Akureyri - 07.03.2014, Blaðsíða 4
4 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
60 manns sóttu um eitt
starf í Mývatnssveit
Í dag gæti skýrst hver hlýtur stöðu
framkvæmdastjóra Jarðbaðanna í
Mývatnssveit. Samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins stendur valið milli
tveggja umsækjenda. Áhugi á starf-
inu var mun meiri en bjartsýnustu
menn sáu fyrir, um 60 manns sóttu
um og nær allir utan svæðisins. Nú-
verandi framkvæmdastjóri flytur
senn suður til Reykjavíkur þar sem
hann mun taka við stjórn fjölskyldu-
fyrirtækis.
Jarðböðin hafa skilað hagn-
aði síðari ár. Yfir 100.000 gestir
nutu þjónustunnar í Bjarnarflagi
síðasta ár sem er met. Starfsemin
samanstendur af veitingaaðstöðu,
búningsklefum, gufubaði, eftirsóttu
lóni með heitu vatni í tengingu við
náttúru. a
Nýtt starf hafið í Húsmæðraskólanum
Oddur Helgi Halldórsson, formaður
Fasteigna Akureyrar og framkvæmda-
sviðs bæjarins segir að endurbætur á
Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti
99, hafi tekist afar vel, húsið sé hið
glæsilegasta, hin mesta bæjarprýði og
vonandi eigi nýjum notendum eftir að
líða vel í því. Húsið fékk nýtt hlutverk
umk síðustu helgi þegar skammtíma-
og skólavistun fyrir fatlað fólk í bæn-
um fluttist þangað.
„Ég var búinn að taka eftir því
að það var komið á fjárlög hjá ríkinu
að selja sinn hluta hússins, en hús-
ið var í skiptri eign, ríkið átti 75%
og bærinn 25%. Ég vissi að húsið
var hvorki friðað að utan, né innan,
en mig langaði til að varðveita það
og varðveita þá heildarmynd húsa
eftir Guðjón, sem til er á Akureyri.
Ef einhver og einhver keypti húsið
og breytti því þá var engan veginn
hægt að tryggja varðveislu. Ég vissi
líka að bæjarfélaginu var treystandi
til að gera húsið upp með sóma, þar
sem upprunanum væri sýnd virðing,“
segir Oddur um upphaf þeirrar
ákvörðuna að breyta húsinu og koma
á fót nýrri starfsemi í því.
Ákvörðunin var umdeild og skrif-
uðu íbúar allmargar mótmælagrein-
ar sem m.a. voru birtar í Akureyri
vikublaði. Eigi að síður segist Odd-
ur Helgi mjög þakklátur hversu vel
fólk almennt hafi tekið í þá hugmynd
hans að kaupa Húsmæðraskólann og
breyta honum í skammtímavist og
skólavistun fyrir fatlaða. „Það veitti
okkur tækifæri til að sýna húsinu þá
virðingu sem það átti skilið og einnig
að koma því í notkun aftur. Koma lífi
í húsið. Við ákváðum strax að reyna
að breyta því sem allra allra minnst
að utan og breyta því þannig að inn-
an að breytinarnar væru hugsanlega
afturkræfar. Hins vegar urðum við
að taka tillit til þeirra laga og reglu-
gerða sem hafa breyst frá því húsið
var byggt. Það var búið að breyta
stóra glugganum í stigaganginum,
en við ákvaðum að taka þá breytingu
til baka og gera hann í upprunalegri
mynd. Stigagangurinn er mjög fal-
legur og áberandi hluti hússins. Við
ákváðum líka að reyna að halda í
þá hugsun því stigauppgangan og
pallarnir fyrir neðan og ofan eru í
raun hjartað í húsinu.“
Húsið er ein af perlum Guðjóns
Samúelssonar og Oddur Helgi segist
sannfærður um að Guðjón sé hæstá-
nægður með hvernig til tókst og nýja
hlutverk hússins. Góðir hönnuðir
hafi komið að málum átt gott sam-
starf verið við minjavernd. Einnig
hafi Hólmsteinn Snædal húsamiður
veitt góð ráð.
Vistun og menntun fatlaðra hef-
ur verið á þremur stöðum á Akur-
eyri, þ.e.a.s. í Skólastíg 5, Árholti
við Glerárskóla og Birkilundi 10.
