Akureyri


Akureyri - 07.03.2014, Blaðsíða 2

Akureyri - 07.03.2014, Blaðsíða 2
2 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 Gr eið slu mi ðlu n Vissir þú að . . . Með ferlum Alskila í greiðslumiðlun tryggjum við viðskiptavænt viðmót fyrir þína greiðendur! Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is K annaðu Málið!www.alskil.is Leikhússtjóri segist þurfa aukið fjármagn Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA, er óviss hvort hún hyggist sækjast eftir nýjum ráðningarsamningi nema til komi auknar fjárveitingar. „Við erum komin að fjárhagslegum þolmörkum og verður ekki við unað lengur,“ segir Ragnheiður Skúladótt- ir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Þrátt fyrir velgengni Leikfélags Akureyrar undanfarið segir leik- hússtjóri að efnalegur skugga liggi að óbreyttu yfir stöðu atvinnuleik- húss á Akureyri. Leikfélagið fékk opinber fjárframlög sem námu 100 milljónum árið 2007 þegar best lét. Nú er þessi fjárhæð komin niður í 95 milljónir. Þar dragast af 10 milljónir vegna afborgana á lánum. Ef miðað er við annars vegar 85 virkar millj- ónir til starfsins nú og 100 milljóna framlag árið 2007 er framreiknað vísitölutengt, lætur nærri að LA fái nú aðeins aðra hverja krónu af því fé sem var í boði fyrir sjö árum. Spurð hvort Ragnheiður muni sækjast eftir framlengingu á ráðn- ingarsamningi þegar hann rennur út um næstu áramót, svarar hún: „Ég hef haft mjög gaman af þessu en að- stæður eru þannig að maður er hugsi yfir stöðunni.“ Sjá viðtal og umfjöllun bls. 12 Stofa til heiðurs fyrrum formanni framsóknar við HA „Þau ánægjulegu tíðindi áttu sér stað að Ágúst Þór Árnason, deildarfor- maður lagadeildar Háskólans á Akureyri, tilkynnti formlega á mál- þinginu að sett hafi verið á fót Ólafs- stofa við Háskólann í tilefni af aldar afmælinu.“ Svo segir í frétt á vef Framsóknar- flokksins sem fjallar að mestu um málþing sem fram fór á vegum Fram- sóknarflokksins um líf og störf Ólafs Jóhannessonar fyrrverandi formann flokksins og forsætisráðherra, í til- efni af aldarafælisdegi hans. Segir í fréttinni að margt góðra gesta hafi ávarpað málþingið, bæði samferðamenn Ólafs, svo og fulltrúar frá háskólasamfélaginu. Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins flutti m.a. há- tíðarávarp og minntist Ólafs. Ekki kemur fram hvaða kostnað- ur fylgi stofnun Ólafsstofu við Há- skólann á Akureyri en á vef Fram- sóknarflokksins segir að sú stofnun muni leggja áherslu á stjórnskip- unarrétt sem fræðigrein. „Með þessari ákvörðun er Há- skólinn á Akureyri að marka tíma- mót og koma fræðigreininni á þann stall sem hún á skilið.“ a Tveir doktorar í hópi umsækjenda Akureyri vikublað hefur með formlegu bréfi fengið lista frá Akureyrarstofu með nöfnum umsækjenda um starf forstöðumanns Sjónlistamiðstöðvar Akureyrarbæjar. Níu sóttu um stöðuna. Capacent hefur miligöngu um ráðn- ingarferlið í samstarfi við Akureyrarstofu. Alls sóttu fjórir karlar um og fimm konur. Allir hafa háskólamenntun og tveir doktorar eru í hópi umsækjenda. Þrír Akureyringar eru samkvæmt upplýsingum blaðsins í umsækjendahópn- um en hinir eru búsettir utan svæðisins. Nöfn umsækjenda eru hér birt í stafrófsröð en fram kemur einnig aldur og menntun umsækjenda og síðasti vinnuveitandi. » Ásdís Ásgeirsdóttir 46 Blaða og fréttamennska Háskólapróf Mastersgráða Morgunblaðið » Björg Erlingsdóttir 43 Opinber Stjórnsýsla Háskólapróf Bachelor Obelix ehf. » Gísli Sveinn Loftsson 