýningar eða ekki.
„Það er svo margt sem spilar inn í,
ekki síst takmarkað fjármagn leik-
húss einsog hérna á Akureyri. Það
ræður nokkru um það hvað hægt er
að gera og hvað ekki.“
Amy Conroy hlaut verðlaun
Dublin Fringe-hátíðarinnar 2010
fyrir leikritið um Lísurnar tvær. Hún
lék sjálf í eigin verki og var tilnefnd
til írsku leiklistarverðlaunanna 2012,
bæði sem höfundur og leikkona. Lísa
og Lísa verður frumsýnt klukkan 20
annað kvöld. a
SAGA JÓNSDÓTTIR OG Sunna Borg snúa aftur á fjalirnar á morgun í nýju leikverki.
VEIT EKKERT SKEMMTILEGRA en að
leika, segir Saga.
Svona heildræn verkefni eru alltaf
skemmtileg en jafnframt krefjandi
fyrir grafíska hönnuði, því góður
hönnuður vill kynnast fyrirtækinu,
eiga við það gott samtal til þess að
skilja gildi þess og persónuleika
í stað þess að eltast eingöngu við
nýjasta trendið í hönnun. Sagan sem
heildarútlitið segir okkur þarf að
vera sönn og þarf að endast.“
Teiknuðu Vísindabók Villa
Vísindabók Villa er með stærri ver-
kefnum sem Dagný hefur starfað að
undanfarið. Vinna við þá vinsælu
bók hófst í mars í fyrra og stóð
fram í júní með hléum. Þá fór bók-
in í prentun og seldust bílfarmar af
henni fyrir jólin.
Verkefnið var skemmtilegt og
krefjandi að sögn Dagnýjar. Góðar
líkur eru á að önnur Villabók komi
út í haust. Kunningsskapur er milli
hennar og Vilhelms Antons Jónsson-
ar, Villa. Þau vorum bekkjarfélagar
í Menntaskólanum á Akureyri og
segir Dagný skemmtilegt að Villi
hafi leitað norður þar sem hann búi
í Reykjavík og hafi verið umkringdur
grafískum hönnuðum og auglýsinga-
stofum þar syðra.
„Við unnum þetta þannig að við
funduðum í upphafi um stefnu varð-
andi útlitið með Villa, fengum síð-
an texta frá honum í tölvupósti og
lögðumst yfir hverja opnu fyrir sig.
Skoðuðum teiknistílinn, rammann,
útfærsluna, litasamsetningu og
leturgerðir. Ég teiknaði allar tilraun-
irnar og eitt af því sem við lögðum
upp með var að bókin myndi höfða
til beggja kynja en ekki síður til for-
eldra og þeirra sem skoða bækurnar
með börnunum. Ég held að það hafi
tekist ágætlega.“
Betri Akureyri
Dagný á sér draum um virkara íbúa-
lýðræði á Akureyri. Hún hannaði
útlit og viðmót á fyrstu útgáfu vef-
síðunnar betrireykjavik.is og Betri
hverfi fyrir Íbúa ses í samstarfi við
Reykjavíkurborg. og telur tímabært
að koma af stað svipuðu verkefni hér
norðan heiða.
„Mér finnst alltaf jafn gaman að
segja frá því að Betri Reykjavík hafi
verið hönnuð á Akureyri!“
Betri Reykjavík gengur út á að
borgarbúar setja fram hugmyndir
um hvernig megi bæta umhverfið.
Það getur snúið að stjórnsýslu eða
menntun svo tvö dæmi séu nefnd.
Ákveðið innbyggt kerfi ýtir bestu
hugmyndum upp en hinar lakari
falla sjálfkrafa niður. Reykjavíkur-
borg hefur síðan þá skuldbundið
sig til að koma bestu hugmyndun-
um í hverju hverfi í framkvæmd í
gegnum íbúakosningu. Íbúar ses
sem komu betrireykjavik.is af stað
fengu virt evrópsk lýðræðisverðlaun,
„eDemocracy Awards“ árið 2011 og
hafa í kjölfarið farið með verkefnið
víða um Evrópu.
„Hefðum við ekki gott af því að
hafa rafrænan vettvang fyrir hug-
myndir um hvernig mætti bæta
Akureyri? Það eru vissulega við-
talstímar hjá bæjarfulltrúum hérna
en vantar ekki vettvang þar sem
litlar hugmyndir gætu orðið stór-
ar? Það eru að koma kosningar. Hve
virk viljum við að bæjarbúar séu í
málum síns umhverfis?“ Spyr Dag-
ný Reykjalín og heldur áfram vinnu
sinni. Nóg að gera.
TEXTI Björn Þorláksson
MYNDIR Völundur Jónsson