Í fréttatilkynningu frá Akureyrar-
bær segir að um mikla breytingu til
batnaðar sé að ræða í þjónustu við
fatlað fólk á Akureyri því það teljist
ótvíræður kostur að hafa alla starf-
semina á einum stað. Úr Þórunnar-
stræti sé einnig stutt í margskonar
afþreyingu sem fólkið nýti sér.
Húsið var vígt 13. október 1945
en stefnt er að formlegri vígslu nú
15. mars næstkomandi. a
Sjósund í djúpum skít?!
Niðurstöður úr sjósýnatökum með-
fram strandlengjunni á Akureyri
þann 21.janúar sl. sýna að magn
saurkólíbaktería er yfir viðmiðunar-
mörkum á flestum sýnatökustöðum.
Við Strandgötu er saurgerlamagn
áttfalt hærra en umhverfismörk
leyfa.
Í sýni sem tekið var við Strand-
götu mældist fjöldinn 790/100 ml. Í
sýni sem tekið var við menningar-
húsið Hof mældist fjöldinn 240/100
ml. Fyrri mælingin sýnir að saur-
mengun er áttfalt yfir efri mörkum.
Samkvæmt reglugerð nr. 798/1999
um fráveitur og skólp eru við-
miðunarmörk fyrir saurkólíbakteríur
í strandsjó nálægt útivistarsvæðum
100 bakteríufrumur í 100 ml af sjó
(100 cfu/100 ml).
María Markúsdóttir, heilbrigðis-
fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norður-
lands eystra, segir augljóst að ekki sé
hægt að mæla með sjósundi við slík-
ar aðstæður „Við erum þó ekki að
banna sjósund þarna heldur benda á
stöðuna, nú er versti árstíminn hvað
varðar fjölda saurkóligerla, sjósýni
koma verst út á þessum dimmasta
og kaldasta tíma, ársins, það vantar
sólageislana, útfjólubláu geislana til
að drepa bakteríurnar.“
Vandinn við ófremdarástand frá-
rennslismála á Akureyri tengist því
að þótt langt sé síðan fyrst var lögð
fram áætlun um skólprennslisstöð
og lengingu útrásar, hefur ítrekað
verið frestað að bregðast við með
tilheyrandi kostnaði. Allir sýna-
tökupunktar eru meira og minna
yfir umhverfismörkum þessa dagana.
Senn fer af stað starfsemi siglinga-
klúbbsins Nökkva við hámengaða
strandlengju Akureyringa. Hvernig
þetta fer saman við ímynd bæjarins,
matvælaframleiðslu og menningar-
stig íbúa, segist heilbrigðisfulltrúi
engu geta svarað.
Spurð hvort gárungarnir gætu
orðað það þannig að sjósundmenn
myndu að óbreyttu baða sig í djúpum
skít, segir María: „Ég myndi sjálf
ekki baða mig þarna persónulega.
Við höfum sett þessar niðurstöður
inn á heimasíðuna okkar til upplýs-
ingar en við munum svo rannsaka
þetta aftur bráðlega.“ a
Mesta úrkoma í 24 ár
Eins og fram kemur mér á öðrum stað
í blaðinu með mynd frá Húsavík var
óvenjueindregin austan- og norðaust-
anátt ríkjandi í mánuðinum. Veðurstof-
an segir í yfirliti um febrúarmánuð
að sérlega þurrt hafi verið um landið
vestanvert allt norður fyrir Breiðafjörð
og sömuleiðis inn til landsins á Norð-
urlandi vestanverðu. Á þessu svæði
var febrúar hinn þurrasti um áratuga-
skeið, í Reykjavík frá 1966 og frá 1977
í Stykkishólmi. Úrkoma var hins vegar
með mesta móti nyrst á Vestfjörðum
og á Norðaustur- og Austurlandi. Á
Akureyri sú mesta í febrúar síðan 1990.
Hlýtt var í veðri og hiti vel yfir
meðallagi áranna 1961 til 1990 en í
meðallagi sé miðað við hin óvenju-
hlýju ár síðasta áratuginn. Meðalhiti
í Reykjavík var 1,7 stig, 1,4 yfir með-
allagi fyrrnefndu áranna, en 0,2 yfir
meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri
var hiti 1,3 stigum ofan meðallagsins
1961 til 1990. a
MYNDIN ER EKKI tekin þar sem akureyrsk strandlengja er saurmenguðust. Völundur
STEFN ER AÐ formlegri vígslu eftir breytingar 15. mars næstkomandi. Völundur