Akureyri - 05.06.2014, Blaðsíða 13
5. júní 2014 21. tölublað 4. árgangur 13
Orkuforðinn okkar
Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn.
Úrkomu og leysingavatni af jöklum landsins er safnað í uppistöðulón, sem
flest eru á hálendinu. Miðlunarlónin eru góð geymsla fyrir raforku og gera
kleift að vinna rafmagn jafnt og þétt allt árið.
Hálslón er vatnsmesta lón landsins. Þegar lónið fyllist síðsumars
er vatni veitt um yfirfall sem steypist í um 100 metra háum fossi,
Hverfanda, niður í Hafrahvammagljúfur.
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Kárahnjúkastífla: Leiðsögumaður tekur á móti gestum alla
miðvikudaga og laugardaga kl. 14-17.
Búrfellsstöð: Gagnvirk orkusýning er opin alla daga kl. 10-17.
Vindmyllur á Hafinu: Starfsfólk tekur á móti gestum alla
laugardaga í júlí kl. 13-17.
Kröflustöð: Jarðvarmasýning er opin alla daga kl. 10-17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
*Vatnsmagn í miðlunarlónum er mælt í gígalítrum
(milljörðum lítra).
Krókslón - 140 Gl.
Hágöngulón - 320 Gl.
Blöndulón - 412 Gl.
Þórisvatn - 1400 Gl.
Hálslón - 2100 Gl.
Sultartangalón 109 Gl. • Kelduárlón 60 Gl. • Hrauneyjalón 33 Gl. • Gilsárlón 20 Gl. • Sporðöldulón 25 Gl. • Bjarnarlón 5 Gl. • Ufsar– og Vatnfellslón 3 Gl.
Vortónleikar kvennakórsins Emblu
Kvennakórinn Embla efndi til vor-
tónleika sinna í Hömrum, minni sal
Menningarhússins Hofs, 29. maí.
Kórstjóri var Roar Kvam, en með-
leikari á flygil Helga Kvam. Kórinn
var stofnaður árið 2002 og er skip-
aður konum af Eyjafjarðarsvæðinu,
fjórtán að tölu. Hann hefur beitt
sér að flutningi klassískrar og nú-
tíma tónlistar jafnt innlendrar sem
eftir erlenda höfunda og tekið þátt
í kvennakóramótum og getið sér
gott orð. Stofnandi kórsins er Roar
Kvam.
Á efnisskrá vortónleikanna 29.
maí voru verk eftir Eyþór Stef-
ánsson, Robert Schumann, Sig-
fús Einarsson og Edward Grieg.
Tónleikarnir hófust á „Lindinni“
eftir Eyþór. Lagið var mikið vel
flutt, en þó enn betur, er kórinn
söng það sem aukalag í lok tón-
leikanna. Í þessu fyrsta verki kom
þegar fram það, sem einkennir
kórinn, en það er mikill agi, sem
skilar sér í mjög áberandi natni
og alúð við allar blæbrigða- og
styrkbreytingar og var kórinn í
þessu efni sem vel stillt og hann-
að hljóðfæri. Þetta á að vera eitt af
höfuðeinkennum góðs kórflutn-
ings og var fyrir hendi á þessum
tónleikum. Kór í eigind sinni er
ekki samsafn einstaklinga, held-
ur flokkur söngvara, sem allir
stefna af metnaði að einu marki:
samhentri samvinnu um góðan og
gefandi flutning tónlistar sjálfum
sér og þeim, sem á hlýða, til gleði
og lífsfyllingar.
Annað verkið á efnisskrá vor-
tónleika Kvennakórsins Emblu var
flokkur átta laga eftir Shumann.
