Akureyri - 07.03.2014, Blaðsíða 18
18 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Fræðslukvöld
um réttlæti í
Glerárkirkju
Næstu fjögur miðvikudagskvöld
verður fræðsludagskrá í Glerár-
kirkju. Þeir sem standa að átakinu
telja að dagskráin eigi fullt erindi
við bæjarbúa nú í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninga.
Í Biblíunni er fjallað um réttlæti
og hefur kristin trú á öllum tímum
tekið þátt í umræðu um hvernig
megi skapa gott og réttlátt sam-
félag, segir í fréttatilkynningu. Á
fræðslukvöldum Eyjafjarðar- og
Þingeyjarprófastsdæmis og Gler-
árkirkju í mars verður leitast við
að efna til slíkrar umræðu með því
að leiða saman kirkjunnar fólk,
fræðimenn og stjórnmálamenn til
að ræða um félagslegt réttlæti út
frá ákveðnum þemum. Þessi þemu
eru: Mannréttindi og réttlæti, Fá-
tækt og misskipting auðs, Jafnrétti
og jafnræði og Einstaklingshyggja
og samfélagsleg ábyrgð.
Fræðslukvöldin eru á miðviku-
dögum kl. 20 í Glerárkirkju. Þau
eru öllum opin og kosta ekkert, en
veitingar eru í boði á vægu verði.
DAGSKRÁ KVÖLDANNA ER ÞANNIG
» 20.00 Hugvekja út frá efni kvöldsins
» 20.10 Fyrirlestur sérfræðings
» 20.45 Kaffihlé
» 21 - 22 Pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokka.
Fyrsti fyrirlesturinn fór fram í gær en þá ræddi Margrét Steinarsdóttir
lögfræðingur, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands mann-
réttindi og réttlæti.
12. mars næstkomandi verður fjallað um fátækt og misskiptingu auðs
» Fyrirlestur: Halldór S. Guðmundsson, félagsráðgjafi, framkvæmdastjóri
Öldrunarheimila Akureyrar.
» Hvernig skilgreinum við fátækt?
» Er fátækt óumflýjanleg?
» Hvernig berjumst við gegn misskiptingu í samfélaginu?
» Skýrslu um fátækt er að finna á vef hjálparstarfsins, http://www.help.is/
doc/118
19. mars Jafnrétti og jafnræði
» Fyrirlestur: Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu
» Hver er staða jafnréttismála á Íslandi í dag?
» Hvernig er hægt að jafna stöðu kynjanna og vinna gegn öðrum ójöfnuði?
» Hvernig tryggjum við jafnræði í samfélaginu?
» Jafnretti.is
26. mars Einstaklingshyggja – Samfélagsleg ábyrgð
» Fyrirlestur: Ágúst Þór Árnason brautarstjóri við lagadeild Háskólans á
Akureyri.
» Eru einstaklingshyggja eða félagshyggja nothæfar nálganir í nútíma
lýðræðissamfélagi?
» Hvað segir kristin trú um einstaklingshyggju og samfélagslega ábyrgð?
STELPA Í RAUÐUM kjól og nakin kona. Völundur