Akureyri - 05.06.2014, Síða 4
4 21. tölublað 4. árgangur 5. júní 2014
Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is
Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00
Frábært úrval af minnismerkjum!
Fagmennska • Gæði • Gott verð • 25 ára reynsla
Kaupmannahafnarflugi
frestað um fjórtán daga
Greenland Express mun fresta því
að hefja flugrekstur um tvær vikur
en til stóð að hefja fyrsta flugið í
gær, 2. júní, frá Álaborg til Græn-
lands með viðkomu í Kaupmanna-
höfn og á Íslandi.
Greenland Express harmar að
allar flugferðir verða felldar niður
frá 2. júní til 16. júní og mun félagið
því hefja formlega flugrekstur á 17.
júní. Akureyringar höfðu gælt við
að komast í beint flug frá Akureyri
til Kaupmannahafnar frá og með
byrjun þessa mánaðar en þurfa að
sætta sig við tveggja vikna bið.
Ástæðan er sögð vera þar sem
flugrekstraraðilinn Denim Air, sem
á og rekur Fokker 100 vél félagsins,
er enn að bíða eftir að fá flughæfn-
isvottun fyrir vélina frá hollensk-
um yfirvöldum.
Álaborg verður heimavöllur fé-
lagsins þaðan sem vélin mun fljúga
til Kaupmannahafnar og þaðan til
Akureyrar og áfram til Grænlands.
- BÞ
Ók vélsleða eftir Leirutjörn
og eyðilagði álftahreiður
Unglingspiltur ók vélsleða eftir
Leirutjörn á Akureyri sl. föstu-
dagskvöld og eyðilagði álftahreiður.
Málið er á borði lögreglu.
Jón Birgir Gunnlaugsson sem
starfar hjá Akureyrarbæ greindi
fyrstur frá málinu á facebook.
Hann skrifar að síðan í apríl hafi
hann dáðst að og fylgst náið með
álftarpari sem hafi komið sér upp
hreiðri í hólmanum í Leirutjörn-
inni. Þrátt fyrir óblítt veður á köfl-
um hafi álftaparið aldrei gefist upp,
ekki fyrr en „misvitrir einstak-
lingar, athyglissjúkir og í misgóðu
ástandi til aksturs“ keyrðu vél-
sleða eftir endilangri tjörninni og
enduðu för í hólmanum þar sem
sleðinn drap á sér með tilheyr-
andi veseni. „Seint í gærkvöld
voru álftirnar ekki sjáanlegar og í
morgunsárið voru hrafnar mættir
á svæðið. Ömurlegt að verða vitni
að þessu!“
Akureyri vikublað hafði sam-
band við lögregluna á Akureyri
vegna málsins. Löregluvarðstjóri
staðfesti að málið hefði verið kært,
lögregla komið á staðinn og málið
teldist upplýst nema eitthvað nýtt
kæmi fram. Þarna hefði verið fram
brot, enda ólöglegt að aka vélsleða
á þessum stað á þessum tíma. „Ég
veit ekki til að bærinn hafi gert
kröfu í málinu.“
Virðist því sem ekki hafi borist
kæra um brot á dýravernd heldur
sé aðeins farið með málið sem um-
ferðarlagabrot. Viðurlög verða að
óbreyttu fremur lág sektargreiðsla.
„Þetta voru heimamenn sem áttu
í hlut, unglingspiltur sem ók sleð-
anum. Þeim hefur fundist þetta
fyndið en menn gleyma stundum
að horfa á heildarmyndina, það
er ömurlegt ef ferðin hefur rústað
hreiðri álftanna,“ segir lögreglu-
varðstjórinn.
Í athugasemed við eigin færslu
á facebook segir Jón Birgir Gunn-
laugsson að lögreglan hafi mætt á
staðinn eftir tilkynningu en aðeins
rætt við þann sem kom sleðanum
úr hólmanum en ekki þann sem
keyrði hann þangað og olli tjóninu.