„Acht Gesange für Frauenstimmen
und Klavier“. Hér er um að ræða
tónsmíð, sem ekki er leikur að flytja
svo vel sé. Tónferðin er víða skot-
in og innkomur tíðum snöggar og
stuttar, en slíkt gerir miklar kröf-
ur til nákvæmni í tóntaki og náins
sambands kórfélaga á milli og ekki
síst við stjórnandann. Nokkurs
óróa virtist gæta í fyrsta laginu,
„Ländisches Lied“ og var það í eina
skiptið, sem slíkt var á öllum tón-
leikunum. Einnig varð tónn í efstu
rödd lítils háttar skerandi en það
sama kom einnig fyrir í áttunda
laginu í flokknum, „Botschaft“, en
þar lá nærri að brysti tónninn. Að
þessum tveimur tilfellum slepptum
var flutningur öruggur og vandað-
ur svo að ánægjulegt var á að hlýða.
Ber þar ekki síst að nefna annað
lagið „Spruch“, sem var innileg
flutt, og fjórða lagið, „Nänie“, þar
sem styrkbreytingar voru sérlega
vel unnar. Loks má geta sjötta lags
flokksins, „Erste Begegnung“, en
það er fjörlegt og gerir kröfur til
mikillar nákvæmni í innkomum og
tóntaki, en hvorttveggja var í góðu
lagi.
Eftir hlé kom að þriðja hluta
efnisskrárinnar, „Fjórum söngv-
um fyrir kvennakór og píanó“
eftir Sigfús Einarsson. Í fyrsta
laginu, Gígjunni“, kom fram örlítill
brestur og brá fyrir rennsli á tón-
um, en það kann að hafa verið ætl-
un stjórnandans. Af báru tvö lög,
„Draumalandið“ og „Sofnar Lóa“,
sem bæði voru mjög vel flutt og
þá ekki síst hið síðarnefnda, sem
var ofurblítt og hljóðlátt og bar af
í því efni. Lokalagið, „Augun blá“
leið lítillega fyrir örlítinn skort á
samhæfni.
Lokahluti tónleikanna var
fjögurra laga flokkur eftir Grieg,
„En vårsyklus for kvinnestemmer
og piano“. Allur flokkurinn var vel
fluttur, en þó má á benda, að tónn
varð nokkuð skarpur í efstu rödd í
lok síðasta lagsins, „Høststorm“, en
dramatík verksins skilaði sér vel.
Skemmtilegt var að heyra í þriðja
lagi flokksins, „Møte“, hve fallegum
hljómi neðri raddir kórsins ná.
Eins og fram kom í upphafi, var
Helga Kvam meðleikari kórsins
á flygil. Hún stóð sig með mikilli
prýði, var ævinlega styrkur og stoð
kórkvennanna; jók hrif, þar sem
við átti og fylgdi ævinlega blæ- og
styrkbreytingum í samræmi við
bendingar stjórnandans. Það er
akkur að því, að Helga skuli komin
aftur heim, en hún er nú um stund-
ir skólastjóri Tónlistarskóla Sval-
barðsstrandar.
Það virðist vera tími til kominn,
að festa söng og flutning Kvenna-
kórsins Emblu á plötu. Kórinn á
fullt erindi í slíka vinnslu og það
væri líka öllum unnendum vandaðs
flutnings tónlistar fyrir kvenna-
kóra án efa fagnaðarefni að geta
dregið vel unna upptöku fram
úr plötusafni sínu og sett hana í
„græjurnar“ svo að njóta megi þess,
sem flytjendur gera best. Ekki síður
væri þetta verðugur vitnisburður
þess mikla starfs, sem stjórnandinn,
Roar Kvam, hefur innt af hendi
á tónlistarsviðinu allt frá því að
hann árið 1971 tók til starfa hér í
byggðinni. Honum eiga áheyrendur
marga ánægjustundina að þakka í
fortíð og vonandi mega þeir vænta
margra enn. a
Haukur Ágústsson
Skrifar tónleikagagnrýni
KÓRINN, STJÓRNANDI OG
meðleikari að tónleikum
loknum.
Völundur