60 Ferðamálafræði Háskólapróf Mastersgráða Iðnaðarráðuneyti » Halldora Arnardóttir 46 Byggingalistasögu Háskólapróf Doktorsgráða Hospital Virgen de la Arrixaca » Hlynur Hallsson 45 Myndlistarnám Háskólapróf Mastersgráða Hlynur Hallsson » Kristinn Jóhann Níelsson 53 Hagnýt fjölmiðlun Háskólapróf Mastersgráða Mýrdalshreppur » Kristín Amalía Atladóttir 52 Menningarhagfræði Háskólapróf Doktorsgráða Háskóli Íslands » Kristján Þór Kristjánsson 32 Kvikmyndafræði Háskólamenntun önnur Álfaland 6 » Lisbet Sigurdardottir 24 Fjölmiðlafræði Háskólapróf Bachelor Gallerí Akureyri. Hlynur Hallsson myndlistarmaður sótti um síðast þegar ný staða forstöðumanns Sjónlistamiðstöðvar var auglýst, haustið 2011. Þá stóð baráttan í lokin milli hans og Hannesar Sigurðssonar. Hannes hafði betur. Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, segir stefnt að því að ráðningarferlið takið tvær vikur, viðtöl við umsækjendur séu hafin. Í auglýsingu um starfið var m.a. tekið fram að reynsla af lista- og menningarstarfi væri mikilvæg. a NÍU LANGAR AÐ stýra Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri en Listasafnið er á vegum stöðvarinnar. ÞAÐ ÞARF ÝMIS aðföng til að reka gott leikhús KEA hótel eignast hótelbygginguna KHG European Hospitality Partners, í eigu Valdimars Jónssonar, sonar Jóns Ragnarssonar, upphafsmanns hótelrekstrar á Skútustöðum, hefur framselt KEA hótelum hæsta boð í hótelbyggingu á Mývatni, Hótel Gíg. Uppboð fór fram þann 13. febrúar síðastliðinn hjá sýslumanninum á Húsavík. Gerðarbeiðendur voru Staf- ir Lífeyrissjóður og Byggðastofnun. Fasteignin var slegin erlendu fjár- festingarfélagi á 382 milljónir króna. KEA hótel hafa rekið hótel í húsinu lengi og leigt húsnæðið af fyrrum eiganda hússins, Hótel Mývatni ehf, í eigu Jóns Ragnarssonar athafna- manns. Nú hafa samningar verið undirritaðir milli KEA hótela og erlenda fjárfestingarfélagsins KHG um að KEA hótel gangi inn í upp- boðstilboðið. Rannsókn Akureyrar vikublaðs fyrir um tveim vikum síðan leiddi í ljós að félagið sem keypti hótelið á uppboðinu, KHG European Hospita- lity Partners, væri með lögheimili í Lúxemborg.  Hlutir félagsins væru allir í eigu annars Íslendings, Valdi- mars Jónssonar, sem búsettur er í Prag. Valdimar Jónsson er sonur fyrrum eiganda húsnæðisins, Jóns Ragnarssonar sem fyrr segir. Frestur KHG til að standa við boðið rennur út á morgun, 6. mars. Samkvæmt upplýsingum blaðsins verður m.a. að vera ljóst að félagið sem bauð hæst megi eiga fasteign á Íslandi til að kaupin gangi í gegn. Samkvæmt heimildum Akureyrar vikublaðs vó nokkuð í ákvörðun KEA hótela að falast eftir framsali hæsta boðsins í Skútustaðaskóla, að starfsemi félagsins hefur miðast við að rekstur undir merkjum félagsins færi fram á Hótel Gíg í sumar, en bókanir í ferðaþjónustu eru jafn- an ekki gerðar með mjög stuttum fyrirvara. Fjórir aðilar tóku þátt í uppboð- inu á fasteigninni. Þar á meðal tók Icelandair Hótel þátt og reyndi að kaupa fasteignina á uppboðinu um miðjan febrúar. Þeirra tilboð fór ekki hærra en 381 milljón, einni milljón lægra en boð KHG. Heimildarmenn Akureyri Viku- blaðs, sem voru á staðnum þegar uppboðið átti sér stað segja að mik- il spenna hafi verið á uppboðinu og lokafjárhæðin sem boðin var hafi verið mun hærri en flestir sáu fyr- ir. Boðið hefur áhrif á verðmæti annarra fasteigna í Mývatnssveit. SA/BÞ HÓTEL KEA Í miðbænum á Akureyri

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.