Akureyri


Akureyri - 07.03.2014, Page 6

Akureyri - 07.03.2014, Page 6
6 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00 F A S TU S _E _0 5. 03 .1 4 Ráðstefnu- og fundarstóll Tryggðu þér og gestum þínum öruggt sæti, með vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði. Nú með 20% afslætti. Verð kr. 14.000,- m.vsk. meðan birgðir endast Veit á vandaða lausn 20% afsláttur Dýrasta klukkubúðin! Verslunin Bónus í Reykjanesbæ var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 13 verslunum víðsvegar um landið þann 25. febrúar, en farið var í lág- vöruverðsverslanir, stórmarkaði sem og klukkubúðir. Hæsta verðið var oft- ast að finna í klukkubúðinni 10/11 Akureyri eða í meira en helmingi til- vika. Verðmunurinn á hæsta og lægsta verði vöru í könnuninni var frá 9% upp í 218% en oftast var hann 25-75%. Af þeim vörum sem Samkaup–Úrval Selfossi átti til var í um 10% tilvika umbeðin vara óverðmerkt, sem er óviðunandi fyrir neytendur. Af 83 vörutegundum sem voru skoðaðar voru flestar fáanlegar hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði og Hagkaupum Kringlunni eða 82 af 83, Krónan Granda átti til 79 og Iceland 78. Fæstar vörurnar voru fáanlegar hjá Samkaupum-Strax eða 51 af 83 og 10/11 átti til 52. Af þessum 52 vörum sem 10/11 áttu til voru þeir dýrastir í 46 tilvikum. MESTUR VERÐMUNUR VAR Á ÁVÖXTUM OG GRÆNMETI Verð á 11 tegundum á ávöxtum og grænmeti voru skoðuð í könnuninni. Verðmunur á þeim var 70-218%. Minnstur verðmunur var á avacado 70% en það var dýrast á 849 kr. hjá Hagkaupum en ódýrast á 498 kr. hjá Nettó, Fjarðarkaupum, Iceland og Kaskó. Einnig var 70% verðmunur á íslenskri agúrku sem var ódýrust á 420 kr.st. hjá Bónus en dýrust á 714 kr.st. hjá Samkaupum-Strax. Benda má neytendum á að agúrka er seld í stykkjatali í mörgum verslunum, en ein agúrka er að meðaltali 350 gr. Mestur verðmunur í könnuninni var á appelsínum sem voru dýrastar á 499 kr. hjá 10/11 en ódýrastar á 157 kr. hjá Nettó og Kaskó sem er 342 kr. verðmunur eða 218%. MINNSTUR VERÐMUN- UR VAR Á OSTI, VIÐBITI OG MJÓLKURVÖRUM Minnstur verðmunur að þessu sinni var á 250 gr. mysingi með karamellu sem var ódýrastur á 265 kr. hjá Bónus en dýrastur á 289 kr. hjá Hagkaupum sem er 24 kr. verðmunur eða 9%. Í þessum vöruflokki var mestur verð- munur 59% á 250 ml. KEA skyrdrykk með hindberjum og trönuberjum sem var ódýrastur á 157 kr. hjá Bónus en dýrastur á 249 kr. hjá 10/11. Sem dæmi um aðra mjólkurvöru sem seld er í öllum 13 verslununum má nefna 32% verðmun á 250 gr. MS rækju- smurosti sem var dýrastur á 499 kr. hjá 10/11 og Samkaupum-Strax en ódýrastur á 379 kr. hjá Bónus. Af öðrum vörum má nefna að 500 gr. Myllu fittý samlokubrauð var ódýrast á 318 kr. hjá Bónus en dýrast á 499 kr. hjá 10/11, sem er 181 kr. verðmunur eða 57%. Kílóverðið á ódýrasta heila kjúklingnum var 598 kr. hjá Víði en dýrast á 998 kr. hjá Kjarval, sem er 400 kr. verð- munur eða 67%. Mikill verðmunur var einnig á kílóverðinu á frosnum lambahrygg sem var ódýrast á 1.595 kr. hjá Bónus en dýrast á 2.578 kr. hjá Kjarval sem er 983 kr. verðmunur eða 62%. Medium Casa fiesta taco sósa er ódýrust á 232 kr. hjá Krónunni en dýrust á 359 kr. hjá Samkaupum- Strax sem var 55% verðmunur. Að lokum má benda á að neyt- endur ættu að skoða vel hvar þeir kaupa uppþvottavélatöflur frá Finish, en Powerball- All in one var ódýrast á 18 kr.st. hjá Bónus en dýrast á 35 kr.st. hjá Kjarval sem er 94% verð- munur eða 17 kr.st. sem er fljótt að safnast saman, en 17 kr.st. á dag í heilt ár eru 6.205 kr. sem má nota í eitthvað annað. Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Reykjanesbæ, Krónunni Granda, Nettó Akureyri, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Samkaupum-Úrvali Selfossi, Hagkaupum Kringlunni, Víði Skeifunni, Nóatúni Nóatúni, Iceland Engihjalla, 10/11 Akur- eyri, Samkaupum-Strax Suðurveri, Kaskó Húsavík og Kjarval Hellu. a KS tapar dómsmáli Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað jarðareigendur í veið- réttarmáli af kröfum Kaupfélags Skagfirðinga. Dómkröfur KS voru að viðurkennt yrði með dómi að jörðinni Krossanesi í Skagafirði tilheyrði veiði- réttur í Húseyjarkvísl í Skagafirði. Þá krafðist KS að viðurkennt yrði með dómi að Krossanesi fylgdi eitt atkvæði í Veiðifélagi Húseyjarkvíslar. Deilumálið snerist um lax- og silungsveiði. Í niðurstöðu dóms segir að ríkissjóður hafi selt jörðina Krossanes í þremur hlutum. Í afsali til Sigurðar Óskarssonar var veiði- réttur í Húseyjarkvísl undanskilinn. Við þinglýsingu afsalsins var rituð athugasemd um að óheimilt væri að undanskilja veiðiréttinn. Hins vegar sé ekkert minnst á veiðirétt í Húseyjarkvísl í afsölum til stefnanda eða stefnda Páls. Ágreiningur aðila snúist um veiðirétt í Húseyjarkvísl fyrir landi Krossaness. „Stefnandi reisir tilkall sitt til veiðiréttarins m.a. á því að hans partur upphaflegu jarðarinnar teljist lögbýli og vísar í því efni til skráningar Lögbýlaskrár og Fasteignaskrár Íslands en óheim- ilt hafi verið að skilja veiðiréttinn frá lögbýlisjörðinni, sbr. ákvæði 4. mgr. 2. gr. þágildandi laga um lax- og silungsveiði.“ Vísað er til fornrar reglu í íslensk- um rétti að hver maður eigi veiði fyrir landi sínu. „Veiðirétti fyrir landi Krossaness fylgir samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði eitt atkvæði í Veiðifélagi Húseyjarkvíslar og fara stefndu með það atkvæði en þeim ber skv. 2. mgr. nefndrar greinar að gera með sér skriflegan samning um það hver fari með atkvæðisréttinn. Skilja verður kröfu stefndu um að jörðinni Krossanesi fylgi eitt atkvæði í veiðifélaginu þannig að atkvæðis- rétturinn tilheyri þeim og verður hún tekin þannig til greina.“ Svo segir: Að fenginni þessari niðurstöðu verður stefnandi dæmdur til að greiða stefndu málskostnað sem þykir, að teknu tilliti til umfangs málsins, hæfilega ákveðinn 627.500 krónur til hvors stefndu um sig og hefur þá verið tekið tillit til virðis- aukaskatts. Við ákvörðun málskostn- aðar hefur verið horft til þess tíma sem fór í ferðalag lögmanns stefndu við aðalmeðferð málsins svo og út- lagðs kostnaðar,“ segir m.a. í niður- stöðukafla dómsins. a Fé útdeilt eftir póli- tískum geðþótta „Ég fékk ekki svar við mjög mikil- vægum spurningum sem snúa að því hvort vinnubrögð ráðuneytisins í þessu máli séu fagleg. Til dæmis hvort styrkir séu auglýstir þannig að jafnræðis sé gætt og hvort  ráðu- neytið fylgi skriflegum verklagsreglum í þessu styrkjaferli. Miðað við fyrra svar virðist svo ekki vera en mér finnst mikil- vægt að fá þetta staðfest og ítreka því nokkrar spurningar auk þess að bæta við nokkrum,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður NA-kjördæmis fyrir Bjarta framtíð. Brynhildur er ósátt við þau svör sem hún fékk ekki um styrkveitingu Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson- ar, forsætisráðherra, en mjög hefur verið í fréttum hvernig fé var útdeilt án umsókna til ýmissa verkefna og voru viðtakendur í ýmsum tilfellum framsóknarmenn. Bynhildur segir að á undanförnum árum hafi styrkir sem þessir verið að færast í faglegra form enda þurfi að gæta jafnræðis þegar verið er að útdeila fjármunum úr sameiginlegum sjóði. „Þessi vinnubrögð eru afturhvarf til fortíðar, til þess tíma þegar stjórnmálamenn og ráðherrar deildu út peningum eftir eigin geðþótta. Ég geri ekki lítið úr því að mörg þessara verkefna eru eflaust verðug og það er pólitísk ákvörðun hversu miklu fé er varið í þennan málaflokk en það er algert grundvallaratriði að allir sitji við sama borð þegar hið opinbera útdeilir styrkjum. Ég vænti þess að bæði Ríkisendurskoðun og Umboðsmaður Alþingis skoði þetta mál nánar.“ Meðal spurninga Brynhildar til forætis- ráðherra má nefna hvort ekki hafi verið í gildi neinar skriflegar verk- lagsreglur þegar þeim styrkjum, sem spurt var um, var úthlutað, og hvernig vinna við faglegt mat hafi farið fram á umsóknum í forsætis- ráðuneytinu í samráði við stofn- anir þess, þar sem svo virðist sem hvorki hafi legið fyrir skriflegar verklagsreglur né stefnumótun hjá ráðuneytinu um úthlutun styrkja til menningarminja og græna hag- kerfisins? a BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR. SIGMUNDUR DAVÍÐ

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.