Akureyri


Akureyri - 27.03.2014, Blaðsíða 10

Akureyri - 27.03.2014, Blaðsíða 10
10 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014 Marstilboð í keilunni 20% afsláttur á kvöldin mán. - fim. Leikurinn á aðeins kr. 720,- Boltinn í beinni á nýjum skjávörpum Óskasteinar sýndir í Hofi Nýtt verk, Óskasteinar eftir kvik- myndaleikstjórinn Ragnar Bragason verður sýnt í Hofi um helgina. Tónlist við verkið er eftir Mugison Ragnar hefur fyrst og fremst starfað við sjónvarpsþáttagerð og kvikmyndir og þekkja flestir Vakta- seríurnar svokölluðu sem slógu rækilega í gegn fyrir nokkrum árum. Ragnar þreytti frumraun sína í leik- húsi í fyrra þegar hann skrifaði og leikstýrði Gullregni í Borgarleik- húsinu. Óskasteinar fjallar um illa skipulagt rán í smábæ sem mis- heppnast hrapallega. Á flóttanum leita ræningjarnir skjóls í mannlaus- um leikskóla og bíða fjórða félagans sem er horfinn á bílnum. Hópurinn hefur tekið gísl á flóttanum, eldri konu sem varð vitni að ráninu. Fram eftir nóttu stytta þau sér stundir innan um barnaleikföng en þegar birta fer af degi fer örvæntingin og ósættið innan hópsins að ágerast og ókunna konan afhjúpar sín eigin leyndarmál. Leikarar í sýningunni eru Krist- ín Þóra Haraldsdóttir, Hanna Mar- ía Karlsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Þröstur Leó Gunnarsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. a Hvalir skoða líka menn Arctic Sea Tours á Dalvík hefur í vetur orðið fyrst fyrirtækja á Norð- urlandi til að sigla allt árið um kring í hvalaskoðun. Síðustu mánuði hafa í flestum ferðum sést hnúfubakar og höfrungar að sögn Freys Antonsson- ar framkvæmdastjóra. Hann segir að hvalir skoði menn ekki síður en menn hvali. “Þá koma þeir mjög nærri bátn- um velta sér og setja hausinn uppúr svona eins og þeir horfi í kringum sig. Það er gaman að sjá hnúfubak og höfrunga, sem að mínu mati eru lang skemmtilegustu dýrin í hvalaskoðun.” Báðar dýrategundir koma að sögn Freys oft á óvart með hegðun sinni t.d. með því að stökkva svo gestir geti séð þá betur. En sumar ferðir séu fréttnæmari en aðrar. “Síðasta sumar sáum við steypi- reiði með kálf og blending sem menn telja afkvæmi steypireiðar og langreiðar.” a TITLEIST PRO V1 EÐA PRO V1x Kaupir 3 doz og færð það fjórða frítt með Einnig er gefinn aukalegur 10% afsláttur af þessu tilboði. Erum komin með nýja facebook síðu facebook.com/eagleakureyri Strandgata 9 – Akureyri sími 440 6800 Opið virka daga frá 10-18 Opið laugardag kl. 11-16 TITLEIST ÞAKKAR TRAUSTIÐ ADAM SCOTT og býður FRÍTT DÚSÍN og FRÍA MERKINGU Titleist vill þakka þér fyrir að treysta Pro V1 fyrir golfleiknum þínum. Ef þú verslar þrjú dúsín eða meira af Pro V1 eða Pro V1x í næstu golfverslun þá færðu sérmerkingu og eitt dúsín frítt með. Keyptu 4 dúsín af sérmerktum Pro V1 eða Pro V1x hér á aðeins: Tilboðið gildir til og með 17. apríl KLÁRAÐU DÆMIÐ HÉR 31.320 kr. Eagle Akureyri, sími 440-6800 Íþrótta- og útivistarverslun

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.