„Hann óð bara hinu megin í land og
hvarf á braut!“ -BÞ
Vantaði 20 atkvæði
„Þetta var rosalegt,“ segir Dagur
Fannar Dagsson, 3ji maður á lista
L-listans sem var inni í bæjarstjórn
á Akureyri uns síðustu tölur voru
lesnar upp aðfararnótt sunnu-
dags á Akureyri. Þá breyttist stað-
an. Framsókn fékk annan mann á
kostnað L-listans. Þegar upp var
staðið skildu aðeins 20 atkvæði að
þau Ingibjörgu Isaksen (B) og Dag
Fannar.
„Maður var búinn að heyja mikla
kosningabaráttu og þótt ég hafi
ekki náð inn í lokin er ég ánægð-
ur með okkar hlut, við erum ennþá
næststærsta aflið á Akureyri, óháð
afl í bæjarmálum. Við teljum okkur
einstök á landsvísu fyrir þær sakir,
en auðvitað var þetta geðshræring
og svo varð ég hálfdofinn.“
Dagur Fannar segir að skipting
bæjarfulltrúa í lokin hafi sumpart
verið jákvæð og hafi átt þátt í að
þreifingar um nýjan meirihluta
gátu orðið milli L-lista, Samfylk-
ingar og Framsóknarflokksins á
Akureyri. -BÞ
Eru Sjálfstæðismenn
ósáttir við eigin menn?
153 kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins strikuðu út full-
trúa efstu sæta þegar gengið
var til kosninga síðastliðinn
laugardag. Þetta kemur fram
í gögnum frá kjörnefnd.
Gunnar Gíslason var hvítt
blað í stjórnmálaheiminum
í vetur þegar hann bauð sig
fram til oddvita. Hann tefldi
djarft og hafði sigur. Oddvita-
staða hans er hins vegar ekki
óumdeild eins og sjá má af
því að 74 kjósendur flokksins
strikuðu nafn hans út. Sá sem
fékk næstflestar útstrikanir
er einnig sjálfstæðismaður,
33 strikuðu út Njál Trausta Friðbertsson, sem skipaði
þriðja sætið á lista sjálfstæðismanna.
Af Samfylkingarfólki strikuðu 11 manns út Sigríði
Huld Jónsdóttur sem skipaði annað sæti listans og
einnig strikuðu 11 manns út nafn Eiðs Arnars Pálma-
sonar sem skipaði fimmta sætið. Átta strikuðu yfir nafn
Loga Más Einarssonar oddvita flokksins.
42 útstrikanir voru hjá L-listanum og flestar hjá
Tryggva Gunnarssyni tíu alls. Tryggvi skipaði fjórða
sætið. Aðeins tveir strikuðu út Matthías Rögnvaldsson
sem gerir hann að óumdeildasta oddvita framboðanna
á Akureyri miðað við þátttöku og atkvæðamagn.
38 útstrikanir voru hjá VG. Flestir strikuðu yfir Sól-
eyju Björk Stefánsdóttur oddvita flokksins eða fjórtán.
Tvöfalt færri eða sjö strikuðu yfir Edward H. Huijbens
sem skipaði annað sætið.
Hjá Framsókn voru 27 útstrikanir. Níu strikuðu
yfir nafn Ingibjargar Isaksen en fjórir yfir Guðmund
Baldvin Guðmundsson oddvita flokksins.
Hjá Dögun voru 16 útstrikanir Einn strikaði yfir
Hlín Bolladóttur, oddvita flokksins.
Hjá Bjartri framtíð er Preben Pétursson sem skip-
aði 3ja sæti listans umdeildastur. Ellefur strikuðu yfir
Preben en þrír yfir nafn Margrétar Kristínar Helga-
dóttur, oddvita flokksins. -BÞ
MATTHÍAS RÖGNVALDS-
SON: Óumdeildastur
leiðtoga akureyrsku
framboðanna – miðað
við útstrikanir stuðnings-
manna flokkanna.
STARFSMENN KJÖRDEILDAR í VMA unnu sín störf óumdeilt
af natni, hvað sem líður vilja kjósenda. BÞ
HÓLMINN Í LEIRUTJÖRN.